Leikskólinn Arnarberg til Edinborgar
Lítill demantur frá miðöldum
Edinborg er höfuðborg Skotlands. Þar er heillandi borgarstæði, fallegar byggingar og tignarlegur kastali. Iðandi menningarlíf með góðar verslanir og úrval veitingahúsa.
,,Auld Reekie" eins og borgin heitir á skosku (og þyðir Old Smoky), sameinar hið gamla og nýja á sérstæðan hátt og þar upplifirðu hið einstaka skoska andrúmsloft. Á hæðinni fyrir ofan borgina stendur hinn tignarlegi Edinborgarkastali, táknmynd borgarinnar. Borgin býður upp á blöndu af miðöldum og nútíma, þar standa bókstaflega, hlið við hlið miðaldahúsaraðir og nytískulegar byggingar, kirkjur í gotneskum stíl og hús byggð eftir nútíma arkitektúr.
Næturlíf borgarinnar getur verið ansi villt, Edinborg er stundum kölluð Aþena norðursins. Að ekki sé minnst á alla veitingastaðina og pöbbana.
Síðast en ekki síst, þá er Edinborg festivalaborgin, þar sem festival nefnt eftir borginni er haldið ár hvert.
Allir ættu að finna eitthvað við sitt hæfi enda Skotar höfðingjalegir gestgjafar.
Hvað er hægt að gera í Edinborg
Útsýnið úr Edinborgarkastala er stórkostlegt
Sjónblekkingarsafnið er óvenjuleg skemmtun
Rannsaka Neðanjarðarborgina (Real Mary King´s Close)
Viskíáhugafólk er komið til himna. Prófaðu að smakka!
Minnismerki Scott er áhrifarík sjón
Tilvalið að skella sér í golf ef veður leyfir
Hvað er innifalið í ferðinni
Flug
Flug fram og til baka með Icelandair til Glasgow, 1 innrituð taska 23 kg taska og 10 kg handfarangur
Brottför
Brottför miðvikudaginn 25. maí 2022 frá Keflavík kl 07:55 til Glasgow, lending áætluð kl 11:10
Heimkoma
Brottför sunnudaginn 29. maí 2022 frá Glasgow kl 12:50 til Keflavíkur, áætluð lending kl 14:05
Gisting
5 nætur á 4 stjörnu hóteli - Innifalið er morgunverður og wi-fi.
Rútur
Rútuferðir til og frá flugvellinum í Glasgow til Edinborgar og í skólaheimsóknir og fræðslu ef með þarf.
Farastjórn
1 óendanlega hjálpfús og skemmtilegur fararstjóri frá Tripical.
Hótel
Leonardo Royal Edinburgh Haymarket****
Leonardo Royal Edinburgh Haymarket hótelið er fögurra stjörnu hótel í miðborg Edinborgar, aðeins 500 metra frá Haymarket járnbrautarstsöðinni.
Á hótelinu er veitingastaður og bar, ókeypis WiFi og það liggur í um tíu mínútna fjarlægð frá miðpunkti borgarinnar. Morgunverðarhlaðborðið er gott með miklu úrvali.
Herbergin eru rúmgóð, nútímaleg og stílhrein með sérbaðherbergi. Á herbergjunum eru skjásjónvörp, vinnusvæði, kaffi/te, ókeypis
Verslunargatan Princes Street’s og Edinborgarkastali eru í 10 mínútna fjarlægð frá hótelinu. Strætóferðir í hina víðfrægu krikju Rosslyn Chapel og The Edinburgh International Conference Centre (EICC) er í 300 metra fjarlægð.
Á booking.com fær hótelið 8.0 í heildareinkunn, starfsfólk og staðstening fá 8.6.
Verðin
160 990 kr
á mann í tvíbýli
50 000 kr
aukagjald í einbýli
Hótel
Market Street Hotel****
Gistu í hjarta Edinborgar! Staðsetning Market Street Hotel er framúrskarandi. Aðeins í nokkra mínútna fjarlægð frá the Royal Mile og aðeins tæpa 600 metra fjarlægð frá The Real Mary King's Close.
Market Street er hluti af þekktu borgar landslagi Edinborgar. Á þakhæð hótelsins er að finna þakbar í fallegri setustofu með óborganlegt útsýni. Camera Obscura er í 700 metra fjarlægð sem og World of Illusion. Edinborgarkastali er í 1 km fjarlægð og 1.1 km fjarlægð frá Þjóðminjasafni Skota, National Museum of Scotland.
Herbergin eru í boutique stíl með skoskum vefnaðarvörur, list og kaffi brenndu í nærumhverfi. Í þeim eru að finna fataskápur, skjásjónvarp og baðherbergi. Sum herbergin eru með útsýni yfir borgina en öll herbergin eru með Apple TV, Chromecast (lítið tæki frá Google sem er um 5 sm langt og er stungið inn í HDMI inntak á sjónvarpstækjum. Þá er mögulegt að streyma efni frá spjaldtölvum, tölvum og símum upp á sjónvarpsskjái) og háhraða WiFi
The accommodation provides evening entertainment and a 24-hour front desk.
Morgunverður er borinn fram á þakbarnum og kampavínssetustofunni Nor´r Loft. Þangað er líka hægt að fara á öðrum tímum og fá sér létta rétti og drykki og njóta útsýnisins.
Leikhúsið Edinburgh Playhouse er 1.1 km fjarlægð frá hótelinu og Edinborgarháskólinní í 1.5 km fjarlægð. Það er 16 km leið að Edinborgarflugvelli.
Hótelið fær 9.2 í heildareinkunn á booking.com, starfsfólk fær 9.6 og staðsetningin 9.8.
Verðin
146 990 kr
á mann í tvíbýli
46 000 kr
aukagjald í einbýli
Verðin miðast við 22 manns og tilboðið gildir til 21.01.2022
Drög að dagskrá*
Miðvikudagur 25. maí 2022
Komudagur
Kl. 07:55 Brottför frá Keflavík
Kl. 11:10 Lent í Glasgow að staðartíma
Kl. 12:10 Rúta frá flugvellinum í Glasgow að hótelinu í Edinborg
Kl. 13:45 Innritun á hótelið í Edinborg
Frjáls tími
Fimmtudagur 26. maí 2022
uppstigningardagur
Föstudagur 27. maí 2022
Kl. 08.30 Mæting í anddyrri hótelsins og lagt af stað í fræðsludagskrá
Kl. 09.00 Heimsókn í leikskóla nr. 1
Kl. 11.45 Hádegisshlé
Kl. 13.00 Heimsókn í leikskóla nr. 2
Kl. 15.45 Lagt af stað að hóteli
Laugardagur 28. maí 2022
Fræðsludagskrá í 4 - 6 klukkustundir samkvæmt viðmiðum KÍ.
Sunnudagur 29. maí 2022
08:30 Útritun af hóteli
08:50 Rúta ekur frá hóteli að flugvellinum í Glasgow
10:50 Innritun í flug til Keflavíkur frá Glasgow með Icelandair
12:50 Flug til Keflavíkur.
14:05 Lent í Keflavík að staðartíma.
*Með fyrirvara um breytingar

Áslaug Hersteinsdóttir-Hölttä
Fræðsluferðir
GSM. 785-9887
Netfang. aslaug@tripical.com