
til Berlín24. apríl - 27. apríl 2025
Berlín er borgin sem hefur allt, hvort sem það eru menningar-viðburðir, sýningar, tónlist, kvikmynda-hátíðir, arkitektúr, stríðsminjar, það finna allir eitthvað að sjá og gera við sitt hæfi.
Borgin er suðupottur af menningu og listum og hún státar líka af fjörugu næturlífi. Berlín er þekkt fyrir stórbrotna sögu og gamlar byggingar ásamt því að vera mjög framalega í nútíma byggingarstíl og list. Á kaldastríðsárunum var borgin tvískipt, í austur og vesturhluta. Í dag má sjá leifar af Berlínarmúrnum sem lá þvert í gegnum hana, ásamt öðrum kennileitum sem sýna hve borgarhlutarnir voru í raun ólíkir.
Berlínarborg man tímana tvenna og það er einstök upplifun að heimsækja þennan stórbrotna stað.
Kurfürstendamm eða Ku'damm er vinsæl verslunargata, af mörgum talin sú glæsilegasta í Evrópu.
Í Berlín er auk þess hægt að skoða fjöldann allann af söfnum frá seinni heimsstyrjöldinni og upplifa spennuþrungna og dramatíska sögu Þjóðverja.
Hvað er hægt að gera í Berlín
Útvarpsturninn á Alexander Platz
Panoramapunkt Berlín, útsýnisstaður
Hjólatúr um Berlín með íslenskri leiðsögn
Hvað er innifalið í ferðinni
Flug
Beint flug með Play, innrituð allt að 20kg farangurstaska og 10kg í handfarangur
Flogið út
Frá Keflavík 24. apríl kl. 06:00, lent kl. 10:35 í Berlín.
Flogið heim
Frá Berlín 27. apríl kl.11:30 og lent á Keflavík kl 14:20.
Gisting
3 nætur á 4/5 stjörnu hóteli. Innifalið er morgunverður, wi-fi, gisti- og borgarskatturinn.
Rútur
Rútuferðir til og frá flugvelli í Berlín 25-30 mín akstur
Farastjórn
Einn óendanlega hjálpfús og skemmtilegur fararstjóri frá Tripical
Hótel
Park Inn by Radisson Berlin Alexanderplatz
****
Park Inn by Radisson Berlin Alexanderplatz
Þetta 4ra stjörnu úrvalshótel státar af 3 veitingastöðum, heilsulind og herbergjum með loftkælingu og flatskjáum. Það er hæsta hótel Berlínar og er staðsett beint við Alexanderplatz-torgið.
Öll herbergin og svíturnar á Park Inn Radisson Berlin Alexanderplatz eru með marmaralögð baðherbergi með kraftsturtu og hita í gólfum. Ókeypis WiFi er til staðar hvarvetna á hótelinu.
Sérréttir sem eldaðir eru eftir hefðum svæðisins eru framreiddir á veitingastaðnum Zillestube og alþjóðlegur matur á Humboldt. Máltíðir og drykkir eru í boði á Spagos Bar & Lounge og er það útbúið fyrir framan gesti í opna eldhúsinu.
Í vellíðunaraðstöðu Park Inn er að finna gufubað, líkamsræktaraðstöðu og nuddþjónustu. Gestir geta einnig slappað af á veröndinni á efstu hæðinni en þaðan er frábært útsýni yfir miðbæ Berlínar.
Park Inn by Radisson er staðsett á móti Alexanderplatz-stöðinni en þaðan eru tengingar með strætisvögnum, sporvögnum, neðanjarðarlestum og S-Bahn-lestum við alla hluta Berlínar. Safnaeyjan og hið líflega Hackescher Markt-svæði eru í 10 mínútna göngufjarlægð.
Hótelið fær heildareinkunn 7,4 og 9,4 fyrir staðsetningu á booking.com
Nálægð við hótelið
Verslanir og áhugaverðir staðir
Verslanir og áhugaverðir staðir
Í nálægð við hótelið er mikið um verslanir, veitingastaði og afþreyingu.
Sem dæmi er Alexa verslunarmiðstöðin hinum megin við Alexanderplatz torgið og Primark verslun á fyrstu hæð hótelsins.
Rétt hjá hótelinu er Hofbrau Wirtshaus veitingastaðurinn en þar er hægt að upplifa októberfest allan ársins hring og fyrir þá djörfu er hægt að fara í free fall af þaki hótelsins.
Þekktasta kennileitið í nágreninu er svo sjónvarpsturninn í Berlin en hægt er að fara þar upp á topp og horfa yfir alla borgina.