til Berlín
1. maí - 4. maí 2025

Berlín er borgin sem hefur allt, hvort sem það eru menningar-viðburðir, sýningar, tónlist, kvikmynda-hátíðir, arkitektúr, stríðsminjar, það finna allir eitthvað að sjá og gera við sitt hæfi. 

Borgin er suðupottur af menningu og listum og hún státar líka af fjörugu næturlífi. Berlín er þekkt fyrir stórbrotna sögu og gamlar byggingar ásamt því að vera mjög framalega í nútíma byggingarstíl og list. Á kaldastríðsárunum var borgin tvískipt, í austur og vesturhluta. Í dag má sjá leifar af Berlínarmúrnum sem lá þvert í gegnum hana, ásamt öðrum kennileitum sem sýna hve borgarhlutarnir voru í raun ólíkir. 
Berlínarborg man tímana tvenna og það er einstök upplifun að heimsækja þennan stórbrotna stað.
Kurfürstendamm eða Ku'damm er vinsæl verslunargata, af mörgum talin sú glæsilegasta í Evrópu. 
Í Berlín er auk þess hægt að skoða fjöldann allann af söfnum frá seinni heimsstyrjöldinni og upplifa spennuþrungna og dramatíska sögu Þjóðverja.

Hvað er hægt að gera í Berlín


Brandenborgarhliðið - tákn borgarinnar og sameinaðs Þýskalands

Das Klo: Skrítni klósett upplifunar-barinn

Berlínarmúrinn og Check-point Charlie

Útvarpsturninn á Alexander Platz


Panoramapunkt Berlín, útsýnisstaður

Hjólatúr um Berlín með íslenskri leiðsögn

Hvað er innifalið í ferðinni

Flug

Beint flug með Play, innrituð allt að 20kg farangurstaska og 10/8kg í handfarangur

Flogið út

Brottför:
Frá Keflavík 1. maí kl. 05:45, lent kl. 11:20 í Berlín.

Flogið heim

Heimför:
Frá Berlín 4. maí  kl.12:10 og lent á Keflavík kl 13:55.

Gisting

3 nætur á 4/5 stjörnu hóteli.  Innifalið er morgunverður, wi-fi, gisti- og borgarskatturinn.

Rútur

Rútuferðir til og frá flugvelli í Berlín 25-30 mín akstur

Farastjórn

Tveir óendanlega hjálpfúsir og skemmtilegir fararstjórar frá Tripical.

Tripical sér um allt úti

Árshátíðarkvöldið

Við erum snillingar í að skipuleggja árshátíðina úti, bóka sal, velja matinn, skemmtikrafta og búa til ógleymanlegt kvöld

Hvað er hægt að gera úti?

Við getum boðið upp á dagsferðir úti sem hópurinn velur úr og bókar í gegnum sölukerfi Tripical.
Einnig setjum við upp dagskrá með meðmælum af veitingarstöðum, börum & vinsælum ferðamannastöðum.

Við reddum öllu!

Sérðfræðingar Tripical hafa áratugareynslu í að skipuleggja árshátíðarferðir hópa!

Ferðalottó Tripical

Við viljum magna upp stemninguna fyrir brottför með því að draga út heppin pör/einstaklinga sem fá óvæntan glaðing frá Tripical

Skemmtitékkinn í boði Tripical

Við viljum gera árshátíðarferðina ógleymanlega! Þess vegna bjóðum við hópnum þínum upp á frítt skemmtiatriði í ferðinni. Hópar sem telja 75 eða fleiri og eru með skipulagða árshátíð á vegum Tripical geta valið sér skemmtikraft hér af síðunni. Viðkomandi skemmtikraftur þarf að vera laus á þeim dagsetningum sem óskað er eftir.  
Hægt er að kynna sér hvaða skemmtiatriði er hægt að fá með í ferðina með að ýta á hnappinn hér fyrir neðan.

Hótel

Park Inn by Radisson Berlin Alexanderplatz
   *****

Þetta 4ra stjörnu úrvalshótel státar af 3 veitingastöðum, heilsulind og herbergjum með loftkælingu og flatskjáum. Það er hæsta hótel Berlínar og er staðsett beint við Alexanderplatz-torgið.

Öll herbergin og svíturnar á Park Inn Radisson Berlin Alexanderplatz eru með marmaralögð baðherbergi með kraftsturtu og hita í gólfum. Ókeypis WiFi er til staðar hvarvetna á hótelinu.

Sérréttir sem eldaðir eru eftir hefðum svæðisins eru framreiddir á veitingastaðnum Zillestube og alþjóðlegur matur á Humboldt. Máltíðir og drykkir eru í boði á Spagos Bar & Lounge og er það útbúið fyrir framan gesti í opna eldhúsinu.

Í vellíðunaraðstöðu Park Inn er að finna gufubað, líkamsræktaraðstöðu og nuddþjónustu. Gestir geta einnig slappað af á veröndinni á efstu hæðinni en þaðan er frábært útsýni yfir miðbæ Berlínar.

Park Inn by Radisson er staðsett á móti Alexanderplatz-stöðinni en þaðan eru tengingar með strætisvögnum, sporvögnum, neðanjarðarlestum og S-Bahn-lestum við alla hluta Berlínar. Safnaeyjan og hið líflega Hackescher Markt-svæði eru í 10 mínútna göngufjarlægð.

Hótelið fær heildareinkunn 7,4 og 9,4 fyrir staðsetningu á booking.com

Verðin 

134 990 kr

á mann í tvíbýli

25 000 kr

aukagjald í einbýli

Hótel

Sana Berlin
     ****

Þetta glæsilega hótel er aðeins 700 metra frá KaDeWe -versluninni við Kurfürstendamm í Berlín og býður upp glæsileg, nútímaeg og hljóðeinangruð herbergi. Viðargólf, myrkvunargardínur og öryggishólf.
Fallega setustofu og bar þar sem boðið er upp á snarl og léttar máltíðir allan daginn.
Gestir hafa frían aðgang að líkamsræktarstöð SANA sem er með hvíldaraðstöðu og lítilli sundlaug..
F8-barinn og móttökubarinn bjóða upp á snarl og drykki. Í heitu veðri geta gestir notið drykkja á rúmgóðu veröndinni með sófa.
Dýragarðurinn í Berlín og Kaiser Wilhelm-minningarkirkjan eru í 10 mínútna göngufjarlægð frá Hotel SANA Berlin. Augsburger Straße neðanjarðarlestarstöðin er í 2 mínútna göngufjarlægð. Hótelið býður einnig upp á reiðhjól og bíla til leigu.

Hótelið fær heildareinkunn 8,7 og 8,9 fyrir staðsetningu á booking.com

Verðin 

149 990 kr

á mann í tvíbýli

45 000 kr

aukagjald í einbýli

Árshátíðarkvöldið hugmynd:

🇩🇪🍻Októberfest🍻🇩🇪     

Hægt er að halda Októberfest úti í Berlín!

Hugmynd að vera með standandi mat, offramboð af bjór í 1 líters könnum🍻 og alvöru Októberfest þema. 

Við höfum farið með hópa af ykkar stærðargráðu til Berlínar og leigt Októberfest stal þar sem hægt er að vera með alvöru Októberfestþemaparty!

Verðin miðast við 160 manns. Fyrirvari er um flugtímasetningu frá flugfélögum, endanlegt verð liggur fyrir til kynningar og samþykktar þegar að dagsetning ferðar hefur verið ákveðin. Staðfestingargjald þarf að greiða um leið og ferð er ákveðin svo hægt sé að tryggja flug og hótel. 


Umsagnir fyrri hópa

Smelltu hér á hnappinn til að sjá umsagnir ánægðra viðskiptavina Tripical!
Skoða umsagnir

Arnar Magnússon

Fyrirtækjaferðir

S. 519-8900

GSM. 848 1520

Netfang. arnar@tripical.com