
Til Kaupmannahafnar 20. febrúar til 23. febrúar 2025
Kóngsins Kaupmannahöfn er þekkt fyrir að vera menningarborg með stórfenglegan arkitektúr ekki síður en hönnun sem hefur haft áhrif um allan heim, og líka bjórinn þeirra, já og H.C.Andersen.
Danmörk er oft rómuð fyrir að vera eitt ,,grænasta“ land heims. Á fáum stöðum notar fólk reiðhjól í sama magni og hér. Danir eru mjög duglegir að flokka rusl og hugsa almennt mjög vel um umhverfið. Þetta hafa þeir gert um svo langt skeið að nýjum kynslóðum er þetta í blóð borið.
Einn af þekktari skemmtigörðum heims er miðsvæðis í borginni. Tívolíið er ekki bara vel þekkt víða um heim, það er eitt af elstu skemmtigörðum heims. Sjálfur Walt Disney nefndi eitt sinn að danska Tívolíið væri fyrirmynd að Disney garðinum hans.
Hér blandast gömlu ævintyrin saman við nytískulegan arkitektúr og hönnun á heimsmælikvarða, heitur jazz blandast við ískalt teknó í kjallaraklúbbi. Þér finnst eins og þú hafir séð allt á einum degi, en gætir auðveldlega skoðað þig um og séð nyja hluti svo mánuðum skipti.
Það er ótrúlega gaman að versla í Kaupmannahöfn og sterk hönnunarhefð er gegnumgangandi í verslunum borgarinnar. Engan þarf að kynna fyrir Strikinu, einni lengstu verslunargötu Evrópu og þeim fjölmörgu stórverslunum, hönnunarverslunum og alþjóðlegu vörumerkjum sem þar eru.
Hvað er hægt að gera í Kaupmannahöfn
Tívolíð í Kaupmannahöfn er eitthvað sem allir ætttu að skoða.
Strikið fræga er vinsælt fyrir búðaráp og góða veitingastaði. Þar finna allir eitthvað sér við hæfi.
Nyhavn eða nýhöfn eins og hún er kölluð á íslensku er fullkominn staður til að fara á til að fá sér kaffi og með því.
Kíkja á Torvehallerne markaðinn í Nørrebro
Svo er góður hjólreiðatúr kannski besta leiðin til að kynnast borgarlífinu
Reffen er stútfullt af menningarviðburðum, markaði og mat frá öllum heiminum
Hvað er innifalið í ferðinni
Flug
Beint flug með Play til og frá Kaupmannahöfn, innifalið innrituð taska 20kg og handfarangur 8kg
Brottför
Brottför föstudaginn 20. febrúar til Kaupmannahafnar kl 06:35. Lending áætluð um kl 10:45
Heimför
Heimför mánudaginn 23. febrúar til Keflavíkur kl 11:45 og áætluð lending kl 14:15.
Gisting
3 nætur á 4 stjörnu hóteli. Innifalið er morgunverður, wi-fi og city tax.
Rútur
Rútuferðir til og frá flugvelli í ca 20 mín
Farastjórn
Einn óendanlega hjálpfús og skemmtilegur fararstjóri frá Tripical.
Ferðalóttó Tripical
Við viljum magna upp stemninguna fyrir brottför með því að draga út heppin pör/einstaklinga sem fá óvæntan glaðing frá Tripical
Hótel
Tivoli Hotel
****
****
Þetta hótel er staðsett við síki Kaupmannahafnar og í 10 mínútna göngufjarlægð frá aðaljárnbrautarstöðinni í Kaupmannahöfn. Það býður upp á ókeypis WiFi, 3 vinsæl veitingahús á staðnum ásamt innisundlaug og stórri heilsuræktarstöð. Það eru einnig til staðar 2 þakbarir sem eru þekktir fyrir glæsilegt, víðáttumikið útsýni.
Herbergi Tivoli Hotel eru með loftkælingu, flatskjá með gervihnattarásum, te- og kaffiaðstöðu og nútímalegt baðherbergi. Sum herbergin eru með aðgang að Executive-setustofunni sem býður upp á morgunverðarsal á 11. hæðinni.
Tivoli Hotel er sambyggt við Tivoli-ráðstefnumiðstöðina en þar er boðið upp á nýtískulega ráðstefnu- og fundaraðstöðu.
Þar er hægt að halda árshátíðarkvöldverð fyrir hópinn.
Tívolíið, ráðhústorgið, hverfið Kødbyen og úrval af öðrum áhugaverðum stöðum borgarinnar eru í göngufjarlægð frá hótelinu.
Hótelið fær heildareinkunina 7,9 og 8,0 fyrir staðsetningu.
Verðin
119 990 kr
á mann í tvíbýli
40 000 kr
aukagjald í einbýli
Hótel
****
Þetta hótel við höfnina er nálægt líflega svæðinu við Nýhöfn og í tæplega 5 mínútna göngufjarlægð frá aðalgötunni í Kaupmannahöfn, Strikinu. Boðið er upp á róleg herbergi með ókeypis LAN-Interneti.
Copenhagen Strand er staðsett í vöruhúsi frá árinu 1869. Öll herbergin eru með minibar, gervihnattasjónvarpi og skrifborði.
Sjónvarpsstofa er til staðar og WiFi er ókeypis á öllum almenningssvæðum.
Neðanjarðarlestarstöðin við Kongens Nytorv er aðeins 400 metrum frá Copenhagen Strand og vatnastrætóarnir í Kaupmannahöfn stoppa rétt hjá. Það eru ferðamannastaðir í nágrenninu og Amalienborg-höllin er í 10 mínútna göngufjarlægð.
Hótelið fær heildareinkunina 8,4 og 9,5 fyrir staðsetningu.
Verðin
139 990 kr
á mann í tvíbýli
65 000 kr
aukagjald í einbýli
Hótel
****
Þetta vistvæna hótel er með þakverönd og er staðsett við Rådhuspladsen, aðeins 200 metra frá tívolíinu og aðallestarstöð Kaupmannahafnar. Frá morgunverðarsalnum og þakveröndinni er skemmtilegt útsýni yfir húsþök borgarinnar.
Öll herbergin á The Square eru fallega hönnuð, svokölluð naumhyggjuhönnun. Í þeim er fatapressa, öryggishólf og loftkæling. Öll herbergin eru búin flatskjá með gervihnattarásum, minibar og skrifborði.
Hótelð státar af flottum bar sem býður upp á úrval drykkja og koktaila. Ókeypis WiFi er til staðar hvarvetna á hótelinu. Í sameiginlegu setustofunni er sjónvarp, dagblöð og úrval af tímaritum.
Strikið byrjar 150 metrum frá hótelinu. Veitingastaðir, barir, kaffihús og verslanir eru í göngufæri.
Hótelið fær heildareinkunina 8,2 og 9,6 fyrir staðsetningu.
Verðin
124 990 kr
á mann í tvíbýli
30 000 kr
aukagjald í einbýli