
Til Varsjá 16. maí til 19. maí 2025
Varsjá er ansi merkileg borg. Merkileg að því leytinu til að hún hefur yfir sér sama jákvæða sjarma og margar skemmtilegar miðaldaborgir Evrópu. Og ódýr eru hún!
Varsjá er höfuðborg Póllands. Borgin hefur tekið stakkaskiptum á síðustu áratugum en þó eimir enn töluvert af sovéskum áhrifum. Heillandi er hún samt. Nema hvað Varsjá var lögð í rúst í Seinni heimsstyrjöldinni. Rúst með stóru erri því níu af hverjum tíu byggingum í borginni þá voru jafnaðar við jörðu. Engin önnur borg fékk sömu útreið, ekki einu sinni Dresden í Þýskalandi, og það stórkostlega er að sá sem heimsækir Varsjá í dag verður þess ekkert var.
Sé eitthvað kannski sem sker sérstaklega í augu gesta er það mögulega að kapítalismi hefur greinilega flætt yfir borgina á miklum hraða. Þannig er borgarskipulagið á köflum eins og út úr kú með nýtísku glerbyggingar við hlið aldinna halla í barrokkstíl og borgin tekur enn miklum breytingum. Sú Varsjá sem heimsótt var fyrir tíu árum er vart þekkjanleg og líkur á að eftir tíu ár verði Varsjá nútímans vart kunnugleg heldur.
Hvað er hægt að gera í Varsjá
Kíkja á þakbar og fá sér vodkahanastél að
pólskum sið
Skoða magnaða Uppreisnarsafnið.(Muzeum Powstania
Warszawskiego)
Fara í lautarferð í Lazienki almenningsgarðinum
Skoða Chopin safnið
Skoða konunglega kastalann
Rölta um gamla bæinn og meðfram ánni Vistula
Hvað er innifalið í ferðinni
Flug
Beint flug til og frá Varsjá með áætlunarflugi Play. Innifalið er innrituð taska 20kg og handfarangur 10kg
Brottför
Brottför:
Áætlunarflug Play frá Keflavík föstudaginn 16.maí. Flugtímar birtir síðar.
Heimkoma
Heimför:
Áætlunarflug Play frá Varsjá mánudaginn 19. maí 2025. Flugtímar birtir síðar.
Gisting
3 nætur á 4/5 stjörnu hóteli. Innifalið er morgunverður, wi-fi og city tax.
Rutur
Rútuferðir til og frá flugvelli í Varsjá ca 25 mín
Farastjórn
Sé þess óskað - gegn gjaldi.
Tripical sér um allt úti
Árshátíðarkvöldið
Við erum snillingar í að skipuleggja árshátíðina
úti, bóka sal, velja matinn, skemmtikrafta og búa til ógleymanlegt
kvöld
Hvað er hægt að gera úti?
Við getum boðið upp á dagsferðir
úti sem hópurinn velur úr og bókar í gegnum sölukerfi Tripical.
Einnig setjum við upp dagskrá
með meðmælum af veitingarstöðum, börum & vinsælum ferðamannastöðum.
Við reddum öllu!
Sérðfræðingar Tripical hafa áratugareynslu
í að skipuleggja árshátíðarferðir hópa!
Ferðalóttó Tripical
Við viljum magna upp stemninguna fyrir brottför með því að draga út
heppið par/einstakling sem fær óvæntan glaðning frá Tripical í ferðinni
Hótel
****
Radisson Blu Sobieski er lúxus, reyklaust hótel í miðbæ Varsjár. Það býður upp á glæsileg herbergi, framúrskarandi matargerð og afþreyingu. Ókeypis Wi-Fi er í boði. Gististaðurinn er með greiðan neðanjarðarlestaraðgang.
Hótelið býður upp á vel loftkæld herbergi með hljóðeinangrun, LCD gervihnattasjónvarpi og minibar. Sérbaðherbergið er með sturtu eða baðkari.
Á hótelinu eru 2 frábærir veitingastaðir, Marysieńka og Trylogia, sem framreiða dýrindis pólska og alþjóðlega rétti. Hótelið er þekkt fyrir "ofur" morgunverðarhlaðborðið sitt sem býður upp á úrval af brauði, ávöxtum, áleggi og heitum réttum, þar á meðal ofnæmis vænum valkostum.
Radisson Blu Sobieski Hotelið býður gestum sínum upp á algerlega nýja vellíðunarupplifun í uppfærðri og fullkomlega endurnýjuðri heilsulind og líkamsræktarstöð með svæði fyrir þolþjálfun og þyngdarþjálfun, auk einkaþjálfunar og heilsulindarmeðferða sé þess óskað.
Warszawa Centralna-lestarstöðin er staðsett í 10 mí göngufæri og gamli bærinn í 20 mín göngufæri.
Hótelið fær heildareinkunina 8,5 og 9,0 fyrir staðsetningu.
Verðin
119 990 kr
á mann í tvíbýli
30 000 kr
aukagjald í einbýli
Hótel
****
Hið nútímalega Novotel Warszawa Centrum er með víðáttumikið útsýni yfir Varsjá borg. Það er staðsett í miðbæ Varsjá í 5 mínútna göngufjarlægð frá aðallestarstöðinni. Hótelið býður upp á fjölbreyttan morgunverð. Boðið er upp á Wi-Fi-Internet hvarvetna á þessu 4-stjörnu hóteli. Öll svæði hótelsins eru reyklaus.
Loftkæld herbergin eru með flatskjásjónvarp, te og kaffiaðstöðu og öryggishólf. Boðið er upp á minibar gegn aukagjaldi. Herbergin eru einnig með skrifborð, hægindastól eða sófa. Öll eru með rúmgóðu baðherbergi með baðkari eða sturtu og hárblásara.
Loftkældi veitingastaðurinn og barinn á Novotel, NOVO2, býður upp á alþjóðlega rétti og mikið úrval drykkja. Starfsfólk móttökunnar er til staðar allan sólarhringinn. Hótelið býður einnig upp á spa með gufubaði og miklu úrvali af líkamsræktarbúnaði. Aðstaðan er staðsett á efstu hæðinni en þaðan er fallegt, víðáttumikið útsýni yfir pólsku höfðuborgina.
Novotel Centrum er staðsett gegnt Menningar- og vísindahöllinni í Varsjá. Gestir geta nýtt sér góðar tengingar með almenningssamgöngum en Centrum-neðanjarðarlestarstöðin og margar stoppistöðvar fyrir strætisvagna og sporvagna eru í göngufæri. Sem og fjöldinn allur af klúbbum og vetingastöðum.
Hótelið fær heildareinkunina 8,7 og 9,6 fyrir staðsetningu.
Verðin
119 990 kr
á mann í tvíbýli
30 000 kr
aukagjald í einbýli
Hótel
*****
Radisson Collection Hotel, Warsaw er í aðeins 10 mínútna göngufjarlægð frá aðallestarrstöðinni í Varsjá og býður upp á sundlaug. Loftkæld herbergi með te-/kaffiaðstöðu eru í boði. Ókeypis WiFi er til staðar.
Herberginn á Radisson Collection eru rúmgóð og nútímaleg, eru með minibar, öryggishólfi og stóru skrifborði. Stórt og flott baðherbergi í þeim öllum herbergjum.
Radisson Collection Hotel, Warsaw hýsir TAGO Restaurant þar sem morgunverðarhlaðborð er borið fram og THE SPOT Restaurant and Bar. Veitingastaðurinn er opinn allt árið um kring og býður upp á nútímalega matargerð og glæsilega kokkteila. Á sumrin geta gestir snætt og slappað af á útiveröndinni.
Hótelið er staðsett í aðeins 10 mínútna göngufjarlægð frá Złote Tarasy-verslunarmiðstöðinni og Menningar- og vísindahöllinni. Chopin-flugvöllurinn í Varsjá er í einungis 20 mínútna akstursfæri.
Hótelið fær heildareinkunina 9,1 og 9,3 fyrir staðsetningu.
Verðin
139 990 kr
á mann í tvíbýli
40 000 kr
aukagjald í einbýli
Hótel
*****
InterContinental Warszawa er 5 stjörnu hótel í miðbæ Varsjá, 500 metrum frá aðallestarstöðinni. Það býður upp á loftkæld lúxusherbergi og heilsulind á 43. og 44. hæð sú hæsta í Evrópu, sem gestir hafa frían aðgang að.
Öll herbergin á InterContinental eru með te-/kaffiaðstöðu og minibar. Gestum stendur gervihnattasjónvarp og öryggishólf til boða. Sum herbergin bjóða upp á útsýni yfir Menningar- og vísindahöllina í Varsjá.
Gestir geta skellt sér í innisundlaugina eða heita pottinn en hvort um sig er með víðáttumiklu útsýni yfir Varsjá. Í heilsulindinni er einnig gufubað og eimbað. Sum herbergin eru með aðgang að Executive-setustofunni sem býður upp á ýmiss konar fríðindi yfir daginn.
Gestir geta valið á milli tveggja veitingastaða á InterContinental: Downtown sem er steikhús og Platter (fine dining), en báðir sérhæfa sig í nútímalegum pólskum og alþjóðalegum réttum. One Bar er snakk og íþróttabar, bíður upp á létta rétti og drykki.
InterContinental Warszawa er staðsett í innan við 10 mínútna göngufæri frá neðanjarðarlestarstöðinni í miðbænum. Glæsilega verslunargatan Nowy Świat er í aðeins 1 km fjarlægð.
Hótelið fær heildareinkunina 9,1 og 9,7 fyrir staðsetningu.
Verðin
149 990 kr
á mann í tvíbýli
50 000 kr
aukagjald í einbýli
Tilboðið sýnir verðhugmyndir og miðast við 80 manns. Endalegt verð liggur fyrir þegar ferð er staðfest og hægt er að bóka flug og hótel. Staðfestingargjald þarf að greiða um leið og ferð er ákveðin svo hægt sé að tryggja flug og hótel.
Umsagnir fyrri hópa
Smelltu hér á hnappinn til að sjá umsagnir ánægðra viðskiptavina Tripical!
Skoða umsagnir