
Til Tenerife
Tan og endalaus gleði á Tene! 18. - 25. mars &21. - 28. mars
Tenerife er afar vinsæll áningarstaður hjá sólarþyrstum, og ekki að ástæðulausu. Þar eru strendurnar fallegar, sjórinn hreinn og hlýr, alltaf bongó blíða, íbúar eyjunnar næs, og hellingur af fjölbreyttri og skemmtilegri afþreyingu. Tenerife klikkar ekki!
Eyjan var á árum áður fátækleg bananarækt, allt þar til á 6. áratug síðustu aldar að ákveðið var að nýta einstaka veðursæld hennar og fagra náttúru fyrir ferðaþjónustu. Hótel voru byggð og veitingastaðir opnuðu. Þetta var ansi fín ákvörðun, því þar hefur verið mikið um að vera æ síðan. Bæir hafa stækkað, hótelum fjölgað og ýmis konar afþreying bæst við til að gera heimsókn til eyjunnar sem skemmtilegasta. Þar er nefnilega heilmargt að gera, fyrir þá sem ekki hafa endalausa þolinmæði í sólböð og strandagleði. Þá nýtur Tenerife ákveðinna sérréttinga í skattlagningu, sem gerir að verkum að þar er bæði tóbak og áfengi mun ódýrara en annars staðar í Evrópu. Það fussar enginn við því!
Tenerife er sannkölluð paradísareyja. Þar finnurðu þéttvaxna skóga og litríka náttúru með hinu fjölskrúðugasta dýralífi. Hér hefurðu auk fagurra stranda, gyllta eyðimerkursanda og tignarlegustu fjöll. Þar á meðal er hið stórbrotna eldfjall El Teide, sem rís tæpa 4000 metra frá sjávarmáli, og býður gestum upp á toppinn með þar til gerðum kláfum. Um skeið var boðið upp á ferðir ofan í gýg fjallsins, en því hefur nú verið hætt af öryggisástæðum. Heimsókn á fjallið er þó vel þess virði, því útsýnið þaðan er alveg einstakt.
Suðurhluti eyjunnar er tileinkaður almennri ferðaþjónustu, en sé farið á norðurhlutann má finna meira af grænum svæðum, þar er menningin meira lókal og þú færð spænskar hefðir og venjur beint í æð.
Hvað er innifalið í ferðinni
Flug
Flogið er með Icelandair
Fyrri hópur - ca 35 manns
Kef - Tenerife: 18. mars
08:40-14:05
Tenerife - Kef: 25 mars
15:05-20:35
Seinni hópur - ca 85 manns
Kef - Tenerife:
21. mars
08:50-14:00
Tenerife - Kef:
28. mars
16:00-20:20
Gisting
7 nætur á 4 stjörnu hóteli
Rútur
Rútuferðir til og frá flugvelli á Tenerife
Hægt að bæta við Fararstjórn
Gegn lágu gjaldi
Hvað er hægt að gera á Tenerife
Viltu kafa? Tenerife er þekkt fyrir úrval af köfunarferðum af öllum stærðum og gerðum, fyrir vana sem óvana
Loro Parque Zoo
er skemmtilegur dýragarður með alls kyns sýningum
Parque Rural de Anaga, er frábært svæði fyrir góðar gönguferðir. Fullt af leiðum, fallegt umhverfi og frábært útsýni
Masca
dalurinn er vinsæll áningarstaður, sökum fegurðar
Siam
vatnagarðurinn er risastór og stútfullur af skemmtilegum rennibrautum og veitingastöðum
Ron Miel, er romm með hunangi út í og afar svalandi ískalt í klaka
Hótel
Hotel Best Jacaranda
****
****
Hotel Best Jacaranda er staðsett í garði, 550 metra frá Fañabe-strönd. Hótelið býður upp á sjávarútsýni, 6 sundlaugar með fossi og herbergi með svölum.
Rúmgóð herbergin á Hotel Best Jacaranda eru með loftkælingu og gervihnattasjónvarp. Öll eru þau með minibar og fullbúið baðherbergi.
Hotel Best Jacaranda býður einnig upp á opið eldhús og vikulega þemakvöldverði. Sundlaugarbarinn framreiðir snarl allan daginn og gestir geta notið drykkja við píanóbarinn.
Hotel Best Jacaranda er með líkamsræktarstöð á staðnum. Þar er einnig að finna tennisvelli, borðtennisaðstöðu og fjölíþróttavöll.
Hotel Best Jacaranda er í 3 mínútna göngufjarlægð frá göngusvæði þar sem hægt er að njóta útsýnis yfir nálægu eyjuna La Gomera.
Verð
179 990 kr
á mann í tvíbýli með hálfu fæði
78 000 kr
aukagjald í einbýli
174 990 kr
á mann 3manna herb. (2fullorðnir +1barn) með hálfu fæði
164 990 kr
á mann í 4manna herb. (2fullorðnir +2börn) með hálfu fæði
Hótel
H10 Costa Adeja Palace
****
****
H10 Costa Adeje Palace er aðeins 50 metrum frá La Enramada-ströndinni á Tenerife og býður upp á stórar útisundlaugar, heitan pott og heilsulind.
Hótelið býður upp á ókeypis skutluþjónustu að Playa de las Americas, í 4 km fjarlægð. Costa Adeje-golfvöllurinn er í innan við 2 km fjarlægð.
Íburðarmikla heilsulindin Despacio Spa Centre býður upp á upphitaða innisundlaug, líkamsræktaraðstöðu og tyrkneskt bað. Gestir geta einnig bókað heilsu- og snyrtimeðferðir.
Á H10 Costa Adeje Palace er boðið upp á marga veitingavalkosti, þar á meðal veitingastaði með hlaðborði og á la carte. Það er bar við sundlaugarbakkann
Hótelið fær heildareinkunina 8,4 og 8,9 fyrir staðsetningu á booking.com
Verð
209 990 kr
á mann í tvíbýli með hálfu fæði
68 000 kr
aukagjald í einbýli
209 990 kr
á mann í family room (2fullorðnir +1barn) með hálfu fæði
199 990 kr
á mann í family room (2fullorðnir +2börn) með hálfu fæði
229 990 kr
á mann í junior suite (2fullorðnir +1barn) með hálfu fæði
219 990 kr
á mann í junior suite (2fullorðnir +2börn) með hálfu fæði