til Dubrovnik
18.-21.05.2023.

Augnkonfekt við Adríahafið

Dubrovnik er staðsett á suðurhorni Króatíu við Adríahaf og er þekkt fyrir hinn gullfallega og ævaforna miðbæ.

Gamli bærinn er fullur af börum, veitingastöðum og litlum verslunum. Ef þú vilt fara í Game of Thrones leiðangur, gjörðu svo vel!

Hér áður fyrr var Dubrovnik sjálfstætt ríki. Þess vegna er gamli bærinn umkringdur virkisveggjum, sem byggðir voru til þess að vernda landið frá árásum Rómverja og margra annara ríkja í gegnum aldirnar.
Í Júgóslavíustríðinu (sem lauk 1995) var borgin nánast eyðilögð en undanfarna áratugi hefur mikil endurbygging átt sér stað og í dag hefur hún nánast komist aftur í sitt gamla form. Byggingalist Dubrovnik er algjörlega mögnuð og ekki skemmir náttúrfegurð Króatíu og stórbrotin fegurð Adríahafsins fyrir. Það má í raun segja að umhverfið sé algjört augnakonfekt.

Mælum með að þið vistið  þessa síðu í símanum ykkar, uppfærið hana regluglega  því hún er lifandi og upplýsingarnar til ykkar geta breyst


Brottför 18.05.2023

Flug

Flug fram og til baka með leiguflugi Tripical/Enterair  Innifalin 1 innrituð taska 15 kg og 5 kg handfarangur (mjög mikilvægt af fara ekki yfir í kílóum)

ATH engir flugmiðar eru gefnir út þar sem þetta er leiguflug en innritun er einungis í Keflavík.

Tékk inn byrjar 2,5 klt fyrir brottför og lokar 45 mín fyrir brottför. Sama á við um heimflugið.  Einungis þarf að sýna vegabréf.

Flug til Dubrovnik 18.05.2023

ATH NÝR BROTTFARATÍMA KLUKKAN 10:30. 

INNRITUN OPNAR ENN KLUKKAN 06:15 OG VERÐUR OPIN TIL KLUKKAN 09:30.

Brottför frá Keflavík kl. 10:30 áætluð lending í Dubrovnik kl 17:30
Flugnúmer ENT501
Veitingasala um borð, en gott að vera með auka nesti til að vera viss.
Tékk inn opnar 06.15 og verður opið til 09.30. Einungis þarf að sýna vegabréf.

Flugtími áætl tæpir 5 klt
Ekki er hægt að hlaða snjalltæki um borð!

Rútur á flugvellinum

Rútur bíða ykkar á flugvellinum í Dubrovnik merktar Tripical. Fylgið farastjórunum.

Eftir töskubandið er gengið út um aðalútganginn og þar fyrir utan er rútan.
Flugvöllurinn er lítill og ekki mikið pláss að bíða inni, en heitt og gott úti :-)

Hér er GMT +2 og tveggja tíma munur frá Íslandi.

Hótel - Tékk inn

Innritun á hótelinu á að ganga hratt fyrir sig.  ATH að það þarf að gefa upp kreditkortanúmer fyrir hvert herbergi við innritun til tryggingar og til að hægt sé að skrifa á herbergið. Herbergin ættu að vera tilbúin og við við leitumst við að tékk inn gangi hratt fyrir sig.

Innifalið á hótelinu er morgunverður, wifi, borgarskattur og aðgengi að líkasmræktarsvæðinu.

Morgunverðarhlaðborð er í boði alla daga frá kl 06:30-10:30  - ATH nánar á hótelinu á staðnum.

Farastjórn - Lobbý Þjónusta

Óli Gísli s: 822 8283

Gunna Vala  s: 898 6307


Erum til taks í síma ef þess þarf.

Neyðarnúmer 

112 er neyðarnúmerið í Dubrovnik og Króatíu

 Heimför sunnudaginn 21.05.2023

Akstur út á völl kl 14:30

Rúturnar koma á hótelið  og fara með ykkur út á völl. Fylgist með á síðunni hér ef að flugtímar breytast. Fararstjórar munu líka koma upplýsingum áfram til allra ef að breytingar verða.

ATH Tékk út:  fyrir kl 12 - hægt að geyma farangur á hótelinu fram að brottför.

Heimflug 21.05.2023 

21.05.2023 - Brottför frá Dubrovnik kl. 17:00, áætluð lending í Keflavík er kl 20:40
Flugnúmer ENT502 
Veitingasala um borð, en gott að hafa varann á og taka smá nesti með sér.


ATH engin grímuskylda er um borð

Flug 

Flug fram og til baka með leiguflugi Tripical/Enterair Innifalin 1 innrituð taska 15 kg og 5 kg handfarangur 
(mjög mikilvægt af fara ekki yfir í kílóum)

ATH engir flugmiðar eru gefnir út þar sem þetta er leiguflug en innritun er á flugvellinum í Dubrovnik

Tékk inn byrjar 2,5 klt fyrir brottför og lokar 45 mín fyrir brottför. 

Hvað er hægt að gera í Dubrovnik


Farðu í Game of Thrones skoðunarferð
Í borginni eru fjölmargar byggingar sem vert er að skoða að utan og innan.
Margar fallegar gönguleiðir með einstakt útsýni, eins og t.d. borgarmúrinn, hægt að ganga hringinn
Taktu kláf upp í fjallið fyrir ofan borgina og njóttu útsýnisins
Farðu í skoðunarferð um eyjarnar og baðaðu þig í tærasta sjó Evrópu
Slakaðu á í sólbaði og fáðu þér einn ískaldann

Nytsamar upplýsingar

Veitingastaðir

Dubrovnik: Við mælum við með Restaurant 360 þar sem setið er úti og horft yfir höfnina í gamla bænum. Ítalski staðurinn við Pile Gate, frábær matur og pizzur.
DUBRAVKA 1836 er með mjög góðan mat og skemmtilegt útsýni yfir gömlu höfnina.

Þeir sem vilja gera vel við sig þá mælir Michelin með þessum stöðum sjá HÉR

Alltaf er gott að bóka borð fyrirfram.  Og ef margir fara saman þá verðið helst að láta vita hvernig þið borgið og hverjir borga með korti.

Ekki gleyma að tipsa ef þið eruð ánægð, alengt er að fara upp í næsta tug.

Bílaleigubílar, hjól og vespur, já og bátaleiga

Bílaleigur, á ykkar hóteli er Concierge þjónusta sem hægt er að leita til með að bóka og leigja hjá þeim eins og vespur, hjól og rafmagnshjól og bíla.
Annars er hægt að leigja bíla á hjá þekktum alþjóðlegum bílaleigum.

Bátaleigur eru aðallega í frá Dubrovnik.

Alltaf er gott að bóka fyrirfram.

Gjaldmiðillinn - Kúna / Hraðbankar

Króatía tók upp Evru sem gjaldmiðil um áramót.

ATH Króatar eru mikið með pening á sér og gott er að hafa pening á sér, fyrir leigubíla, veitingastaði og fl.

Hraðbankar eru út um allt og taka mismikla þóknun.  Á flugvellinum er hraðbanki eða bankomat eins og Króatarnir segja, sem og á hótelinu er er einn ATM Euronet.

Klúbbar & barir 

Í Dubrvonik er mikið úrval af flottum næturklúbbum við mælum með heitasta og vinsælasta staðnum Revelin sem er í virkinu í gamla bænum.
Barir og pöbbar, fullt af þeim í gamla bænum.





Samgöngur

Það eru engar lestir eða sporvagnar en það er hægt að panta UBER og svo eru vatnataxar, venjulegir leigubílar og strætó.

Leigubíll - Strætó - ef þið farið inn í Dubrovnik farið út við Pile Gate það er inngangurinn á gamla bænum.

Gaman er að taka vatnataxa yfir til Dubrovnik 

Skemmtilegt að gera

Veistu ekki hvað þú átt að gera í Króatíu, finndu þér kósý einkaströnd og njóttu tærasta sjó í Evrópu.  
Eða skelltu þér í göngutúr í kringum hótelið það kemur á óvart, gætir endað að kíkja í búðir eða inni á kaffihúsi með heimamönnum.

Tungumála frasar

Takk! – Hvala (kvala)
Einn bjór takk! - Jedan odar molim
Hæ! Hallo! eða Zadravo
Afsakið! - Oprosti
Please! - Molim
Reikninginn, takk! - Račun, molim
Talar þú ensku? - GovoriŠ li engleski
Góðan daginn - Dobro jutro
Góða kvöldið - Dobra Večer

Verð hugmyndir EVR= ISK

Croatia hefur tekið upp evru frá áramótum og því ekki hægt að nota eldri króatískan gjaldmiðil. 

Veðurfar í MAÍ

Sumarið er að detta inn en veðrið er almennt gott, getur ringt annað slagið en hitinn fer hækkandi með hverjum deginum.  
Gott er að hafa góða yfirhöfn með sér, þó það séu hlýtt þá er getur verið napurt á kvöldin.
Fylgist með veðurspá á t.d. YR.NO


Hótel

*****

Þetta 5 stjörnu hótel er með stóra heilsulind sem státar af innisundlaug sem er opin allan ársins hring og útisundlaugar sem eru opnar hluta ársins og eru með víðáttumikið sjávarútsýni. Það er í 15 mínútna göngufjarlægð frá gamla bæ Dubrovnik.

Öll herbergin á Rixos Libertas Dubrovnik bjóða upp á loftkælingu, glæsileg og nútímaleg húsgögn, flatskjá, ókeypis WiFi og stórt baðherbergi.

Rixos Premium Dubrovnik er með 3 bari og 3 veitingastaði og býður upp á ljúffenga matarupplifun frá alþjóðlegri matargerð. Gestir geta smakkað einstaka teppanyaki-sérrétti á Umi Teppanyaki Restaurant eða notið sjávarrétta af matseðlum á Libertas Fish Restaurant. Á sportbarnum geta gestir drukkið áfenga drykki á meðan þeir njóta útsýnisins yfir Adríahafið.

Heilsulindin er á tveimur hæðum og státar af tyrknesku baði, inni- og útisundlaug sem og fjölmörgum endurnærandi meðferðasvæðum.

Hótelið fær heildareinkunina 9,3 og 9,5
fyrir staðsetningu á booking.com