
í Prag 26.-29.05.2022
Rómuð fyrir magnaðar hallarbyggingar, kirkjur brýr og torg, sín breiðu stræti og þröngu mystísku göngugötur. Stórborgin Prag rekur sögu sína aftur til 9. aldar og er í heild sinni eitt stórkostlegt listaverk!
Prag slapp nánast heil frá sprengjuregni síðari heimsstyrjaldarinnar og því standa hinar fjölmörgu stórbyggingar þar í sinni upprunalegu mynd, sumar hverjar allt frá upphafsárum borgarinnar. Lengsta á Tékklands, Vltava
rennur um borgina miðja og skiptir henni í tvennt.
Gamli bærinn er hjartað í sögulegum kjarna Prag og þar í kring má finna tignarlegar Barokkhallir og gotneskar kirkjur. Þar er einnig hin mjög svo merkilega Stjörnfræðiklukka (Astronomical Clock) sem byggð var á miðöldum, og Charles brúin frá 14. öld.
Hér er sannarlega ekki aðeins boðið upp á augnakonfekt hvert sem litið er. Prag er þrátt fyrir aldurinn full af lífi, og næturnar einkennast af gleði og gáska. Tékkar eru þekktir fyrir bjórgerð, en auk þess eru snafsar af margvíslegu tagi afar vinsælir. Þjóðlegir réttir einkennast aðallega af kjöti og matarmiklum súpum. Rétt er að benda á að tékkneskur "burger" er ekki endilega það sama og við eigum að venjast, heldur nokkurs konar snitsel, stundum úr fiski, stundum kjöti og umvafið raspi. Hina klassísku borgara má þó auðvitað finna víða.
Brottför fimmtudaginn 26.maí
Flug
Flug fram og til baka með Play, 1 innrituð taska 20 kg og 10kg handfarangur sem passar undir sætið
-
ATH á staðfestingunni ykkar stendur að það er 1 innrituð taska innifalin, en það gæti verið óljóst inni á ykkar síðum. En allir eru með eina innritaða tösku innifalda og allir eru með sæti en það sést ekki hvaða nema 24klst fyrir brottför.
Sjá hér: Farangursreglur Play
Hægt er að innrita sig í flugið á MyPLAY 24 klst fyrir
brottför, það á einnig við heimförina. Þá er hægt að breyta um sæti og eða bæta við farangri gegn greiðslu. ATH stofna þarf aðgang til að geta tékkað sig inn annars er hægt að tékka sig inn á flugvellinum og breyta sæti án gjalds.
ATH einhverjir hnökrar geta komið upp þegar þið tékkið ykkur inn á netinu þar sem bókunin er hópabókun en hjón eru í 99% saman í bókun og saman í sætum ef ekki er hægt að laga það í tékk in í KEF ef ekki þá í flugvélinni.
Flug - 26.05.2022
Brottför frá Keflavík kl. 15:00 áætluð lending í Prag kl 20:55
Flugnúmer OG534
Um borð er sala á matvælum og drykkjum.
Ekki er hægt að hlaða snjalltæki um borð!
Rúta á flugvellinum
Rúta tekur á móti ykkur og skutlar á hótelið eltið Óla Gísla.
Ekki þarf að vera með grímu í rútunni á hótelið.
Hótel - Tékk inn / út
Radisson Blu Hotel Prague ***** - Innifalið er morgunverður, city tax og wifi.
ATH sýna þarf vegabréf við innritun.
Athugði á heimferðardegi þarf að tékka sig út í stíðasta lagi kl 12 en hótelið getur geymt töskurnar. Brottför á sunnudaginn frá hótelinu er kl 19:00.
Sjá morgunverðurtímann undir hótel-lýsingunni.
Fararstjórn - Lobbý Þjónusta

Óli Gísli Sími 822 8283
Verð í lobbý hótelsins alla daga kl 10:00 - 11:00 og 17:00-18:00
COVID - Grímur
Endilega takið eina grímu með.
Ekki þarf að nota grímur á hótelinu.
Prag er ennþá með einhverjar takmarkanir í einstaka tilfellum, á sjúkrahúsum, og og heilsugæslum (FFP2 grímur).
Laugardagur 28.05.
Sameiginlegur kvöldverður
19:00 - 00:00
Í einum af veislusölum hótelsins, Authentic II +III, staðsett á jarðhæðinni, frá móttökunni er farið til hægri inn þar sem salurinn er
Opinn bar kl 19:30 - 22:30
Innifaldir drykkir: Vatn, gos, innlendur bjór, hvít og rautt.
19:00
Fordrykkur
Kvöldverður hefst kl. 19:30
Fyrirfram ákveðinn matseðill hefur verið valinn fyrir hópinn.
Forréttur: Marinerað og ristað miðjarjarhafsgrænmeti, salat og feta ostur
Aðalréttir:
18 manns með kálfasteik
7 með kjúkling
4 með lax
Eftirréttur: Súkkulaði "Terrine" með kirsuberja compote
Drykkir eru innifaldir til kl 22:30 eftir það eru þeir til sölu.
Skemmtið ykkur vel!
Heimför sunnudaginn 29.05.
Hittingur í Lobbý - 18:50
Rútan leggur af stað 19:00 uppá flugvöll.
Ekki þarf að nota grímu í rútunni.
Munið tékk út er í síðasta lagi kl 12 en hótelið getur geymt töskurnar ykkar fram að brottför.
Flug -Sunnudaginn 29.05.
Heimför sunnudaginn 29.05. frá Prag kl. 21:55 og lent í Keflavík 00:10
Flugnúmer OG535
Flug
Flug fram og til baka með PLAY, 1 innrituð taska 20 kg og 10kg handfarangur sem passar undir sætið.
Hægt er að innrita sig í flugið á MyPLAY 24 klst fyrir áætlaðan brottfarartíma.
Allir eru með sæti, ef maður vill breyta þá kostar það ef maður innritar sig fyrirfram en kostar ekkert á flugvelinnum ef maður innritar sig þar.
Hvað er hægt að gera í Prag
Prag kastalinn
er sá elsti í heimi skv. Heimsmetabók Guiness
Prague Dancing House
er ótrúleg bygging sem hiklaust má mæla með
Fyrir spennuþyrsta er mikið úrval af Escape Rooms í borginni, einna vinsælast er Puzzle Room Prague
Strahov klaustrið
stendur á hæð einni í borginni, stútfullt af sögu og gersemum
Josefov
gyðingahverfið er afar áhugavert
Alls kyns vín- og matarsmakk ferðir má finna hér og þar um borgina
Nytsamar upplýsingar
Veitingastaðir
Fjöldi veitingastaða eru í göngufæri frá hótelinu, sem og góð grillhús og aðrir alþjóðlegir veitingastaðir Asískir, Indverskir, Kóreskir, Ítalskir, Japanskir og fl.
ATH það er mikið um að vera þar sem það er allt nýopnað aftur og allir staðir fullir. Gott að bóka fyrirfram.
Mælum með stöðum rétt hjá hótelinu eins og Gran Fierro / LEVITATE
Aðrir staðir í Prag sem við mælum með:
Cerveny Jelen
- Tékkneskur, steik og microbrewery
K the Two Brothers
- besti indverski
SsSaZu
- frábær asískur, geggjuð stemmning
Vinsælar veitingakeðjur eru líka um alla borg eins og Vapiano, McDonalds og Burger King.
Hjól og Rafskutlur
Skemmtilegur ferðamáti til að kynnast borginni. Hjólaleigur eru víða og mjög auðvelt er að leigja hjól.
Einnig eru rafskutlur út um allt. Helstu rafskutluleigurnar eru VOLT, BLINKEE og BeRider, gott að ná i öppin og kaupa sér dagpassa ef maður er svona hlaupahjóla-lingur.
Neyðarnúmer í Prag
112 er neyðarnúmerið í Tékklandi
Klúbbar & barir í nágrenninu
Margir klúbbar eru ný-opnir eftir covid lokun og algent er að starfsfólkið er enn með grímur en Prag er rík af næturklúbbum og skemmtilegum börum.
Næst hótelinu er The Londoners Music Bar
- flottur klúbbur 250m frá hótelinu. Svo um 600m frá hótelinu eru 3 götur sem eru með marga klúbba, Ve Smečkách gatan er ein þeirra.
Svo er alltaf gott að spyrja móttökuna þau vita hvað er núna best þar sem allt var að opna aftur eftir langan tíma.
Samgöngur
Í Prag er hægt að velja um ýmsan samgöngumáta, leigubílar, tramminn metro eða strætó. Þar eru líka Uber og Bolt.
Metroinn er mjög auðveldur annars er alltaf gott að fara gangandi.
Ef þið takið leigubíl, takið frá hótelinu eða Uber, annars passið að vita verðið fyrirfram.
Skemmtilegt að gera
Veistu ekki hvað þú átt að gera í Prag, farðu þá í bjór-spa það er eitt í sömu götu og hótelið kíktu hér
Tungumála frasar
Takk! – Dík
Einn bjór takk! - jedno pivo, díky
Hæ!- Ahoj! - alveg satt
Afsakið! - Promiňte
Please! - prosím
Reikninginn, takk! - Zaplatím
Talar þú ensku? - mluvíš anglicky
Góðan daginn - dobrý den
Góða kvöldið - dobrý večer
Verð hugmyndir CZK = ISK
Gengið er um 6kr = 1 CZK
Bjór 0,5l 48 CZK = 290 kr. (innlendur)
Cappuchino 61 CZK = 370kr.
Gosdrykkur 0,33l - 27 CZK = 160 kr.
Vatn 0,33l - 34 CZK = 1204 kr.
Út að borða fyrir 2 - meðalverð 950 CZK = 5.700kr (með víni)
*heimild numbeo.com
Veðurfar í Maí
Sumarið er að detta í hús, orðið ansi hlýtt á daginn en það er samt gott að hafa góða yfirhöfn með sér, þó það sé heitt á daginn þá er getur verið kalt á kvöldin vegna rakans.
Búast má við 19-24 gráðum yfir daginn helgina 26.-29.05.
Hótel
*****Zitna 561/8 Prague 120 00S: +420 225 999 999
Radisson Blu Hotel Prague er staðsett á milli gamla og nýja miðbæjarins í Prag, 300 metrum frá Wenceslas-torgi og í 2 mínútna göngufjarlægð frá Karlovo namesti-neðanjarðarlestarstöðinni. Hótelið býður upp á veitingastað og líkamsræktarstöð. Hótelið er í 4 samliggjandi sögulegum byggingum. Hótelið var mikið endurnýjað árið 2019 þar sem öll almenningssvæði, herbergi og svítur, veitingastaður, bar og fundarherbergi hafa verið endurnýjuð að fullu.
Herbergin eru rúmgóð og fallega innréttuð þau eru með setusvæði, flatskjásjónvarpi með gervihnattarásum, minibar, ókeypis te/kaffiaðstöðu ásamt baðherbergi með ókeypis snyrtivörum og hárþurrku. 24-tíma herbergisþjónusta er einnig í boði.
Veitingastaðurinn á staðnum er nýtískulegur og framreiðir alþjóðlega nútímalega matargerð með tékknesku ívafi með fersku árstíðabundnu hráefni. Gestir geta notið góðra drykkja og útsýnis af barnum.
Ókeypis háhraða-Wi-Fi er í boði á öllum almenningssvæðum sem og herbergjum og svítum.
Morgunverður á virkum dögum 06:30 -10:30 og 07:00 - 11:00 um helgar.
Hótelið fær heildareinkunina 8,6 og 8,7 fyrir staðsetningu.