Til Dublin
07.-10.Október 2022

Dublinarbúar hafa getið sér góðan orðstír sem bráðfyndnir og dásamlegir gestgjafar og eru barirnir, tónlistin og frásagnarlistin óviðjafnanleg. 

Dublin er yfirfull af fyrsta flokks skemmtun á hverju horni, allt frá heimsbókmenntun til listaverka á heimsmælikvarða. 
Sögu Írlands er finna út um gervalla Dublin, frá stórfenglegum dómkirkjum til sögufrægra fangelsa, að ógleymdum töfrum Guinness brugghússins. Í borginni er að finna yfir 1000 ölknæpur. Margir barir bjóða upp á mat samhliða flæðandi Guinnes bjór og írsku viskíi. 
Sláinte! 
Gæddu þér á einhverjum af þjóðarréttum Íra eins og írsku boxty, colcannon eða champ? Þú munt kynnast kartöflum á nýjan hátt og í margvíslegum búningi, en sömuleiðis munt þú finna glæsilega veitingastaði sem bjóða upp á gómsæta dýrindisrétti beint frá býli. Ekki sleppa því að smakka sódabrauð sem er ostur. Eða fara á Temple Bar eða sjá strákana í Merry Ploughboys.



Brottför 07.október


Flug

Flug fram og til baka með Icelandair, innifalin innrituð taska allt að 23kg og handfarangur allt að 10kg,

Almenn sala er um borð matur, nammi, gos, vatn kaffi og áfengir drykkir.

Icelandair bókunarnr - 39V6SY

Tékk inn byrjar 2,5 klt fyrir brottför og lokar 45 mín fyrir brottför. Sama á við um heimflugið.  Einungis þarf að sýna vegabréf. 

 Flug - 07.10.2022

Brottför frá Keflavík föstudaginn 07.10. kl. 07:30 áætluð lending í Dublin er kl 11:05  

Flugnúmer FI416 / Flugtími áætlaður rúmir tæpir 2,5klt

ATH engin grímuskylda er um borð

Rúta á flugvellinum

Áslaug tekur á móti ykkur í komusalnum og fer með ykkur í rútuna sem skutlar ykkur á hótelið,  rútan er merkt S4S.  Tekur rétt um 30 mín að keyra inn í bæ.

Ekki þarf að vera með grímu í rútunni eða á hótelinu.

Hér er GMT +1 og klukkutíma munur á Íslandi og Írlandi.

Hótel - Tékk inn

Innritun á hótelinu byrjar ekki fyrr en kl 16:00 - gæti samt verið að einhver herbrgi eru tilbúin.  Annars er bara að geyma töskurnar á hótelinu og skunda af stað í bæinn.

Innifalið á hótelinu er morgunverður, wifi og borgarskattur.

Morgunverðarhlaðborð er á jarðhæðinni í boði alla daga frá kl 07:00-10:00 og um helgar 07:30-10:30

Farastjóri

Áslaug Hersteinsdóttir 

Sími 785 9887

Verð í lobbý hótelsins alla daga kl 10:00 - 11:00 og 17:00-18:00

Laugardagur 08.10.


Írsk kvöldskemmtun eins og hún gerist best.

18:00
Rúta sækir hópinn á Westmoreland St (aircoach stop at the top of the road) sjá leiðina HÉR   
Rútan ekur með ykkur út úr bænum í ca 25-30 mín.

Kvöldverður frá 18:30 - Showið byrjar kl 20:00 og er tilkl 22:00 þá ekur rútan til baka.
Þið veljið á staðnum af þessum matseðli:

Forréttir:
Goat’s cheese 
Bluebell Falls honey, thyme & garlic goats cheese, pickled baby beets, dressed organic mesculan, sourdough croute.
Chèvre - Ziegenkäse - Formaggio di capra


Home-made seafood chowder 
shellfish and seafood in a rich creamy velouté, fresh herbs, traditional Irish brown bread.
Velouté de poissons et fruits de mer - Cremige Suppe mit fisch und meeresfrüchten -
Zuppa cremosa di pesce e frutti di mare


Root vegetable soup 
served with traditional Irish brown bread.
Soupe de Légumes - Gemüsesuppe - Zuppa di verdura


Aðalréttir:
Tender shank of Wicklow lamb
slow cooked in a rich lamb stock with a red wine and rosemary jus
Jarret d’agneau - Lammhüfte – Stinco di agnello


Fillet of Irish sea trout 
(served off the bone), with poached asparagus 
and a white wine & lemon butter sauce
Poisson:Truite - Fisch: Forelle - Pesce:Trota


Supreme of free range Limerick chicken 
served with an Irish herb potato cake, sauce Florentine, cherry tomato
  Suprème de poulet - Hähnchenbrustfillet - Involtini petto di pollo

  
Tender Irish Angus beef braised in Guinness 
served with a root vegetable & rosemary jus
Boeuf braise à la Guinness - Rindfleisch in Guinness geschmort - Manzo brasato in Guinness

 Eftirréttir 
Irish Bramley apple pie with cinnamon anglaise
Tarte aux pommes – Apfelkuchen – Torte di mele

served with tea or coffee

Skemmtið ykkur vel!

 Heimför mánudaginn 10.10.2022

Brottför og tékk út

Brottför kl 09:15 uppá flugvöll.  

Tékk út:  klárið að gera upp herbergin ykkar, líka gott að gera það kvöldinu áður.

Flug -Mánudaginn 10.10.

Heimflug  kl 12:15 og lent í Keflavík kl 14:00

Flugnúmer FI417

Flug 

Flug fram og til baka með Icelandair, innifalin innrituð taska allt að 23kg og handfarangur allt að 10kg,

Almenn sala er um borð matur, nammi, gos, vatn kaffi og áfengir drykkir.

Icelandair bókunarnr - 39V6SY

Tékk inn byrjar 2,5 klt fyrir brottför og lokar 45 mín fyrir brottför. Sama á við um heimflugið. Einungis þarf að sýna vegabréf. 

Hvað er hægt að gera í Dublin

Upplifðu heitt súkkulaði á Butlers Chocolate Café
Borgin er full af söfnum en eitt sem stendur upp úr er Safn Holdsveikra.
Grafton street er þeirra verslunargata þar eru margir barir og kaffihús.
Farðu á viskí safnið eða Irish Whiskey Museum!
The Trinity College býður upp á fegurstu og eina elstu bók í heimi.
Barir og knæpur allt fullt af þeim en spurning að skella sér í Guinnes bjórverksmiðjuna?

Nytsamar upplýsingar

Veitingastaðir

Fjöldi veitingastaða eru í göngufæri frá hótelinu, úrvalið er mikið og hægt að borða dýrindis mat frá öllum heiminum.

Mælum með þessum sem eru í göngufæri við hótelið þessi er írskur O'Sheas Restaurant , Morelands Grill - flott steikhús og þessi klassískur The Shack Restaurant Temple Bar

Michelin Guide mælir með þessum stöðum sjá HÉR

Vinsælar veitingakeðjur eru líka i göngufæri eins og  McDonalds og Burger King.

Hjól og rafskutlur

Eins og í mörgum borgum þá er gott aðgengi að hjólaleigum og rafskutlum.  Helstu leigur eru Bolt og Lifty.   Og Dublin Bike til að ná sér í hjól, allt frekar ódýr samgöngumáti og skemmtilegur.

Neyðarnúmer í Dublin

112 og 999 eru neyðarnúmerin í Dublin og Írlandi.

Klúbbar & barir í nágrenninu

Dublin er rík næturklúbbum og skemmtilegum börum og pöbbum.  Miðbærinn er stútfullur af pöbbum og börum en við mælum með þessum næturklúbbunum Mother og O'Reilly's fyrir þá sem vilja klúbbastemningu.


Svo er alltaf gott að spyrja móttökuna þau vita hvað er núna best þar sem allt var að opna aftur eftir langan tíma.

Samgöngur

Í Dublin er hægt að velja um ýmsan samgöngumáta, leigubíla,  neðanjarðarlestina eða tramminn.  Ódýrast er að kaupa sér TFI Leap Visitor Card  gefur þér ódýrt aðgengi að öllum opinberum samgöngutækjum.

Uber er ekki í Dublin en mikið af leigubílum og auðvelt að ná sér í einn slíkan.

Skemmtilegt að gera

Veistu ekki hvað þú átt að gera í Dublin, búinn að koma hingað 10x kíktu þá á þessa síðu, hún kemur á óvar: https://www.atlasobscura.com/things-to-do/dublin-ireland

Tungumála frasar - Gelíska er það ekki?

Takk! – Tapadh leat
Einn bjór takk! - Aon lionn mas e do thoil e
Afsakið! - Asgaig
Góðan daginn - Madainn mhath
Gott kvöld - Feasgar math
Reikninginn, takk! - Thoir sùil mas e do thoil e
Talar þú ensku? - a bheil Beurla agad

Verð hugmyndir € = ISK

 Evrur eru á Írlandi, gengið er um 140kr vs 1€

Bjór 0,5l  6€ - 840 kr. (innlendur)
Cappuchino 4 €- 560kr. 
Gosdrykkur 0,33l - 2€ - 280 kr. 
Vatn 0,33l - 2 €  - 280 kr. 
Út að borða fyrir 2 - meðalverð 80€ = 11.200kr (með víni)

*heimild numbeo.com

Veðurfar í Október

Haustið er að detta inn, en enn er hlýtt í veðri og getur hitinn farið upp í 18°C gráður.  En þó að það sé hlýtt yfir daginn þá er gott að hafa góða yfirhöfn með sér.
Búast má við 13-16°C gráðum yfir daginn helgina 07.-10.10.2022


Hótel

****
13-17 Fleet St. Temple Bar
S: +353 1677 3333

Temple Bar Hotel er staðsett í 5 mínútna göngufjarlægð frá 2 helstu verslunargötum Dublin; Grafton Street og Henry Street. Það býður upp á þægileg herbergi með ókeypis WiFi og nútímalega írska matargerð.
Herbergin á hótelinu eru með flatskjásjónvarp, öryggishólf fyrir fartölvu og te-/kaffiaðstöðu. Þau fela í sér baðherbergi með kraftsturtu og hárþurrku.

Temple Bar Hotel býður upp á 2 veitingastaði sem framreiða morgunverð, hádegisverð og kvöldverð. Einnig er til staðar bar með sjónvarpi þar sem sýnt er beint frá íþróttaviðburðum.

Þetta hótel er staðsett í hinu líflega Temple Bar-hverfi og er umkringt frábærum börum, krám og veitingastöðum. St Stephen's Green og St Patrick's-dómkirkjan eru í innan við 10 mínútna göngufjarlægð.

Hótelið fær heildareinkunn 8,5 og 9,6 fyrir staðsetningu á booking.com.

Morgunverðarhlaðborð er á jarðhæðinni í boði alla daga frá kl 07:00-10:00 og um helgar 07:30-10:30

Barinn Buskers er opinn til 00:30 stundum lengur.