í Berlín
21.-24.04.2022

Berlín er borgin sem hefur allt, hvort sem það eru menningar-viðburðir, sýningar, tónlist, kvikmynda-hátíðir, arkitektúr, stríðsminjar, það finna allir eitthvað að sjá og gera við sitt hæfi. 

Borgin er suðupottur af menningu og listum og hún státar líka af fjörugu næturlífi. Berlín er þekkt fyrir stórbrotna sögu og gamlar byggingar ásamt því að vera mjög framalega í nútíma byggingarstíl og list. Á kaldastríðsárunum var borgin tvískipt, í austur og vesturhluta. Í dag má sjá leifar af Berlínarmúrnum sem lá þvert í gegnum hana, ásamt öðrum kennileitum sem sýna hve borgarhlutarnir voru í raun ólíkir. 
Berlínarborg man tímana tvenna og það er einstök upplifun að heimsækja þennan stórbrotna stað.
Kurfürstendamm eða Ku'damm er vinsæl verslunargata, af mörgum talin sú glæsilegasta í Evrópu. 
Í Berlín er auk þess hægt að skoða fjöldann allann af söfnum frá seinni heimsstyrjöldinni og upplifa spennuþrungna og dramatíska sögu Þjóðverja.

 Brottför - Fimmtudaginn 21.04. 2022
Nauðsynleg gögn:  Bólusetningarvottorð eða vottorð um fyrri sýkingu.
Ekki þarf að sýna neikvætt covid próf fyrir Berlín

Flug

Flug fram og til baka með Play, 1 innrituð taska 20 kg og 10kg handfarangur sem passar undir sætið


Hægt er að innrita sig í flugið á MyPLAY 24 klst fyrir brottför, það á einnig við heimförina.  Þá er hægt að breyta um sæti og eða bæta við farangri gegn greiðslu.  ATH stofna þarf aðgang til að geta tékkað sig inn annars er hægt að tékka sig inn á flugvellinum.

Notið íslenska stafi.

ATH einhverjir hnökrar geta komið upp þegar þið tékkið ykkur inn á netinu þar sem bókunin er hópabókun

Flug - 21.04.2022

Brottför frá Keflavík kl. 05:45, áætluð lending í Berlín BER kl. 11:25
Flugnúmer OG700

Um borð er sala á matvælu og drykkjum.

ATH grímuskylda um borð (gæti breyst)

Ekki er hægt að hlaða snjalltæki um borð!

Rúta á flugvellinum

2 rútur taka á móti hópnum og skutla okkur á hótelið.

Eftir töskuband er gengið út og þar er Sunneva með RM skilti, hinkrum eftir hópnum og göngum saman að rútunum.   

Hótel - Tékk inn

Marriott Berlin ***** - Innifalið er morgunverður, city tax og wifi.  

Tékk inn á hótelinu er kl 15:00 og áætlað er að við komum um kl 13 á hótelið.    Ef þið viljið bruna strax í bæinn þá getur hótelið geymt farangur ykkar og þið svo  tékkað ykkur  inn þegar þið komið aftur uppá hótel.  

Sýna þarf bólusetningarvottorð eða vottorð um fyrri sýkingu *þessi regla gæti hafa breyst 

Fararstjórn - Lobbý Þjónusta

Fararstjórar eru  Ásta og Sunneva 
Ásthildur Ólafsdóttir og Sunneva Guðjónsdóttir.

Sími: +354 8208991

Verðum í lobbý hótelsins alla daga kl 10:00 - 11:00 og 17:00-18:00

COVID - Grímuskylda

Endilega takið eina grímu með.  Ekki þarf að nota grímur á hótelinu.   Berlín er ennþá með einhverjar takmarkanir í einstaka tilfellum, á sjúkrahúsum, og í  almennings samgöngum  (leigubílar og lestar) og einstaka söfn.  
Til að komast inn í næturklúbba, bari, veitingastaði gæti þurft að sýna vottorð eða CovPass.

Nánar sjá HÉR

22.04. - 30 manns eru bókuð með Berlínum í ferðina Brot af því besta - brottför frá hótelinu kl 12

Munið að vera í góðum skóm það er gengið mikið

Ferðin tekur 2,5 klst

2 leiðsögumenn


Föstudagur -  22.04.


 19:00-01:00
Í aðal veislusal hótelsins Ballroom Berlin, staðsettur á 2.hæð (1.hæð samkv þýskum stöðlum)

Barinn ótakmarkaður frá kl 19:00 - 22:00
Innifaldir drykkir: Vatn, gos, bjór, hvít og rautt, Whiskey Cola, Gin & Tonic, Hugo og Moscow Mule, kaffi og te

Eftir kl 22:00 er hægt að versla drykki á barnum

Borðhald byrjar kl. 19:30
Fyrirfram ákveðinn matseðill hefur verið valinn fyrir hópinn. 

Rifin önd, Jerúsalem ætiþistlar, grillað sellerý
Kálfaasteik, villtur hvítlaukur, einiberjasafi, savoy grænkál, heslihnetur og karöflu dumplings
Gulrótarkaka, mandarínur og psitasíu ís

Vegan og grænmetisréttir 

Nokkur skemmtiatriði verða yfir borðhaldinu.

Skemmtið ykkur vel!






 Heimför sunnudaginn 24.04.2022

Hittingur í Lobbý - 08:50

Hittingur & tékk út, rútan leggur af stað 09:00 uppá flugvöll.  -Terminal 1

Passa að það tekur tíma að tékka sig út af hótelinu og gera upp, gott er að gera það kvöldinu áður.

Flug - 24.04.2022

Heimför sunnudaginn 24.apríl  frá Berlín kl. 12:10 og lent í Keflavík 14:00 
Flugnúmer OG701

Grímuskylda um borð (gæti breyst)

Flug 

Flug fram og til baka með PLAY, 1 innrituð taska 20 kg og 10kg handfarangur sem passar undir sætið.

Hægt er að innrita sig í flugið á MyPLAY 24 klst fyrir áætlaðan brottfarartíma.

Ekki hafa verið bókuð sæti fyrir hópinn, en allir fá samt úthlutað sæti.

Ekki er þörf á forskráningu fyrir eða við komuna til Íslands. Þá er ekki þörf á að framvísa vottorði við byrðingu eða við komuna.
Góða ferð.


Hvað er hægt að gera í Berlín


Brandenborgarhliðið - tákn borgarinnar og sameinaðs Þýskalands

Das Klo: Skrítni klósett upplifunar-barinn

Berlínarmúrinn og Check-point Charlie

Útvarpsturninn á Alexander Platz


Panoramapunkt Berlín, útsýnisstaður

Hjólatúr um Berlín með íslenskri leiðsögn

Nytsamar upplýsingar

Veitingastaðir

Fjöldi veitingastaða eru í göngufæri frá hótelinu, tyrkneskir, ítalskir, indverskir, japanskir, þýskir sem og góð grillhús.
Fyrir þá sem vija bara það besta klikkið HÉR
Vinsælar veitingakeðjur eru líka i göngufæri eins og Vapiano, Starbucks, McDonalds og Burger King.

Hjól og Rafskutlur

Skemmtilegur ferðamáti til að kynnast borginni. Hjólaleigur eru víða og mjög auðvelt er að leigja hjól.
Einnig eru rafskutlur út um allt.  Helstu rafskutluleigurnar eru Lime, Vio, Bird, Tier og Circ.

Hjólastígar eru út um allt og meðfram götunum og fylgja þarf almennum umferðarreglum.

Neyðarnúmer í Berlín

112 er neyðarnúmerið í Þýskalandi.

Klúbbar & barir í nágrenninu

Bricks - opnar kl 23
Þessir eru nýopnir og í göngufæri annars er Berlín stútfull af næturklúbbum og skemmtilegum börum. 

Uber & Taxi & U

Í Berlín er hægt að velja um ýmsan samgöngumáta, Uber eða Taxi. Uber er aðeins ódýrari, munið bara að hlaða niður Uber appinu áður.
S og U neðanjarðarlestarkerfið, frekar einfalt að nota

Skemmtilegt að gera

Veistu ekki hvað þú átt að gera í Berlín og ert búin/n að sjá öll minnismerkin og búinn að fara á Check Point Charlie safnið, þá gæti þessi síða hjálpað: 

Tungumála frasar

Takk! – Danke
Einn bjór takk! - Bitte ein Bier
Hæ! Hallo! eða Grüss Gott
Afsakið! - Entschuldigung
Please! -Bitte
Reikninginn, takk! Die Rechnung bitte.
Talar þú ensku? - Sprechen Sie Englisch (hér er þérað!)

Verð hugmyndir € = ISK

 Gengið er um 140kr vs 1€

Bjór 0,5l  4€ - 560 kr. (innlendur)
Cappuchino 3 €- 420kr. 
Gosdrykkur 0,33l - 2,3€ - 300 kr. 
Vatn 0,33l - 2 €  - 280 kr. 
Út að borða fyrir 2 - meðalverð 50€ = 7.000kr (með víni)

*heimild numbeo.com

Veðurfar í Apríl

Vorið er komið í Berlín, allt er byrjað að blómstra.  Meðalhiti apríl mánaðar eru um 10 gráður þó svo að hitinn geti farið alveg upp í 20 gráður.   En gott er að hafa góða yfirhöfn með sér, þó það séu hlýtt þá er getur verið kalt vegna rakans.  
Búast má við 16-20 gráðum yfir daginn helgina 21.-24.04.2022


Hótel

*****
Inge-Beisheim-Platz 1, 10785 Berlin
s: +49 30 220000


Þetta 5* hótel í Berlín er í 10 mínútna göngufjarlægð frá Brandenborgarhliðinu og í 100 metra fjarlægð frá almenningsgarðinum Tiergarten. Það býður upp á glæsileg herbergi og líkamsræktarstöð sem er opin allan sólarhringinn.
Herbergin eru rúmgóð og loftkæld, með fallegum húsgögnum, gervihnattasjónvarpi og öryggishólfi fyrir fartölvu. Baðsloppar og inniskór eru til staðar og herbergisþjónusta er í boði allan sólarhringinn.

Amerískir sérréttir eru framreiddir á Midtown Grill á Berlin Marriott en þar er opið eldhús og sumarverönd. Veitingastaðurinn The Big Dog framreiðir ljúffengar pylsur, flottar franskar og hressandi drykki. Í setustofunni í móttökunni geta gestir fengið sér fjölbreytt úrval af hressingu, drykkjum og kokteilum.

Potsdamer Platz-lestarstöðin er í 200 metra fjarlægð, en þaðan ganga U2-neðanjarðarlestir og S-Bahn-lestir.

Hótelið fær heildareinkunn 8,6 og 9,4 fyrir staðsetningu á booking.com

Innritun eftir kl 15 og útritun/check out fyrir kl 12:00

Morgunmatur á jarðhæð er kl 06:30 - 10:30 á virkum dögum og kl 07:00 - 11:00 um helgar.

* betri stofan er opin frá kl 06:00 til 23:00 alla daga, er staðsett á 10.hæð með miklu útsýni. Innifalið er morgunmatur (eingöngu í betri stofu), snakkmatur og léttir réttir (heitur,kaldur og sætur) yfir daginn og kvöld. Óáfengir drykkir og bjór og húsvín á kvöldin, frá kl 17:30.