Landmótun 
í 
Bilbao
06.-09.10.2022

Í Bilbao blandast nútíð og fortíð svo skemmtilega saman að borgin hefur oftar en einu sinni hlotið verðlaun fyrir hönnun sína og skipulag. Sannarlega ein af áhugaverðustu borgum Spánar.

Borgin Bilbao er staðsett á norðurhluta Spánar, 16 km frá hafi, með um 350.000 íbúa. Innfæddir nefna hana oft holuna (botxo), sem stafar af staðsetningu hennar í miðju tígurlegs fjallagarðs sem umvefur hana með sínum grænu fallegu hlíðum. Þótt þar finnist menjar allt frá 11. öld er aldur hennar rakinn til 14. aldar og þá hófst hennar blómaskeið. Gamli bærinn er dásamlegur minnisvarði þess tíma og þar er ánægjulegt að spássera hinar svokölluðu ,,Sjö götur“ (Las 7 Calles) og uppgötva fornar helgimyndir og byggingar. Þá er Bilbao lifandi sönnun þess að matur er list. Úrvalið af veitingastöðum,  allt frá litlum götustöðum til fínni veitingahúsa er enda-
laust, og rétt að benda á að fjöldi Michelin stjörnustaða er hér með því mesta í heimi.
Ein af stærri rósum borgarinnar er Guggenheim safnið sem opnað var 1997. Í kjölfarið var lagður metnaður í byltingarkenndan og sérstakan byggingarstíl sem sjá má í mörgum risabyggingum sem hannaðar eru af þekktustu arkitektum heimsins. En Bilbao eru auk þess mjög græn borg, með mikið af yndislegum útisvæðum, eins og garðinn Doña Casilda de Iturrizar sem er tilvalinn til að slaka á og njóta náttúru og afslappandi umhverfis. Bilbao er þannig einstök blanda af gömlu og nýju, rólegheitum og líflegri borgarstemmingu. 

Brottför 06.október


Flug

Flug fram og til baka með leiguflugi Tripical/Smartwings.   Innifalin 1 innrituð taska 20 kg og 5 kg handfarangur 

Það er samloka, gos/vatn og kaffi í boði í fluginu. Hægt er að kaupa bjór og léttvín um borð í vélinni. Það er ekki snakk til sölu um borð. 
Það má ekki opna neitt með hnetum um borð í vélinni vegna hnetuofnæmis.

ATH engir flugmiðar eru gefnir út þar sem þetta er leiguflug og  innritun er einungis í Keflavík 

Tékk inn byrjar 2,5 klt fyrir brottför og lokar 45 mín fyrir brottför. Sama á við um heimflugið.  Einungis þarf að sýna vegabréf.  Starfsmaður Tripical er við innritun ef upp koma vandamál.

 Flug - 06.10.2022

Brottför frá Keflavík kl. 10:00, áætluð lending í Bilbao er kl 16:00   

Flugnúmer QS4312 / Flugtími áætlaður 3,5 klt

ATH engin grímuskylda er um borð

Ekki er hægt að hlaða snjalltæki um borð!


Rúta á flugvellinum

1 rúta taka skutla ykkur á hótelið, rútuan er merkt Landmótun.  Tekur rétt um 15-20 mín.

Eftir töskubandið er gengið út um aðalútganginn og þar fyrir utan eru rúturnar.   Flugvöllurinn er lítill og ekki mikið pláss að bíða inni, en heitt og gott úti :-)

Ekki þarf að vera með grímu í rútunni eða á hótelinu.

Hér er GMT +2 og tveggja tíma munur.

Hótel - Tékk inn

 Innritun á hótelinu gæti tekið smá tíma en ætti samt að ganga hratt fyrir sig.

Innifalið á hótelinu er morgunverður, wifi, borgarskattur og aðgengi að líkasmræktarsvæðinu.

Morgunverðarhlaðborð er á jarðhæðinni í boði alla daga frá kl 07:00-11:00

Einnig er í boði gegn gjaldi a la carte morgunverður á barnum á jarðhæðinni frá kl 07:00-01:00


Neyðarþjónusta á staðnum 

Þóra s: 896 1996 - ef upp koma neyðartilfelli þá er hægt að bjalla í mig.

Neyðarnúmer í Bilbaó / Spánn

112 er neyðarnúmerið í Bilbaó og á Spáni

 Heimför sunnudaginn 09.10.2022

Brottför og tékk út

Rúturnar hafa ekki gott aðgengi að hótelinu því byrjum við á 1 rútu, fyllum hana og svo koll af kolli.

Brottför kl 14:00 uppá flugvöll.  

Tékk út:  fyrir kl 12 - hægt að geyma farangur á hótelinu 

Flug -Sunnudaginn 09.10.2022

Heimför sunnudaginn 09.10.2022 kl 16:45 og lent í Keflavík kl 18:50

Flugnúmer QS4314

ATh ekki hægt að hlaða síma um borð.

Flug 

Flug fram og til baka með leiguflugi Tripical/Smartwings   Innifalin 1 innrituð taska 20 kg og 5 kg handfarangur 

Það er samloka, gos/vatn og kaffi í boði í fluginu. Hægt er að kaupa bjór um borð í vélinni. Það er ekki snakk til sölu um borð. 
Það má ekki opna neitt með hnetum um borð í vélinni vegna hnetuofnæmis.

ATH engir flugmiðar eru gefnir út þar sem þetta er leiguflug, innritun er einungis á flugvellinum

Tékk inn byrjar 2 klt fyrir brottför og lokar 45 mín fyrir brottför. Sama á við um heimflugið. Einungis þarf að sýna vegabréf.

Hvað er hægt að gera í Bilbao?

Plaza Nueva og göturnar í kring eru fullar af annasömum börum sem bjóða upp á fræga pintxos: litla, ljúffenga bita af mat
Hinir töfrandi klettar Getxo eru í rúmlega 30 mínútna fjarlægð með neðanjarðarlestinni.
La Ribera markaðurinn er staðsettur í glæsilegri byggingu og þar geturðu látið elda fyrir þig hráefnið sem þú velur þér
S. James dómkirkjan er gullfalleg 14. aldar bygging sem er vel þess virði að skoða

Taktu Artxanda kláfferjuna upp í fjall, klassískur valkostur til að fá útsýni yfir Bilbao
Fótboltaáhugafólk ætti að heimsækja San Mamés Museum and Stadium

Nytsamar upplýsingar

Veitingastaðir

Fjöldi veitingastaða eru í göngufæri frá hótelinu, úrvalið er mikið en vinsælustu veitingahúsin bjóða upp á Pintxos sem er svipað og Tapas nema stærra.  Á þessum stöðum er treyst á fólkið að gera upp sinn reikning þegar farið er.

Mælum með þessum sem eru í göngufæri inn í gamla bænum Victor Jatetxea, El Txoko Berria og  baskneski staðurinn Restaurant Kasko

Michelin Guide mælir með þessum stöðum sjá HÉR

Vinsælar veitingakeðjur eru líka i göngufæri eins og  McDonalds og Burger King.

Hjól en engar rafskutlur

Hjólaleigur eru víða og en það er erfitt að leigja hjól nema að vera Spánverji, það þarf að skrá sig til að nota rauðu hjólin sem sjást víða , en það er ekki alveg búið að hugsa þetta fyrir ferðamennina en þið getið reynt:   https://www.bilbaobizi.bilbao.eus/en/bilbao/ 

En hótelið er einnig með nokkur hjól sem hægt er að leigja, mælum með því.

Neyðarnúmer í Bilbaó

112 er neyðarnúmerið í Bilbaó og á Spáni

Klúbbar & barir í nágrenninu

Bilbao er rík næturklúbbum og skemmtilegum börum.
Backstage er mjög vinsæll staður.
Kabaret er í göngufæri inn í gamla bæ. 

Svo er alltaf gott að spyrja móttökuna þau vita hvað er núna best þar sem allt var að opna aftur eftir langan tíma.

Samgöngur

Í Bilbaó er hægt að velja um ýmsan samgöngumáta, leigubíla, UBER,  neðanjarðarlestina eða tramminn.  

Neðanjarðarlestin er þægileg og auðveld í notkun og maður kemst hratt á milli staða annars er allt í göngufæri úr frá hótelinu.  Lestarmiðinn kostar um 1,5€ aðra leiðina.

Skemmtilegt að gera

Veistu ekki hvað þú átt að gera í Bilbao og þu ert búinna ð skoða Guggenheim safnið, kíktu þá á þessa síðu:  https://www.spain.info/en/destination/bilbao/ 

Tungumála frasar - Baskneska

Takk! – Eskerrik asko
Einn bjór takk! - Garagardo bat, mila esker
Hæ!- Kaixo
Afsakið! - Barkatu
Góðan daginn - Egun on!
Gott kvöld - Gabon!
Reikninginn, takk! - Kontua, mesedez
Talar þú ensku? - Ingelesez hitz egiten al duzu

Verð hugmyndir € = ISK

 Evrur eru á Spáni, gengið er um 140kr vs 1€

Bjór 0,5l  3€ - 420 kr. (innlendur)
Cappuchino 2 €- 280kr. 
Gosdrykkur 0,33l - 1,5€ - 210 kr. 
Vatn 0,33l - 1,3 €  - 190 kr. 
Út að borða fyrir 2 - meðalverð 40€ = 5.600kr (með víni)

*heimild numbeo.com

Veðurfar í Október

Haustið er að detta inn, en enn er hlýtt í veðri og getur hitinn farið upp í 25°C gráður.  En þó að það sé hlýtt yfir daginn þá er gott að hafa góða yfirhöfn með sér fyrir kvöldin.
Búast má við 17-24°C gráðum yfir daginn helgina 06.-09.10.2022


Hótelið

*****
Campo de Volantín Pasealekua, 11
+34 944454700

Barceló Bilbao Nervión býður upp á útsýni yfir ána Nervión í Bilbao en það er staðsett 250 metra frá Calatrava-brú og í 10 mínútna göngufjarlægð frá Guggenheim-safninu. Það býður upp á þægileg, nútímaleg herbergi með ókeypis Wi-Fi.
Í loftkældum herbergjum á Barceló Bilbao Nervión eru gervihnattasjónvarp, minibar og skrifborð. Á sérbaðherberginu er hárblásari.
Veitingastaðurinn Ibaizabal býður upp á baskneska og alþjóðlega rétti. Á B-Lounge er boðið upp á léttar veitingar og drykki.
Hótelið býður upp á sólarhringsmóttöku en það gefur gestum meiri sveigjanleika á meðan á dvöl þeirra stendur. Það er einnig hægt að leigja reiðhjól eða bíl í móttökunni.
Barceló Bilbao Nervión er staðsett við hliðina á heillandi gamla bæ Bilbao en þar er að finna fjölda pintxo-veitingastaða. Aðalverslunargöturnar eru í 5 mínútna göngufjarlægð.

Lestarstöð Bilbao er í um 10 mínútna göngufjarlægð frá Nervión.

Hótelið fær heildareinkunn 8,4 og 9,3 fyrir staðsetningu á booking.com

Morgunverðarhlaðborð er á jarðhæðinni í boði alla daga frá kl 07:00-11:00

Einnig er í boði gegn gjaldi a la carte morgunverður á barnum á jarðhæðinni frá kl 07:00-01:00