Hér finnurðu frábæra blöndu af gömlu og nyju. Hér er sjór, hér eru vötn, skógar og óspillt náttúra. Í Lettlandi eru margir smærri bæir en aðeins ein raunveruleg borg, Ríga, höfuðborg landsins.
Á yfirborðinu virðist Riga kannski nokkuð róleg borg, en ef dýpra er kafað má finna fjölbreytta bari, nútímalistasöfn og fleiri áhugaverða staði. Þá má ekki gleyma veitingastöðunum, sem eru margir hverjir á heimsmælikvarða, og bjóða upp á rétti á afar sanngjörnu verði. Borgin er því tilvalinn áfangastaður fyrir hvern þann sem hefur yndi af að njóta ljúffengra veitinga í fögru umhverfi.
Riga er mikil dekurborg, þekkt fyrir að umvefja þá sem sækja heilsulyndir og snyrtistofur borgarinnar í slökun og andlitsböðum, nuddi og notalegheitum á hinum ýmsu snyrtistofum borgarinnar að ógleymdri ESPA heilsulindinni á hótelinu.
Og svo er nauðsynlegt að prófa klassískt lettneskt bað! Á meðan aðrar þjóðir taka baðmenningu sína alvarlega, kemst engin á sama stað og Lettar, sem halda fast í fornar hefðir og saunaferðir eru þeim sem heilög stund. Svo má einnig finna skemmtileg bjórböð. Lettar eru mikil bjórþjóð, og láta sér ekki nægja að drekka hann sér til ánægju, því það er vinsælt að baða sig upp úr honum líka.
Brottför - Föstudaginn 21.10.2022Vinsamlega uppfærið þessa síðu reglulega þar sem hún er lifandi og upplýsingar geta breyst.
Flug
Flug fram og til baka með AirBaltic 1 innrituð taska 23 kg og handfarangurstaska (max 8kg - 55x40x23cm)
Allir eru með sæti, einungis þarf að greiða ef maður vill velja sér annað sæti. Einnig er hægt að breyta um sæti án gjalds á flugvellinum. Hópurinn eru allur saman í sætum í fluginu en hjón gætu þurft að hliðrða aðeins til til að fá sæti saman.
Hægt er að innrita sig í flugið hér 72klst fyrir brottför https://www.airbaltic.com/en-ZZ/index
Bókunarnúmerin eru MU3CHD / VIUSNW / VJ997D- ATH ekki nota íslenska stafi.
Mælum með að panta sér mat fyrirfram í fluginu.
Sama fyrir heimförina. Þá er hægt að breyta um sæti og eða bæta við farangri gegn greiðslu.
Flug - 21.10.2022
Brottför frá Keflavík föstudaginn 21.10. kl.15:05 áætluð lending í Riga kl. 21:45
Flugnúmer BT170.
Grímu-notkun um borð er valkvæð.
Vinsamlega Athugið að komin er upp 15 mín seinkunn á brottför, fylgist með á Isavia
vefnum varðandi frekari breytingar.
Tíminn í RIGA + 3
ATH tímamismunur milli Íslands og Lettlands eru +3 klukkustundir.
Rútur á flugvellinum
Fararstjóri fylgir ykkur að rútunum sem ekur ykkur á hótelið.
Rútan er líka beint fyrir utan, flugvöllurinn er lítill og auðvelt að sjá rútuna fyrir utan, hún er merkt ykkur.
Akstur til Riga tekur um 20 mínútur miðað við góða og greiða umferð.
Gisting
Radisson Blu Latvija Conference & Spa **** - Innifalið er morgunverður, city tax og wifi.
Morgunverður er alla daga frá kl 06:30 - 10:30 og til kl 11:00 um helgar.
Sjá neðar nánar um hótelið.
Engin grímuskylda er á hótelinu.
Tékk inn - tékk út
Tékk inn á hótelinu ætti að ganga hratt fyrir sig.
Tékk út fyrir kl 11 á mánudeginum, gerið upp herbergin ykkar fyrir brottför.
Farastjóri - Lobbý þjónusta

Óli Gísli
Sími: 8228283
Verð í lobbý hótelsins alla daga kl 10:00 - 11:00
Laugardagur 22.10.2022
19:00-01:00
Salur BETA 2 - 2 hæð
19:00
Kvöldverður
Fyrirfram ákveðinn matseðill hefur verið valinn fyrir hópinn.
Steiktur hörpudiskur, blómkáls púrra, súr epli brúnað smjör pancetta
Nautasteik, graskersmauk, fondant kartöflur, sveppir og árstíðarbundið grænmeti
Súkkulaðimús með dökku súkkulaði og heslihnetum, hunangs og karamellusósa
Drykkir 19:00-21:00
Vatn
Djús appelsínu og epla
Gos, Kók, Kók Zero, Sprite og Tonic
Lettneskur bjór
Hvítvín og rauðvín
Skemmtið ykkur vel!
Heimför mánudaginn 24.10.2022
Hittingur í Lobbý - 10:20
Hittingur í móttökunni & tékk út, rútan leggur af stað 10:30 uppá flugvöll.
Muna að tékka sig út af hótelinu tímanlega.
Flug - 24.10.2022
Heimför mánudaginn 24.10. kl 13:25 og lent í Keflavík 14:20
Flugnúmer BT169
Grímu-notkun um borð er valkvæð.
Flug
Flug fram og til baka með AirBaltic 1 innrituð taska 23 kg og handfarangurstaska (max 8kg - 55x40x23cm)
Hægt er að innrita sig í flugið hér 72klst fyrir brottför https://www.airbaltic.com/en-ZZ/index
Bókunarnúmerin eru MU3CHD / VIUSNW / VJ997D - ATH ekki nota íslenska stafi.
Hægt að breyta um sæti og eða bæta við farangri gegn greiðslu.
Hvað er hægt að gera í Riga
Art Nouveau safnið er ansi magnað
Smakkaðu Black Balsam drykkinn
Skelltu þér í andlitsbað eða nudd
Lettnesku böðin eru eftirminnileg reynsla
Hjólatúr í gamla bænum með leiðsögn
Nytsamar upplýsingar
Veitingastaðir
Riga er rík af frábærum veitingastöðum, ferskum og góðum mat.
Fjöldi veitingastaða eru í göngufæri frá hótelinu, sem og góð grillhús, gatan Dzirnauvu iela er full af veitingastöðum, sem og eru eðal staðir á Antonijas iela götunni.
ATH það er mikið um að vera í borginni og við mælum því með að bóka fyrirfram.
Mælum með Vincents / Chefs Corner
og Steiku Haoss - Einn þjóðlegur og öðruvísi Aragats og svo er líka Rivera sem er dýr en þess virði.
Lido staðirnir, ódýrir og nokkrir í borginni.
Michelin mælir með nokkrum sjá HÉR
Vinsælar veitingakeðjur eru líka i göngufæri eins og Vapiano, McDonalds og Burger King.
Hjól og Rafskutlur
Skemmtilegur ferðamáti til að kynnast borginni. Hjólaleigur eru víða og mjög auðvelt er að leigja hjól.
Einnig eru rafskutlur út um allt.
Helstu rafskutluleigurnar eru BOLT, RIDE og SKOK
Neyðarnúmer í Riga
112 er neyðarnúmerið í Lettlandi
Klúbbar & barir í nágrenninu
Daiquiri Riga - theater bar - Vieta wine bar.
Coyote Fly - First - næturklúbbarnir eru flottir
Riga er rík næturklúbbum og skemmtilegum börum.
Svo er alltaf gott að spyrja móttökuna þau vita hvað er núna best þar sem allt var að opna aftur eftir langan tíma.
Samgöngur
Í Riga er hægt að velja um ýmsan samgöngumáta, leigubílar, tramminn eða strætó. Það er ekki Uber en það er Bolt.
Hlaupahjólin eru út um allt og er ódýr ferðamáti.
Strætó-arnir eru skemmtilegir og auðveldir, annars er allt í göngufæri.
Skemmtilegt að gera / skotsvæði
Veistu ekki hvað þú átt að gera í Riga, kíktu á þessa síðu: https://www.latvia.travel/en/city/riga-8
Eða farið á skotsvæðið sjá nánar HÉR
Tungumála frasar
Takk! – Paldies
Einn bjór takk! - viens alus, paldies
Hæ!- Sveiki
Afsakið! - atvainojos
Please! - lūdzu
Reikninginn, takk! - Lūdzu, izsniedziet rēķinu
Talar þú ensku? - vai tu runā angliski
Verð hugmyndir € = ISK
Gengið er um 140kr vs 1€
Bjór 0,5l 4€ - 560 kr. (innlendur)
Cappuchino 3 €- 420kr.
Gosdrykkur 0,33l - 1,5€ - 210 kr.
Vatn 0,33l - 1,3 € - 190 kr.
Út að borða fyrir 2 - meðalverð 40€ = 5.600kr (með víni)
*heimild numbeo.com
Veðurfar í Október
Haustið er að detta inn, en hitinn heldur sér í krinum 10-12 gráðurnar helgina 21.-24.10.2022 En gott er að hafa góða yfirhöfn með sér, þó það séu plús gráður þá er getur verið kalt vegna rakans.
Hótel
****s: +371 67 772 222
Radisson Blu Latvija Conference & Spa Hotel er 4 stjörnu hótel í hjarta Riga og í göngufæri frá fallega gamla bænum.
Herbergin eru rúmgóð og með ókeypis WiFi. Öll herbergin eru með minibar og te- og kaffiaðstöðu. Hvert gistirými er með nútímalegt baðherbergi með snyrtivörum, hárþurrku og annaðhvort baðkar eða sturtu.
Á jarðhæðinni er vinsæll bar þar sem er hægt að fá kaffi og samlokur, hann er opinn frá kl 09.00 - 01:00 en eldhúsið til 23:00.
Á 26.hæð er Skyline barinn
sem er opinn frá kl 15:00-02:00 og laugardögum frá kl 12:00-02:00, þar geta gestir notið drykkja, léttra veitinga og þar er frábært útsýni yfir sjóndeildarhring borgarinnar.
Veitingastaðurinn Esplanade
sér um morgunverðinn, er með opið í hádeginu og á kvöldin til 22:30. Þar er boðið upp á alþjóðlega rétti fyrir alla.
Heilsulindin- og heilsumiðstöðin á staðnum, ESPA Riga, er með lúxushönnun, 18 metra sundlaug, gufuböð og eimböð og úrval af heilsulindarmeðferðum fyrir andlit og líkama.
Hótelið fær heildareinkunina 8,7 og 9,5 fyrir staðsetningu.