í Berlín
28.04.-01.05.2022

Berlín er borgin sem hefur allt, hvort sem það eru menningar-viðburðir, sýningar, tónlist, kvikmynda-hátíðir, arkitektúr, stríðsminjar, það finna allir eitthvað að sjá og gera við sitt hæfi. 

Borgin er suðupottur af menningu og listum og hún státar líka af fjörugu næturlífi. Berlín er þekkt fyrir stórbrotna sögu og gamlar byggingar ásamt því að vera mjög framalega í nútíma byggingarstíl og list. Á kaldastríðsárunum var borgin tvískipt, í austur og vesturhluta. Í dag má sjá leifar af Berlínarmúrnum sem lá þvert í gegnum hana, ásamt öðrum kennileitum sem sýna hve borgarhlutarnir voru í raun ólíkir. 
Berlínarborg man tímana tvenna og það er einstök upplifun að heimsækja þennan stórbrotna stað.
Kurfürstendamm eða Ku'damm er vinsæl verslunargata, af mörgum talin sú glæsilegasta í Evrópu. 
Í Berlín er auk þess hægt að skoða fjöldann allann af söfnum frá seinni heimsstyrjöldinni og upplifa spennuþrungna og dramatíska sögu Þjóðverja.

 Brottför - Fimmtudaginn 28.04. 2022
Gott að hafa með.:  Bólusetningarvottorð eða vottorð um fyrri sýkingu.
Ekki þarf að sýna neikvætt covid próf fyrir Berlín

Flug

Flug fram og til baka með Icelandair, 1 innrituð taska 23 kg og 10kg handfarangur.

BÓKUNARNRÚMER: 4HQI9V 
Hægt er að innrita sig í flugið á www.icelandair.is 24 klst fyrir áætlaðan brottfarartíma, það á einnig við heimförina.  Þá er hægt að breyta um sæti og eða bæta við farangri gegn greiðslu.

Flug - 28.04.2022

Brottför frá Keflavík fimmtudaginn 28.apríl kl. 07:40, áætluð lending í Berlín  kl. 13:10
Flugnúmer FI528

Um borð er sala á matvælum og drykkjum, grímu-notkun er valkvæð.

Rúta á flugvellinum

Sunneva tekur á móti ykkur á flugvellinum, strax eftir töskuafhendingu verður hún með skilti og vísar ykkur í rútuna, sem heldur svo inn í Berlín, ca 20 mín

Hótel - Tékk inn

H10 Ku´Damm **** - Innifalið er morgunverður, city tax og wifi.  

Tékk inn á hótelinu er kl 15:00 og áætlað er að við komum um kl 14:30 á hótelið.   Ef þið viljið bruna strax í bæinn þá getur hótelið geymt farangur ykkar og tékkað ykkur svo inn þ egar þið komið aftur uppá hótel.  

Fararstjórn - Lobbý Þjónusta

Fararstjórinn er Sunneva Guðjónsdóttir

Sími: +49 17682277249

Verður í lobbý hótelsins alla daga kl 10:00 - 11:00 og 17:00-18:00


COVID - Grímuskylda

Einu takmarkanirnar í Berlín eru að er það skylda að vera með grímu í almenningssamgöngum og á sjúkrahúsum. Gott að hafa eina grímu með sér ef maður nýtir sér lestakerfið.

29.04. - Föstudagur

Sameiginlegur kvöldverður

19:00 - 23:30
Reinhards er eitt af þessum fallegur klassísku veitingastöðum í Berlín, við Kufürstendamm sem er ein aðalgatan.  Staðurinn er þekktur fyrir framúrskarandi mat, góða þjónustu og skemmtilegt umhverfi þar sem hægt er að fylgjast með einni líflegustu götu Þýskalands.

Lobbý hittingur kl 18:45 og við göngum saman 350m yfir á veitingastaðinn.  Borðhald byrjar kl19:00

Innifaldir drykkir:   Vatn, gos, bjór, hvít og rautt, kaffi og te

Fyrirfram ákveðinn matseðill hefur verið valinn fyrir hópinn. 

Burrata, tómatar, balsimico, og furuhnetur
Steak & Frites, 250g dry aged nautasteik, franskar, bernaise sósa og salat.
Eplastrudel með vanillusósu 

Njótið vel!


 Heimför sunnudaginn 01.05.2022

Hittingur í Lobbý - 11:00

Hittingur & tékk út, rútan leggur af stað 11:10 uppá flugvöll.  -Terminal 1

Passa að það tekur tíma að tékka sig út og gott er að gera það kvöldinu áður.

Flug - 01.05.2022

Heimför sunnudaginn 01.maí frá Berlín kl. 14:15 lent í Keflavík 15:50 
Flugnúmer FI529

Flug 

Flug fram og til baka með Icelandair, 1 innrituð taska 23 kg og 10kg handfarangur.

Hægt er að innrita sig í flugið á www.icelandair.i s 24 klst fyrir áætlaðan brottfarartíma.

Aðgerðum á landamærum Íslands vegna COVID-19 hefur verið aflétt með öllu frá og með 25. febrúar 2022.
Ekki er þörf á forskráningu fyrir eða við komuna til Íslands. Þá er ekki þörf á að framvísa vottorði við byrðingu eða við komuna.
Góða ferð.


Hvað er hægt að gera í Berlín


Brandenborgarhliðið - tákn borgarinnar og sameinaðs Þýskalands

Das Klo: Skrítni klósett upplifunar-barinn

Berlínarmúrinn og Check-point Charlie

Útvarpsturninn á Alexander Platz


Panoramapunkt Berlín, útsýnisstaður

Hjólatúr um Berlín með íslenskri leiðsögn

Nytsamar upplýsingar

Veitingastaðir

Fjöldi veitingastaða eru í göngufæri frá hótelinu, tyrkneskir, ítalskir, indverskir, japanskir, þýskir sem og góð grillhús.
Fyrir þá sem vija bara það besta klikkið HÉR
Vinsælar veitingakeðjur eru líka i göngufæri eins og Vapiano, Starbucks, McDonalds og Burger King.

Hjól og Rafskutlur

Skemmtilegur ferðamáti til að kynnast borginni. Hjólaleigur eru víða og mjög auðvelt er að leigja hjól.
Einnig eru rafskutlur út um allt.  Helstu rafskutluleigurnar eru Lime, Vio, Bird, Tier og Circ.  Hægt að kaupa dagspassa og fara um allt þar sem gatnkerfið er útbúið flottum hjólastígum.

Neyðarnúmer í Berlín

112 er neyðarnúmerið í Þýskalandi.

Klúbbar & barir í nágrenninu

Þessir eru nýopnir og í göngufæri annars er Berlín stútfull af næturklúbbum og skemmtilegum börum. 

Uber & Taxi & Lestir

Í Berlín er hægt að velja um ýmsan samgöngumáta, Uber eða Taxi. Uber er aðeins ódýrari, munið bara að hlaða niður Uber appinu áður.
U og S Bahn - neðanjarðar-lestarkerfið, frekar einfalt að nota

Skemmtilegt að gera

Veistu ekki hvað þú átt að gera í Berlín og ert búin/n að sjá öll minnismerkin og búinn að fara á Check Point Charlie safnið, þá gæti þessi síða hjálpað: 

Tungumála frasar

Takk! – Danke
Einn bjór takk! - Bitte ein Bier
Hæ! Hallo! eða Grüss Gott
Afsakið! - Entschuldigung
Please! -Bitte
Reikninginn, takk! Die Rechnung bitte.
Talar þú ensku? - Sprechen Sie Englisch (hér er þérað!)

Verð hugmyndir € = ISK

 Gengið er um 145kr vs 1€

Bjór 0,5l  4€ - 580 kr. (innlendur)
Cappuchino 3 €- 435kr. 
Gosdrykkur 0,33l - 2,3€ - 330 kr. 
Vatn 0,33l - 2 €  - 290 kr. 
Út að borða fyrir 2 - meðalverð 50€ = 7.300kr (með víni)

*heimild numbeo.com

Veðurfar í Apríl

Meðalhiti  apríl mánaðar er um 12 gráður en gott er að hafa góða yfirhöfn með sér, þó það sé hlýtt þá getur verð pínu kalt á kvöldin.

Búast má við 16-19 gráðum yfir daginn, helgina 28.04.-01.05.´22


Hótel

****


Þetta hótel er í aðeins 200 metra fjarlægð frá verslunargötunni Kurfürstendamm og býður upp á ókeypis WiFi og heilsulind og líkamsrækt á staðnum. Herbergin eru hljóðeinangruð, nýtískuleg með helstu þægindi og fallega hönnun.  Viðargólfum og stórum gluggum, öryggishólf fyrir fartölvu, flatskjár og sjálfvirkur hitastillir. 
Fjölbreytt úrval veitingastaða og bara eru í innan við 5 mínútna göngufjarlægð.

Kurfürstendamm-neðanjarðarlestarstöðin er í 1 mínútu göngufjarlægð frá H10 Berlin. Dýragarðurinn í Berlín og kirkjan Kaiser Wilhelm Memorial Church eru í 5 mínútna göngufjarlægð, sem og ótal verslanir, barir og veitingastaðir.
Barinn á hótelinu er opinn til miðnættis á virkum dögum og til kl 01 um helgar.  Hægt er að panta létta rétti frá 12.00 - 23:30 / Útisvæðið er því miður lokað þar sem það er verið að endurnýja það..

Morgunverður er frá 07:00 - 10:30 á virkum dögum og 07:30 - 11:00 um helgar.

Hótelið fær heildareinkunn 8,4 og 9,4 fyrir staðsetningu á booking.com