
til Sitges í október
28.-31.10. 2022
Aðeins í 35 km fjarlægð, suð-vestur af Barcelona, stendur hin líflega Sitges, með sínum girnilegu ströndum, eldheitu næturlífi og frábærum festivölum. Yndislegur staður!
Í þessum dásemdar smábæ er fjölbreytileikanum fagnað með dansi og tónlist. Íbúar leggja stolt sitt og metnað í að bjóða alla hjartanlega velkomna, hvaðan úr heiminum sem fólk kemur eða hver sem kynhneigð þess er. Hér allir eru vinir og áhyggjum og leiðindum er ekki hleypt inn á svæðið.
Litlar þröngar göturnar eru fullar af litlum búðum, veitingastöðum og börum þar sem auðveldlega má finna eitthvað við sitt hæfi, milli þess sem legið er á einni af 17 ströndum sem boðið er upp á.
Sitges er stundum nefnd festivalabærinn. Allt árið um kring eru einhverjar hátíðir í gangi. Þekktast er líklega Sitges Carnival, þar sem dans, skrautlegir búningar og sjóðheit suðræn stemming taka öll völd. Hér er líka árlega haldin alþjóðleg kvikmyndahátíð, kappaksturskeppnir, stórtónleikar, leiklistarhátíðir, ásamt ýmis konar minni hátíðum og listasýningum. Næturlífið er einstaklega fjörugt og gleðin óstöðvandi allt fram undir morgun.
Brottför - Föstudaginn 28.10.2022Vinsamlega uppfærið þessa síðu reglulega þar sem hún er lifandi og upplýsingar geta breyst.
Flug
Flug fram og til baka með Play, 1 innrituð taska 20 kg og 10kg handfarangur sem passar undir sætið
-
ATH á staðfestingunni ykkar stendur að það er 1 innrituð taska innifalin, en það gæti verið óljóst inni á ykkar síðum. En allir eru með eina innritaða tösku innifalda.
Sjá hér: Farangursreglur Play
Hægt er að innrita sig í flugið á MyPLAY 24 klst fyrir
brottför, það á einnig við heimförina. Þá er hægt að bóka sæti og eða bæta við farangri gegn greiðslu. ATH stofna þarf aðgang til að geta tékkað sig inn annars er hægt að tékka sig inn á flugvellinum og setja fólk saman í sæti.
ATH einhverjir hnökrar geta komið upp þegar þið tékkið ykkur inn á netinu þar sem bókunin er hópabókun en hjón eru saman í bókun og saman í sætum en til að tryggja það þarf að kaupa sæti ef maður vill ekki kaupa sæti þá þarf að tékka sig in í KEF ef það gengur ekki þá biðja flugþjóna um aðstoð eða
kollega að færa sig.
Flug - 28.10.2022
Brottför frá Keflavík kl. 15:00 áætluð lending í Barcelona kl 21:20
Flugnúmer OG614
Um borð er sala á matvælum og drykkjum.
Ekki er hægt að hlaða snjalltæki um borð!
Grímur eru valkvæðar.
Rúta á flugvellinum
Rúta tekur á móti ykkur og skutlar á hótelið eltið Ingibjörgu en hún er með ykkur í fluginu.
Ekki þarf að vera með grímu í rútunni á hótelið.
Hótel - Tékk inn / út
Hotel Calipolis **** - Innifalið er morgunverður, city tax og wifi.
Innritun ætti að ganga hratt fyrir sig þar sem við erum búin að senda vegabréfsnúmerið ykkar.
Athugði á heimferðardegi þarf að tékka sig út í stíðasta lagi kl 12 en hótelið getur geymt töskurnar. Brottför á sunnudaginn frá hótelinu er kl 18:00.
Morgunverður 06:30-10:30 alla daga á jarðhæðinni.
COVID - Grímur
Einungis er grímuskylda í almenningssamgöngum, og sjúkrahúsum. Vinsamlega notið gríumur í leigubílum og lestum/strætó.
29.10. - Hjólaferð kl 13:30 - 17:30 - 9 mannsMæting 13:30 og brottför frá KILI sjá HÉR Innifalið, rafknúði hjól, hjálmur, leiðsögn og vínsmökkun 2 tegFatnaður: sportlegurEkki innifalið: Þjórfé
30.10. - Dagsferð til Barcelona kl 09:30 - 17:00/18:00 - 21 mannsBrottför frá hótelinu.
Kvöldverður 29.10.
1.hæð El Mirador
19:00 - 22:00
Gassi Kling heldur fjörinu uppi
Fordrykkur kl 19:00
Kvöldverður byrjar kl 19:30
Matseðill
Túnfisks carpaccio, vatnsmelóna, sesam fræ og avocad krem, kirsuberja confit og burrata ostur.
Nautasteik, aspas, kartöflur með timian og sósugljáa
Stítrónu kaka og kaffi/te
Drykkir
Ótakmarkað gos, vatn, bjór, hvítvín og rauðvín. Kaffi og te
21:30-23:30/:00:00
SALA BRISA - á -1.hæð
Færum partýið niður, opinn bar til 23:30
(J.B. & Ballantines whisky, Bacardi rum, Smirnoff, vodka, Gordons gin, Beer, Wine, Soft drinks, Juices, Water, Fruit liqueurs
DJ Gassi Kling þeytir skífum
Ofnæmi og sérfæði eru skráð og fá þeir sinn matseðil miðað við skráningu.
Heimför mánuaginn 31.10.2022
Hittingur í Lobbý - 17:45
Rútan leggur af stað 18:00 uppá flugvöll.
Ekki þarf að nota grímu í rútunni.
Munið tékk út er í síðasta lagi kl 12 en hótelið getur geymt töskurnar ykkar fram að brottför.
Flug -Sunnudaginn 31.10.2022
Heimför sunnudaginn 31.10.2022 frá Barcelona kl. 21:50 og lent í Keflavík 01:35
Flugnúmer OG615
Flug
Flug fram og til baka með PLAY, 1 innrituð taska 20 kg og 10kg handfarangur sem passar undir sætið.
Hægt er að innrita sig í flugið á MyPLAY 24 klst fyrir áætlaðan brottfarartíma. Og kaupa sér óskasætin annars er hægt að innrita sig á flugvellinum til að passa upp á að hjón sitji saman.
Hvað er hægt að gera í Sitges
Saga bæjarins er merkileg og fullt af gönguferðum með leiðsögn í boði
17. aldar kirkja heilags Bartomeu stendur við ströndina og gaman að skoða
Vínsmökkunar hjólreiðatúr til vínbænda í næsta nágrenni
Barcelona er skammt frá og auðvelt að skella sér í dagsferð þangað með lest
Liggja og slaka á og tana og njóta
Gönguferð um bæinn, borða, drekka, versla, elska
Nytsamar upplýsingar
Veitingastaðir
Fjöldi veitingastaða eru í göngufæri frá hótelinu, sem og góð grillhús og aðrir alþjóðlegir veitingastaðir en vinsælustu veitingastaðirnir bjóða upp á Tapas og spænskan mat.
Við mælum með Casa Tecla
grillveitingastaður sem er í 10 mín göngufæri við hótelið.
Gastrobar Morelia
Sitges sem er líka í göngufæri og svo hinn hefðbundni tapas staður Bar El Caple hann er 850m frá hótelinu.
ATH það er mikið um að vera þar þar sem mikið er um ferðamenn í borginni og er því gott að bóka veitingastaðina fyrirfram.
Veitingahús sem Michelin mælir með er að finna HÉR
Vinsælar veitingakeðjur eru af skornum skammti en þær eru flestar inni í Barcelona.
Hjól og Rafskutlur
Hjólaleigur eru víða og mjög auðvelt er að leigja hjól.
Rafskutlur eru ekki enn komnar til Sitges en hægt að leigja svoleiðis inni í Barcelona. En í Sitges er hægt að leigja vespur.
Helstu rafskutluleigurnar eru eCooltra og LYNX gott að ná i öppin og kaupa sér dagpassa ef maður er svona hlaupahjóla-lingur.
Neyðarnúmer á Spáni
112 er neyðarnúmerið
Klúbbar & barir í nágrenninu
Sitges er rík af næturklúbbum og skemmtilegum börum. Þessir eru allir í göngufæri Bears Bar Sitges, Casablanka Cocktail Bar, Rich Monkey bar og Vertigo Dance bar.
Vinsæll klúbbur er Gin Tub og El piano.
Svo er alltaf gott að spyrja móttökuna þau vita sitthvað um hverfið sitt.
Samgöngur
Í Sitges er hægt að velja um ýmsan samgöngumáta, leigubílar, Uber, lestin eða strætó.
Til að fara inn í Barcelona þá fara lestirnar á 20 mín fresti og tekur tæpan klukkutíma að fara inn í borgina.
Lestarstöðin í Siges er 900m frá hótelinu.
Ef þið takið leigubíl, takið frá hótelinu eða notið Uber, annars passið að vita verðið fyrirfram.
Skemmtilegt að gera
Veistu ekki hvað þú átt að gera í Sitges kíktu þá á þessa síðu, kannski færðu góða hugmynd.
Tungumála frasar
Takk! – Gracias
Einn bjór takk! - una cerveza, gracias
Hæ!- Hola!
Afsakið! - Perdón
Please! - prosím
Reikninginn, takk! - El cheque por favor!
Talar þú ensku? - habla usted Inglé
Góðan daginn - Buenos días
Góða kvöldið - buenas noches
Verð hugmyndir EUR = ISK
Exchange rate is 141 ISK = 1 EUR
Beer 0,5l - 2,50 EUR
Beer 0,5l 2,50 EUR = 290 kr. (innlendur)
Cappuchino 61 CZK = 370kr.
Gosdrykkur 0,33l - 27 CZK = 160 kr.
Vatn 0,33l - 34 CZK = 1204 kr.
Út að borða fyrir 2 - meðalverð 950 CZK = 5.700kr (með víni)
*heimild numbeo.com
Veðurfar í September
Sumarið er ennþá hér og það er hlýtt yfir daginn en það er gott að hafa góða yfirhöfn með sér, þar sem er getur verið kalt á kvöldin.
Búast má við 20-25°C gráðum yfir daginn helgina 28.-31.10.2022
Hótel
****Av. Sofia, 2, 6, 08870 Sitges, BarcelonaS: +34 938 94 15 00
Calipolis er staðsett miðsvæðis í Sitges og við ströndina. Það býður upp á sólarhringsmóttöku, útisundlaug, líkamsræktarstöð, herbergi sem eru með loftkælingu og ókeypis WiFi.
Herbergin á Calipolis eru glæsileg og þau státa af flatskjá og sérbaðherbergi með hárþurrku.
Boðið er upp á ókeypis afnot af sundlaugarhandklæðum.
Veitingastaður hótelsins, Infinity Restaurant, býður upp á Miðjarðarhafsrétti við hliðina á sundlauginni.
Það er einnig bar til staðar og sumarverönd með útsýni yfir sjóinn og göngusvæðið.
Hægt er að leigja hjól í móttökunni.
Morgunverður á 1.hæð - 07:00 - 10:30
Bar Infinity á jarðhæðinni - 11:00 - 00:00
Veitingastaðurinn El Mirador 13:00 - 16:00 / 20:00 - 22:30
Heildareinkunn 8,4 og 9,6 fyrir staðsetningu á booking.com