í Riga 
24.03.-27.03.2023 

Hér finnurðu frábæra blöndu af gömlu og nýju. Hér er sjór, hér eru vötn, skógar og óspillt náttúra. Í Lettlandi eru margir smærri bæir en aðeins ein raunveruleg borg, Ríga, höfuðborg landsins.

Á yfirborðinu virðist Riga kannski nokkuð róleg borg, en ef dýpra er kafað má finna fjölbreytta bari, nútímalistasöfn og fleiri áhugaverða staði. Þá má ekki gleyma veitingastöðunum, sem eru margir hverjir á heimsmælikvarða, og bjóða upp á rétti á afar sanngjörnu verði. Borgin er því tilvalinn áfangastaður fyrir hvern þann sem hefur yndi af að njóta ljúffengra veitinga í fögru umhverfi.
Riga er mikil dekurborg, þekkt fyrir að umvefja þá sem sækja heilsulyndir og snyrtistofur borgarinnar í slökun og andlitsböðum, nuddi og notalegheitum á hinum ýmsu snyrtistofum borgarinnar að ógleymdri ESPA heilsulindinni á hótelinu. 
Og svo er nauðsynlegt að prófa klassískt lettneskt bað! Á meðan aðrar þjóðir taka baðmenningu sína alvarlega, kemst engin á sama stað og Lettar, sem halda fast í fornar hefðir og saunaferðir eru þeim sem heilög stund. Svo má einnig finna skemmtileg bjórböð. Lettar eru mikil bjórþjóð, og láta sér ekki nægja að drekka hann sér til ánægju, því það er vinsælt að baða sig upp úr honum líka.

 Brottför - Föstudaginn 24.03.2023
Vinsamlega uppfærið þessa síðu reglulega þar sem hún er lifandi og upplýsingar geta breyst. 

Flug

Flug fram og til baka með Air Baltic,
1 innrituð taska 23 kg og handfarangur


ATH - Rúta frá Miðhrauni til Kef fer stundvíslega kl. 10:00 frá Miðhrauni.

Flugtímar - 24.03.2023

 Brottför frá Keflavík Föstudaginn 
 24. mars 2023  kl. 13.30. 
 Áætluð lending í Riga er kl.19:10
 Flugnúmer BT170

ATH - Rúta frá Miðhrauni til Kef fer stundvíslega kl. 10:00 frá Miðhrauni.

Rúta á flugvellinum

Fararstjóri eru með ykkur í fluginu, vinsamlega fylgið þeim í rúturnar eftir töskuafhendingu.

Akstur til Riga tekur um 20 mínútur.




Gisting

Radisson Blu Latvija Conference & Spa **** - Innifalið er morgunverður, city tax og wifi.  

Morgunverður er alla daga frá kl 06:30 - 10:30 og til kl 11:00 um helgar.

Sjá neðar nánar um hótelið.

Tékk inn - tékk út

Tékk inn á hótelinu mun ganga hratt fyrir sig þar sem þið hafið útvegað okkur vegabréfsnúmerin ykkar.
Ef fólk vill láta opna reikning á herbergið til að versla á bar hótelsins þá þarf hver og einn að skrá kortanúmer á herbergið sitt.

Tékk út fyrir kl 07:45 á mánudeginum, vinsamlegast gerið upp herbergin ykkar fyrir brottför til að spara tíma.

Tíminn í RIGA + 3

ATH tímamismunur milli Íslands og Lettlands eru +2 klukkustundir, þar til 26. mars 2023, þá breytist það í +3 klst

Farastjóri. -Óli Gísli 

Fararstjóri verður í andyri hótelsins 
alla daga kl 10:00 - 11:00
8228283 

Hótelið

****
s: +371 67 772  222

Radisson Blu Latvija Conference & Spa Hotel er 4 stjörnu hótel í hjarta Riga og í göngufæri frá fallega gamla bænum. 
Herbergin eru rúmgóð og með ókeypis WiFi. Öll herbergin eru með minibar og te- og kaffiaðstöðu. Hvert gistirými er með nútímalegt baðherbergi með snyrtivörum, hárþurrku og annaðhvort baðkar eða sturtu.

Á jarðhæðinni er vinsæll bar þar sem er hægt að fá kaffi og samlokur, hann er opinn frá kl 09.00 - 01:00 en eldhúsið til 23:00. 
Á 26.hæð er Skyline barinn sem er opinn frá kl 15:00-02:00 og laugardögum frá kl 12:00-02:00, þar geta gestir notið drykkja, léttra veitinga og þar er frábært útsýni yfir sjóndeildarhring borgarinnar. Í kjallara Hótelsins er svo skemmtistaður sem að er opinn fram á rauða nótt. Það er einnig Casino á hótelinu, ATH að það þarf að skrá sig sérstaklega inn í Casinoið og hafa  með sér vegabréf.
Veitingastaðurinn Esplanade sér um morgunverðinn, er með opið í hádeginu og á kvöldin til 22:30. Þar er boðið upp á alþjóðlega rétti fyrir alla.

Heilsulindin- og heilsumiðstöðin á staðnum, ESPA Riga, er með lúxushönnun, 18 metra sundlaug, gufuböð og eimböð og úrval af heilsulindarmeðferðum fyrir andlit og líkama.

Hótelið fær heildareinkunina 8,7 og 9,5 fyrir staðsetningu. 



Föstudagur 24.03.
Skyline bar á 26 hæð hótelsins
Mikið fjör verður á Skyline barnum á 26. hæð hótelsins sem er í boði fyrir alla hótelgesti og aðra. Ekki verður hægt að taka frá borð en mælt með að mæta snemma til að ná góðum sætum. 
Local dj og skemmtikraftar munu trylla líðinn.


Laugardagur 25.03.2023 kl. 9:45
Ferð á skotsvæði - Shooting Riga. 
10 manns hafa skráð sig.
Þeir sem hafa skráð sig í þessa ferð þá er Pick up í anddyri hótelsins kl 9:45 Stundvíslega.
Gerið ráð fyrir að þetta taki minnst 2-2,5 klst.
Verðið að taka með vegabréf og pening. Ekki hægt að borga á staðnum með korti.



Laugardagur 25.03.2023
Árshátíð 66°Norður

 Tónleika- og veislusalurinn Daile. Riga
Krišjāņa Barona iela 31, Centra rajons, Rīga, LV-1011,

 Húsið opnar kl. 19:00

Fordrykkur og léttir réttir
kl. 19:30

Borðhald byrjar kl.20:00

Matseðill:

Welcome canape

Forréttur:
Smoked duck breast 
with basil pomp, asparagus, radishes and olive oil sauce
Aðalréttur:
Fried beef medallions 
with cream roots, broccoli and red wine sauce
Eftirréttur:
Chocolate fondant 
with berries and pineapple sorbert

Veitingar í boði og barinn opinn frá kl 19:00 - 24:00
Innifaldir drykkir: Rauðvín og hvítvín hússins, bjór, vatn, gos, 
kaffi og te

Eftir kl 24:00 er hægt að versla drykki á barnum, þá greiðir hver fyrir sig.


HELGA BRAGA sér um veislustjórn á sinn einstaka máta.
SÓLI HÓLM mun slá á létta strengi 
með söng og eftirhermum.
Óviti

DJ eftir að borðhaldi lýkur til kl. 02:00
DJ DÓRA JÚLÍA sér um að halda öllum á dansgólfinu.

Skemmtið ykkur vel!

Sunnudagurinn 26.Mars
Skoðunarferð til Saldus í boði 66°Norður

Skoðunarferð til Saldus

Sunnudaginn 26. mars bjóðum við upp á skoðunaferð í verksmiðjuna okkar í Saldus. Þar mun Inese taka á móti okkur og gefa okkur innsýn inn í þeirra daglega starf. Tilvalið tækifæri til að kynnast samstarfsfólki okkar í Lettlandi.
Hittumst í Lobbyinu kl. 10:45. 
Farið verður með rútu frá hótelinu kl. 11:00 og áætlað að koma til baka kl. 16:00. Rútuferðin tekur um það bil 1,5 klst hvora leið.

 Heimför mánudaginn 27.03.2023

Hittingur í Lobbý - 07:45

Hittingur í móttökunni og check out, rútan leggur af stað 07:45 upp á flugvöll. 

Muna að tékka sig út af hótelinu tímanlega, helst gera upp reikninga, ef eitthvað hefur verið skráð á herbergið, kvöldinu áður.

Flug - 27.03.2023

Heimför mánudaginn 27.03 kl 10:45 og 
lent í Keflavík 11:40
Flugnúmer BT169

Flug 

Flug fram og til baka með AirBaltic 1 innrituð taska 23 kg og handfarangurstaska (max 8kg - 55x40x23cm)


Hvað er hægt að gera í Riga


Art Nouveau safnið er ansi magnað

Smakkaðu Black Balsam drykkinn

Slakaðu á í fallegum almenningsgarði, Gauja National Park er einstakur

Skelltu þér í andlitsbað eða nudd 


Lettnesku böðin eru eftirminnileg reynsla

Hjólatúr í gamla bænum með leiðsögn

Nytsamar upplýsingar

Veitingastaðir

Riga er rík af frábærum veitingastöðum, ferskum og góðum mat.
Fjöldi veitingastaða eru í göngufæri frá hótelinu, sem og góð grillhús, gatan Dzirnauvu iela er full af veitingastöðum, sem og eru eðal staðir á Antonijas iela götunni.

Mælum með Vincents  / Chefs Corner / Barents / Tails og Steiku Haoss - Einn þjóðlegur og öðruvísi Aragats  og svo er líka Rivera sem er miðlungs dýr en vel þess virði, og síðast en ekki síst Japanski COD sem er einn af okkar uppáhalds. The CATCH er frábær sushi staður rétt hjá hótelinu. Italissimo er nýr ítalskur staður sem er mjög vinsæll þessa dagana
VIÐ MÆLUM MEÐ AÐ FÓLK PANTI SÉR BORÐ Á VEITINGASTÖÐUM ÁÐUR EN FARIÐ ER ÚT. ATH AÐ EF HÓPUR ER FLEIRI EN 10 MANNS ÞÁ ÞARF OFTAST AÐ PANTA HÓPAMATSEÐIL.

Lido staðirnir, ódýrir og nokkrir í borginni.

Michelin mælir með nokkrum sjá HÉR

Vinsælar veitingakeðjur eru líka i göngufæri eins og Vapiano, McDonalds og Burger King.

Hjól og Rafskutlur

Skemmtilegur ferðamáti til að kynnast borginni. Hjólaleigur eru víða og mjög auðvelt er að leigja hjól.
Einnig eru rafskutlur út um allt. 

Helstu rafskutluleigurnar eru BOLT, RIDE og SKOK

Skotsvæði - kemur á óvart

Hefur þig alltaf langað að prufa að skjóta úr skammbyssu eða jafnvel Ak-47 vélbyssu. Í Riga er mikið úrval af góðum skotsvæðum sem að taka á móti hópum í skemmtilegt hópefli. Mikils öryggis er gætt og þjálfaðir kennarar eru með hverjum hóp. Takmarkaður fjöldi í hverjum hóp. 
https://rigashootingrange.com/index.html 

Neyðarnúmer í Riga

112 er neyðarnúmerið í Lettlandi

Klúbbar & barir í nágrenninu

Daiquiri Riga - theater bar - Vieta wine bar.
Coyote Fly - First - næturklúbbarnir eru flottir
Riga er rík næturklúbbum og skemmtilegum börum. 

Svo er alltaf gott að spyrja móttökuna þau vita hvað er núna best þar sem allt var að opna aftur eftir langan tíma.

Samgöngur

Í Riga er hægt að velja um ýmsan samgöngumáta, leigubílar, tramminn eða strætó.  Það er ekki Uber en það er Bolt.
MÆLUM MEÐ AÐ FÓLK HLAÐI NIÐUR  BOLT APPINU
Hlaupahjólin eru út um allt og er ódýr ferðamáti.
Strætó-arnir eru skemmtilegir og auðveldir, annars er NÁNAST allt í göngufæri.

Skemmtilegt að gera

Veistu ekki hvað þú átt að gera í Riga, kíktu á þessa síðu:  https://www.latvia.travel/en/city/riga-8  

Tungumála frasar

Takk! – Paldies
Einn bjór takk! - viens alus, paldies
Hæ!- Sveiki
Afsakið! - atvainojos
Please! - lūdzu
Reikninginn, takk! - Lūdzu, izsniedziet rēķinu
Talar þú ensku? - vai tu runā angliski

Verð hugmyndir € = ISK

 Gengið er um 155kr vs 1€

Bjór 0,5l  4€ - 617 kr. (innlendur)
Cappuchino 3 €- 460 kr. 
Gosdrykkur 0,33l - 1,5€ - 230 kr. 
Vatn 0,33l - 1,3 €  - 190 kr. 
Út að borða fyrir 2 - meðalverð 40€ = 6.100 kr (með víni)

*heimild numbeo.com

Veðurfar í MARS

Vorið er að detta inn, en gott er að hafa góða yfirhöfn með sér, þó það séu plús gráður þá er getur verið kalt vegna rakans.
Skoðið veðurspár nokkrum dögum fyrir brottför t.d. á yr.no