til Barcelona

Með sólbaðsstrendur og einstakan byggingarstíl frá fornum hofum til framúrstefnu Gaudí. Barcelóna er sannkölluð Miðjarðarhafsperla.

Barcelona er borg sem hefur dregið til sín fjölda listamanna vegna fegurðar sinnar og sérstöðu. Barcelona býður upp á heimsklassa söfn, katalónska matseld, dans og víðfrægt næturlíf.
Arkitektúr borgarinnar er æði fjölbreyttur. Turnar úr  gömlum hofum, gamlir veggir og steinarústir sýna sögu borgarinnar allt frá tímum Rómverja. Gotneska hverfið er 1000 ára gamalt og margar kirkjunar eru frá 15. öld. Þá er einnig mikið af nýbyggingum í borginni eftir fræga hönnuði eins og Gaudí.
 
Göngugötur Barcelona eru vinsælar og oft margt um manninn. Frægust þeirra er Ramblan, La Rambla, á henni má finna fjöldan allan af veitingastöðum og verslunum. Í þessari fallegu borg eru útimarkaðir, veitingastaðir, söfn og fallegar kirkjur á hverju strái. Berceloneta heitir þekktasta strönd borgarinnar, þar sleikir Miðjarðarhafssólin gylltan sand og heiðblátt hafið. Barcelona er frábær borg fyrir ferðalanga sem hafa gaman af því að rölta um og skoða mismunandi byggingarstíl og upplifa litríka menningu.

Hvað er hægt að gera í Barcelona

Stytturnar og gosbrunnarnir á Placa de Catalunya eru sjón að sjá
Í Sants Montjuic geturðu farið með kláf frá strönd og hátt upp í fjall. 
Barri Gotic hverfið er fullt af miðaldabyggingum og nokkrum sem eru enn eldri 
La Sagrada Familia kirkjan er auðvitað bara skylduheimsókn! Enginn fer frá borginni án þess að hafa farið þangað

Park Güell garðurinn hefur skrýtnar og stórskemmtilegar byggingar Gaudi
Þú finnur allt sem þig langar að borða í Barcelona - er þú verður að prófa katalónska matargerð

Hvað er innifalið í ferðinni

Flug

Beint flug til og frá Barcelona með tveimur innrituðum 20 kg töskum og handfarangri

Flugtímar

Brottför 21. apríl kl. 13:30
Lent í Barcelona kl: 19:45
Heimkoma 25. apríl kl. 16:10
Lent í Keflavík kl. 18:40

Fræðsludagskrá

Skipulögð fræðsludagskrá/ skólaheimsóknir í tvo heila daga eftir ykkar óskum.

Gisting

4 nætur á 4ra stjörnu hóteli í miðborg Barcelona. Innifalið er morgunverður og wi-fi.

Rútur

Rútur til og frá flugvelli og skipulagðri fræðsludagskrá ef þörf er á

 Íslensk farastjórn

Tveir skemmtilegir og óendanlega hjálpfúsir fararstjórar.

 Svítu-lottó

Við viljum magna upp stemninguna fyrir brottför með því að draga út heppið par sem fær að gista í betra herbergi (Svíta, Jr Svíta, Deluxe herbergi).  Nema þið viljið að forstjórinn fái herbergið!

Skemmtitékkinn í boði Tripical

Við viljum gera árshátíðarferðina ógleymanlega! Þess vegna bjóðum við hópnum þínum upp á frí skemmtiatriði í ferðinni. Hópurinn þarf að telja 50 manns eða fleirri og viðkomandi skemmtikraftur þarf að vera laus á þeim dagsetningum sem óskað er eftir. 

Hægt er að kynna sér hvaða skemmtiatriði er hægt að fá með í ferðina með að ýta á hnappinn hér fyrir neðan.

Hótelið

Hotel Barcelona Catedral
****

Fjögurra stjörnu hótel á besta stað í borginni í göngufjarlægð við flesta af helstu merkisstöðum gömlu borgarinnar og Eixample hverfisins. Hótelið er í hjarta gotneska hverfisins, 100 metrum frá dómkirkju Barcelona og steinsnar frá Römblunni, Cataluyna-torgi og mörkuðum Boquería og Santa Caterina auk fjölda annara áhugave rðra staða miðborgarinnar. 

Þetta boutique-hótel býður upp á ókeypis einkaleiðsöguferðir um hina sögulegu miðborg tvisvar í viku. Til staðar er líkamsræktarstöð og þakverönd með sundlaug og frábæru útsýni yfir borgina. 

Frumleg Miðjarðarhafs-matargerð er framreidd á 4 Capellans, veitingastað hótelsins, sem býður upp á glútenlausan matseðil. Mikið úrval af veitingastöðum og tapasbörum má finna í innan við 5 mínútna göngufjarlægð, þar á meðal margir í hinu vinsæla El Born-hverfi.


Hótelið fær heildareinkunn 8,9 og 9,7 fyrir staðsetningu á booking.com

Hótel

H10 Casanova
****

Fjögurra stjörnu boutique hótel staðsett miðsvæðis. Í 10 mínútna göngufjarlægð er Plaza Catalunya og Ramblan. Á hótelinu er a la carte veitingastaður og notalegur kaffihús/bar. Hótelbar og sundlaug á þakveröndinni. Einnig er að finna spa sem býður uppa Vichy sturtum, tyrkneskt bað með chromotherapy og heitum potti, hægt er að panta tíma líkamsmeðferðir og nudd gegn gjaldi. Hægt er að leigja hjól á hótelinu. 

Hótelið fær heildareinkunn 8,8 og 9,1 fyrir staðsetningu á booking.com 


Verðin

?? 990 kr

á mann í tvíbili

?? 000 kr

aukagjald í einbýli

Tilboðið miðast við ??? manns og gildir til ??. september 20??


Ásthildur Ólafsdóttir (Ásta)  

Fyrirtækjaferðir
S. 519-8909
GSM. 820-8991