í Berlín
14.-18.10.2022

Berlín er borgin sem hefur allt, hvort sem það eru menningar-viðburðir, sýningar, tónlist, kvikmynda-hátíðir, arkitektúr, stríðsminjar, það finna allir eitthvað að sjá og gera við sitt hæfi. 

Borgin er suðupottur af menningu og listum og hún státar líka af fjörugu næturlífi. Berlín er þekkt fyrir stórbrotna sögu og gamlar byggingar ásamt því að vera mjög framalega í nútíma byggingarstíl og list. Á kaldastríðsárunum var borgin tvískipt, í austur og vesturhluta. Í dag má sjá leifar af Berlínarmúrnum sem lá þvert í gegnum hana, ásamt öðrum kennileitum sem sýna hve borgarhlutarnir voru í raun ólíkir. 
Berlínarborg man tímana tvenna og það er einstök upplifun að heimsækja þennan stórbrotna stað.
Kurfürstendamm eða Ku'damm er vinsæl verslunargata, af mörgum talin sú glæsilegasta í Evrópu. 
Í Berlín er auk þess hægt að skoða fjöldann allann af söfnum frá seinni heimsstyrjöldinni og upplifa spennuþrungna og dramatíska sögu Þjóðverja.

Brottför föstudaginn 14. Október


Flug

Flug fram og til baka með Icelandair, 1 innrituð taska 23 kg og 10kg handfarangur.

BÓKUNARNRÚMER: 3TBOK7 - fyrir þá sem eru 14-18.10.2023

Hægt er að innrita sig í flugið á www.icelandair.is 24 klst fyrir áætlaðan brottfarartíma, það á einnig við heimförina. Þá er hægt að breyta um sæti og eða bæta við farangri gegn greiðslu.

Flug - 14.10.2022

Brottför frá Keflavík kl. 07:40 áætluð lending í Berlín BER kl. 13:10
Flugnúmer FF528

Um borð er sala á matvælu og drykkjum.
Hægt að hlaða snjalltæki um borð!

Rúta á flugvellinum

Sunneva tekur á móti ykkur á flugvellinum, strax eftir töskuafhendingu verður hún með skilti og vísar ykkur í rútuna, sem heldur svo inn í Berlín, ca 20 mín

Hótel - Tékk inn

The Westin Grand Berlin  ***** - Innifalið er morgunverður, city tax og wifi.  

Tékk inn á hótelinu er kl 15:00 en  áætlað er að við komum um kl 13 á hótelið. Ef þið viljið bruna strax í bæinn þá getur hótelið geymt farangur ykkar og þið svo  tékkað ykkur  inn þegar þið komið aftur uppá hótel.  

Fararstjórn - Lobbý Þjónusta

Fararstjórinn er Þóra Sævarsdóttir 
+354 896 1996 

Verður í lobbý hótelsins alla daga 
kl 10:00 - 11:00 og 17:00-18:00.


COVID - Grímur

Endilega takið eina grímu með. Ekki þarf að nota grímur á hótelinu. Berlín er ennþá með einhverjar takmarkanir í einstaka tilfellum, á sjúkrahús um, og í  almennings samgöngum (leigubílar og lestar) og einstaka söfn.  


  Laugardagur - 
15.10. 

19:30 til 01:00 
 Í einum af veislusal hótelsins "Ballsaal Salon Unter den Linden"  1.hæð frá móttökunni á jarhæð hægt að taka lyftuna upp eða tröppurnar og ganga til vinstri (sama hæð og morgunverðasalurinn).
 
19:30 - Fordrykkur
Freyðivín og óáfengt

Kvöldverður hefst kl. 20:15
Fyrir fram ákveðinn matseðill hefur verið valinn fyrir hópinn. Grænmetis og veganréttir fyrir þá sem áttu það pantað.

Matseðill

Young salad hearts
Caesar dressing, dried cherry tomatoes
croutons and parmesan chip
***
Cream soup of green peas
pecan nut
***
Poached beef filet
king oyster mushroom, oven tomato, 
celeriac potato mash
***
Pistachio crème, marinated cherries 
      dark chocolate ice cream


Drykkir eru innifaldir með kvöldverðinum hvítt/rautt, bjór og gos, kaffi, te og vatn frá 20:00 til 23:00 eftir það verður hægt að kaupa drykki á barnum.

Hægt verður að kaupa drykki á barnum eftir það.

Skemmtiatriði verður yfir borðhaldinu.

Skemmtið ykkur vel!

 Heimför Mánudaginn 17.10 - 6 pax

Hittingur í Lobbý - 11:00

Hittingur & tékk út, taxi leggur af stað 11:15 uppá flugvöll. -Terminal 1

Ekki þarf að nota grímu í leigubílnum.

Passa að það tekur tíma að tékka sig út af hótelinu og gera upp, g ott er að gera það kvöldinu áður  

Flug - Mánudaginn 17.10

Hittingur & tékk út, taxi leggur af stað 11:15 uppá flugvöll. - Terminal 1. Flugnúmer FI529 - Icelandair.

Passa að það tekur tíma að tékka sig út og gott er að gera það kvöldinu áður.

Flug 

Flug fram og til baka með Icelandair, 1 innrituð taska 23 kg og 10kg handfarangur.

Hægt er að innrita sig í flugið á www.icelandair.i s 24 klst fyrir áætlaðan brottfarartíma.

 Heimför Þriðjudaginn 18.10 - 44 pax

Hittingur í Lobbý - 11:00

Hittingur & tékk út, rútan leggur af stað 11:15 uppá flugvöll. -Terminal 1

Ekki þarf að nota grímu í rútunni.

Passa að það tekur tíma að tékka sig út af hótelinu og gera upp, g ott er að gera það kvöldinu áður  

Flug - Þriðjudaginn 18.10

Hittingur & tékk út, rútan leggur af stað 11:15 uppá flugvöll. - Terminal 1. Flugnúmer FI529 - Icelandair.

Passa að það tekur tíma að tékka sig út og gott er að gera það kvöldinu áður.

Flug 

Flug fram og til baka með Icelandair, 1 innrituð taska 23 kg og 10kg handfarangur.

Hægt er að innrita sig í flugið á www.icelandair.i s 24 klst fyrir áætlaðan brottfarartíma.

Ekki er þörf á forskráningu fyrir eða við komuna til Íslands. Þá er ekki þörf á að framvísa vottorði við byrðingu eða við komuna.

Góða ferð.



Hvað er hægt að gera í Berlín


Brandenborgarhliðið - tákn borgarinnar og sameinaðs Þýskalands

Das Klo: Skrítni klósett upplifunar-barinn

Berlínarmúrinn og Check-point Charlie
 
Sjónvarpsturninn á Alexander Platz


Panoramapunkt Berlín, útsýnisstaður

Hjólatúr um Berlín með íslenskri leiðsögn 

Nytsamar upplýsingar

Veitingastaðir

Fjöldi veitingastaða eru í göngufæri frá hótelinu, tyrkneskir, ítalskir, indverskir, japanskir, þýskir sem og góð grillhús. Alltaf gott að bóka fyrirfram.

Vinsælar veitingakeðjur eru líka i göngufæri eins og Vapiano, Starbucks, McDonalds og Burger King.

Michelin gefur sín meðmæi HÉR

Hjól og Rafskutlur

Skemmtilegur ferðamáti til að kynnast borginni og anda að sér borgarloftinu.
Hjólaleigur eru víða og mjög auðvelt er að leigja hjól. Einnig eru rafskutlur út um allt. Helstu rafskutluleigurnar eru Lime, Vio, Bird og Tier.

Hjólastígar eru um allt og meðfram götunum og fylgja þarf almennum umferðarreglum.

Neyðarnúmer í Berlín

112 er neyðarnúmerið í Þýskalandi.

Klúbbar & barir í nágrenninu

Bellboy á Mohrenstraße 30 og Augustine Bier Hall staðsettur á Gendarmen Markt. 
Þessir eru  í göngufæri annars er Berlín stútfull af næturklúbbum og skemmtilegum börum. 

Uber & Taxi & U

Í Berlín er hægt að velja um ýmsan samgöngumáta, Uber, Bolt eða Taxi. Uber er aðeins ódýrari en Taxi og Bolt ódýrast, munið bara að hlaða niður Uber/Bolt appinu. S og U eru lestarnar frekar einfalt að nota bæði í gegnum goole maps og hægt að spyrja farastjóra.

Skemmtilegt að gera

Veistu ekki hvað þú átt að gera í Berlín og ert búin/n að sjá öll minnismerkin og búinn að fara á Check Point Charlie safnið, þá gæti þessi síða hjálpað: 

Tungumála frasar

Takk! – Danke
Einn bjór takk! - Bitte ein Bier
Hæ! Hallo! eða Grüss Gott
Afsakið! - Entschuldigung
Please! -Bitte
Reikninginn, takk! Die Rechnung bitte.
Talar þú ensku? - Sprechen Sie Englisch (hér er þérað!)

Verð hugmyndir € = ISK

Gengið er um 141kr vs 1€

Bjór 0,5l 4€ - 560 kr. (innlendur)
Cappuchino 3 €- 420kr. 
Gosdrykkur 0,33l - 2,3€ - 300 kr. 
Vatn 0,33l - 2 € - 280 kr. 
Út að borða fyrir 2 - meðalverð 50€ = 7.000kr (með víni)

*heimild numbeo.com

Veðurfar í Október

Haustið er komið í Berlín. Meðalhiti Október mánaðar eru um 15-20 gráður. Gott er að hafa yfirhöfn með sér, þó það séu hlýtt á daginn þá getur verið kalt á kvöldin. 


Hótelið

*****
Friedrichstrasse 158-164, 10117 Berlin
S: +49 30-2027-0


Þetta 5* hótel á hinni sögufrægu Friedrichstrasse í Berlín býður upp á heilsulind, aðlaðandi garð og einstakt anddyri með stórum stiga. Brandenborgarhliðið er í 10 mínútna göngufjarlægð.

Westin Grand, glæsileg herbergi og svítur Berlínar eru með flatskjásjónvarpi og þægilegum rúmum. Nútímaleg baðherbergin eru með baðsloppa og inniskó sem eru með hárþurrku. Relish Restaurant & Bar býður upp á nútímalegan mat með frönskum og asískum áhrifum. Ríkulegt morgunverðarhlaðborð er í boði á veitingastaðnum Coelln á hverjum degi frá kl 06:30 - 10:30 á laug og sunnudögum er morgunmatur frá 07:00-11:00.

Barinn er  opinn frá 11:30-00:00.  Westin Spa & Fitnesslounge er með líkamsræktarstöð. Hægt er að bóka slakandi nudd og úrval af snyrtimeðferðum.

Französische Strasse neðanjarðarlestarstöðin er í 1 mínútu göngufjarlægð. 

Hótelið fær heildareinkunn 8,7 og 9,6 fyrir staðsetningu á booking.com