Róm
Róm eða borgin eilífa er eitt riasvaxið listasafn full af menningu, tísku, gómsætum mat og sögufrægu stöðum og byggingum. Hún var alla vega ekki byggð á einum degi.
Ítalía er draumastaður í hugum margra. Landið býr yfir magnaðri sögu og menningu, þar eru víða stórbrotnar byggingar, náttúrufegurðin er einstök, og svo auðvitað það mikilvægasta: Maturinn! Ofan á alla þessa kosti bætist dásamlegt veðurfar, og þjóðin sem þarna býr. Það er bara eitthvað við Ítali, sem erfitt er að útskýra. Þeir eru bara svo töff!
Róm er svo ótrúleg, gamla borgin, borg miðaldarinnar, endurreisnartímans. Glæsileg torg, kirkjur, þröng sund, Pantheon, Navona og Gyðingahverfið, magnað.
Miðborg Rómar skiptist í níu hverfi en það er nánast eingöngu miðborgin sem er dvalarstaður 99 prósenta þeirra sem þangað koma til heimsóknar. Eru enda úthverfi borgarinnar töluvert nýlegri en gamla miðborgin og engin sérstök saga eða minjar þar sem heilla ferðamenn mikið nema hræbillegar mafíublokkir þyki spennandi sýn.
En borgin er stútfull af frábærum veitingastöðum, börum, búðum og skemmtistöðum. Það leiðist alla vega engum í Róm!
Hvað er hægt að gera í Róm
Kíktu á Hringleikhúsið, Spænsku tröppurnar, Pantheon, Trevi gosbrunninn og og og ...
Taktu Metro það er fljótlegasta farartækið til að komast á milli staða
Via Condotti verslunargatan fyrir þá sem vilja versla hátísku og Monti fyrir ... okkur hin
Vatíkanið er land inni í borginni, hvergi annarsstaðar hægt að sjá svoleiðis
Hvað er innifalið í ferðinni
Flug
Beint Flug með WIZZ/Play með innritaðri 20 kg tösku
og handfarangri
Flogið út
Brottför miðvikudagskvöl kl 19:20 og áætluð lending í Róm er kl 01:55
Flogið heim
Heimför mánudaginn 30.05. kl 15:45 frá Róm Fiumicino til Keflavík og lent um kl 18:40
Gisting
5 nætur á 4 stjörnu hóteli, morgunverður innifalinn, wifi og borgarskatturinn (6€ á mann per nótt).
Rútur
Rútuferðir til og frá flugvelli ca 35 - 50mín akstur
Farastjórn
1 skemmtilegur og óendanlega hjálpfús fararstjóri frá Tripical.
Svítu-lottó
Við viljum magna upp stemninguna fyrir brottför með því að draga út 1 par/einstakling sem fær uppfærslu á herberginu sínu og gistir því í betra herbergi (Svíta, Jr Svíta, Deluxe herbergi).
Skemmtitékkinn í boði Tripical
Við viljum gera árshátíðarferðina ógleymanlega! Þess vegna bjóðum við hópnum þínum upp á frí skemmtiatriði í ferðinni. Hópurinn þarf að telja 50
manns eða fleirri og viðkomandi skemmtikraftur þarf að vera laus á þeim dagsetningum sem óskað er eftir.
Hægt er að kynna sér hvaða skemmtiatriði er hægt að fá með í ferðina með að ýta á hnappinn hér fyrir neðan.
Hótel
****
Hótelið Exe International Palace býður upp á ókeypis WiFi en það er til húsa í miðbænum í fallegri byggingu frá 19. öld og er staðsett hinum meginn við veginn frá óperuhúsinu í Róm. Herbergin eru glæsileg og eru með loftkælingu og gervihnattasjónvarpi.
Exe International Palace er í 400 metra fjarlægð frá Repubblica-neðanjarðarlestarstöðinni og í 10 mínútna göngufjarlægð frá Termini-lestarstöðinni. Spænsku tröppurnar, Colloseum og Treví-gosbrunnurinn eru einnig í göngufjarlægð.
Veitingastaðurinn International Cafè á hótelinu býður upp á dæmigerði ítalska rétti . Morgunverðurinn er mjög vel útilátið og ríkulegt hlaðborð.
Barinn er opinn þar til seint á kvöldin og býður upp á bragðgott snarl og framúrskarandi kokkteila sem eru blandaðir af reynslumiklum barþjónum.
Hótelið fær heildareinkunn 8,1 og 9,3 fyrir staðsetningu á booking.com
Hótelið bíður ekki upp á kvölderði fyrir hópa. En ekki örvænta í göngufæri eru margir skemmtilegtir veitingastaðir sem vilja glaðir taka á móti ykkur.
Verðin
92.990 kr
Á mann í tvíbýli
114.990 kr
Einbýli
Hótel
****
Hotel Londra & Cargill er staðsett í rólegu íbúðahverfi í miðbæ Rómar og í 10 mínútna göngufjarlægð frá hinu fræga Via Veneto-stræti. Ókeypis WiFi er í boði hvarvetna.
Öll herbergin á Londra & Cargill eru glæsileg en þau eru til húsa í 19. aldar byggingu og eru með viðarhúsgögn og ljóst litaþema. Öll herbergin eru með loftkælingu, sjónvarp og minibar. Ókeypis flaska af sódavatni er í boði við komu.
Ríkulegt morgunverðarhlaðborð, sem innifelur hrærð egg og beikon, er borið fram daglega frá klukkan 07:00 til 10:30. Gestir geta fengið sér drykki og líkjöra frá svæðinu á setustofu-barnum.
Á hótelinu eru einnig fundarherbergi, viðskiptamiðstöð og ókeypis nettenging í glæsilegum sal.
Londra & Cargill Hotel er í 15 mínútna göngufjarlægð frá Villa Borghese-görðunum og Piazza di Spagna en Repubblica-neðanjarðarlestarstöðin er í 10 mínútna göngufjarlægð frá hótelinu. Termini-stöðin er aðeins 1 stoppi í burtu.
Hótelið fær heildareinkunn 8,6 og 8,6 fyrir staðsetningu á booking.com
Hótelið er með 7 fallega sali, mismunandi af stærð en sem taka allt að 250 manns í sæti. Fyrir árshátíðarkvöldverðinn, fordrykkur, 3 rétta ítölsk veisla og vínpakki kosta frá 8.900 á mann.
Verðin
84.990 kr
Á mann í tvíbýli
88.990kr
Einbýli
Hótel
****
Hotel Quirinale er staðsett í 19. aldar byggingu, í 15-20 mínútna göngufjarlægð frá Colloseum. Þetta sögufræga hótel er tengt óperuhúsi Rómar í gegum göng í fallegum húsagarði.
Herbergin eru rúmgóð og falleg, innréttuðum í klassískum stíl. Flatskjár og frítt wifi eru í hverju herbergi. Sum herbergin eru með útsýni yfir litla garðinn og húsgarðinn.
Glæsilegt morgunverðarhlaðborð er í boði daglega. Þar er líka a la carte veitingastður,Rossini Restaurant býður upp á ítalska og miðjarðarhafs matargerð.
Hótelið er staðsett í 150m fjarlægð frá Repubblica-neðanjarðarlestarstöðinni. Spænsku tröppurnar, Colloseum og Trevi gosbrunnurinn eru í innan við 15 mínútna göngufjarlægð. Stuttur akstur er í Vatíkanið.
Hótelið fær heildareinkunn 8,3 og 9,2 fyrir staðsetningu á booking.com
Hótelið er með fallegan sal sem hentar fyrir árshátíðarkvöldverði. Fordrykkur, 4 rétta ítölsk veisla og vínpakki kosta frá 11.990 á mann.
Verðin
84.990 kr
Á mann í tvíbýli
88.990kr
Einbýli