til Split
25. - 29. september 2025 &
26. - 30. september 2025

Split er stærsta borg Dalmatíu. Hún er talin vera 1700 ára gömul og íbúafjöldi hennar gerir Split að næststærstu borg Króatíu. 

Í sögulegum kjarna Split, og listað á Heimsminjalista Menningarmálastofnunnar Sameinuðu þjóðanna (UNESCO), stendur stórbrotin höll rómverska keisarans Diocletian, bygging frá því um fjórðu öld fyrir Krist.  Í gegnum aldirnar hefur gamli bær Split byggst inn í og kringum höllina, þar má finna þrjú rómversk musteri og stærðarinnar grafhýsi.
Rómverjar byggðu mikið af byggingum Split og má þar finna fornminjar sem ná aftur til 500 f.kr. Borgin er afar ferðamannavæn og falleg.  Split býður einnig upp á mjög líflegt og spennandi næturlíf. Þar er margt hægt að gera sér til afþreyingar, og við mælum hiklaust með skoðunarferð um rómversku rústirnar sem borgin er byggð í kringum.

Hvað er hægt að gera í Split

Fara í vínsmökkun á Zinfandel Wine Bar í gamla bænum. Króatísku vínin koma skemmtilega á óvart!
Fara á markaðinn og kaupa alvöru nýtýndar Istriskar trufflur!!
Kafaða, snorkla eða sigla í tærasta hafi Evrópu - Adríahafinu
Liggja á ströndinni með kokteil í hönd og fylgjast með öllum snekkjunum
Skoða rómversku rústirnar og ekki gleyma að tékka á Járninu og gullna hliðinu 
Rölta um g amla bæinn og kíkja á höll Diocletian

Hvað er innifalið í ferðinni

Flug

Leiguflug og áætlunarflug með Play, 1 innrituð taska 20 kg og 5 kg handfarangur.

Brottför

Hópur 1 (Áætlunarflug Play): 
Þar sem Play hefur ekki gefið út flugáætlun áður til Split er ekki hægt að áætla flugtíma. Gert er ráð fyrir morgunflugi út.

Hópur 2 (Leiguflug Play):
Flogið er út snemma um morgun 1.maí og lent um miðjan dag í split

Heimför

Hópur 1 (Áætlunarflug Play): 
Þar sem Play hefur ekki gefið út flugáætlun áður til Split er ekki hægt að áætla flugtíma. Gert er ráð fyrir seinnipartsflugi heim. 

Hópur 2 (Leiguflug Play):
Flogið er út seinnipart dags 4.maí og lent seinipart dags í Keflavík

Gisting

4 nætur á 4/5 stjörnu hóteli. Innifalið er morgunverður, wi-fi og city tax.

Rútur

Rútuferðir til og frá flugvelli í Split ca. 25 mín

Farastjórn

Tveir óendanlega hjálpfúsir fararstjórar frá Tripical.

Tripical sér um allt úti

Árshátíðarkvöldið

Við erum snillingar í að skipuleggja árshátíðina úti, bóka sal, velja matinn, skemmtikrafta og búa til ógleymanlegt kvöld

Hvað er hægt að gera úti?

Við getum boðið upp á dagsferðir úti sem hópurinn velur úr og bókar í gegnum sölukerfi Tripical.
Einnig setjum við upp dagskrá með meðmælum af veitingarstöðum, börum & vinsælum ferðamannastöðum.

Við reddum öllu!

Sérðfræðingar Tripical hafa áratugareynslu í að skipuleggja árshátíðarferðir hópa!

 Ferðalóttó Tripical

Við viljum magna upp stemninguna fyrir brottför með því að draga út 2 heppin pör eða einstakling
sem fá óvæntan glaðning frá Tripical í ferðinni.

Skemmtitékkinn í boði Tripical

Við viljum gera árshátíðarferðina ógleymanlega! Þess vegna bjóðum við hópnum þínum upp á frítt skemmtiatriði í ferðinni. Hópar sem telja 75 eða fleiri og eru með skipulagða árshátíð á vegum Tripical geta valið sér skemmtikraft hér af síðunni. Viðkomandi skemmtikraftur þarf að vera laus á þeim dagsetningum sem óskað er eftir.  
Hægt er að kynna sér hvaða skemmtiatriði er hægt að fá með í ferðina með að ýta á hnappinn hér fyrir neðan.

Hótel 

*****

Le Meridien Lav hótel er staðsett í Podstrana, 8 km suður af Split. Hótelið sem opnaði 2017 er með með 800 metra langa strandlínu, landslagshannaða garða og þaðan er útsýni yfir borgina og eyjarnar í kring. Á hótelinu eru 4 veitingastaðir allt frá króatískum og miðjarðarhafs mat yfir í skemmtilegan grillmat á ströndinni.
Við smábátahöfnina eru verslanir, barir og veitingahús.

Herbergin eru að meðaltali 30 fm og eru með lofthæðarháa glugga sem opnast út á stórar svalir, 40" snjallsjónvarp,Wi-Fi og háhraðanettengingu, hágæða húsgögn, sérstýrða loftkælingu, hárþurrku, mínibar og öryggishólf. 
Hótelið er með heilsulind á heimsmælikvarða sem inniheldur gufuböð, eimböð, nuddpott, nagla-og fótsnyrtingarstofur, djúpslökunarherbergi, líkamsrækt og dásamlega infinity sundlaug. Mikið úrval meðferða er í boði í heilsulindinni, 
Einnig er mikið í boði á hótelinu eins og tennisvelli, vatnasport, hjól og bátsferðir.
Á hótelinu er næturklúbbur sem hægt er að leigja undir hópinn.

Hótelið fær heildareinkunina 8,3 og 8,7 fyrir staðsetningu. 

Hótelið býður upp á flotta kosti fyrir árshátíðarkvöldverðinn. T.d. veislu í sal, kokteilboð sem og einnig að vera með veisluna aftan við hótelið við sundlaugarbakkann en það fer eftir aðstæðum.
Verð fyrir árshátíðarkvöldverð er frá 12.900,- kr. á mann.
Innifalið: fordrykkur og 3 rétta kvöldverður. Hægt er að bæta við drykkjarpakka. Annar búnaður eins og auka hljóðkerfi, skjár, skjávarpi og míkrafónn er reiknað sér.

Verðin

199 990 kr

á mann í tvíbýli

40 000 kr

aukagjald í einbýli

Hótel 

****

Amphora Hotel er staðsett við ströndina og býður upp á 3 sundlaugar með sundlaugarbar, sólbekkjum og sólhlífum. Það er staðsett í Split og er með 2 veitingastaði, bar og heilsulind og vellíðunaraðstöðu.

Öll herbergin eru nútímalega og glæsilega innréttuð og státa af setusvæði með TV, loftkælingu, minibar, skrifborði og svölum. Sérbaðherbergið er með sturtu, hárþurrku og ókeypis snyrtivörum. Baðsloppur og inniskór eru í boði fyrir gesti. Hótelið býður upp á líkamsræktarstöð og sólarhringsmóttöku. Æðislegur morgunverður er í boði á hverjum morgni.

Áhugaverðir staðir í nágrenni Amphora Hotel eru meðal annars Znjan-ströndin, Duilovo-hundaströndin og Trstenik. 

Hótelið fær heildareinkunina 8,5 og 8,5 fyrir staðsetningu. 

Verðin

 204 990 kr

á mann í tvíbýli

50 000 kr

aukagjald í einbýli

Hótel 

*****

AC Hotel by Marriott Split er staðsett í Split, í innan við 2,5 km fjarlægð frá Bacvice-ströndinni og býður upp á bar, reyklaus herbergi og ókeypis WiFi. Áhugaverðir staðir í nágrenninu eru til dæmis styttan Grgur Ninski, Fornleifasafnið í Split og torgið Narodni Trj. Gestir geta nýtt sér heilsulind og vellíðunaraðstöðu með innisundlaug, líkamsræktarstöð og gufubaði ásamt veitingastað.
Hótelið býður gestum upp á loftkæld herbergi með skrifborði, katli, öryggishólfi, flatskjá og sérbaðherbergi með baðkari eða sturtu. Herbergin eru með fataskáp.

Morgunverðarhlaðborð, à la carte- eða léttur morgunverður er í boði á hverjum morgni á gististaðnum.

Gestir AC Hotel by Marriott Split geta nýtt sér heitan pott.

Starfsfólk móttökunnar talar þýsku, ensku, spænsku og króatísku og veitir gestum gjarnan ráðleggingar um svæðið.

Meðal áhugaverðra staða í nágrenni við gistirýmið eru Mladezi Park-leikvangurinn, höll Díókletíanusar og Spaladium Arena. Næsti flugvöllur er Split-flugvöllur, 21 km frá AC Hotel by Marriott Split, og gististaðurinn býður upp á flugrútu gegn gjaldi.

Hótelið fær heildareinkunina 9,3 og 8,9 fyrir staðsetningu. 

Verðin

206 990 kr

á mann í tvíbýli

50 000 kr

aukagjald í einbýli

Tilboðið sýnir verðhugmyndir og miðast við 320 manns. Fyrirvari er um að í leiguflug þarf 80% nýtingu. 
Endanlegt verð liggur fyrir þegar ferð er staðfest, staðfestingargjald þarf að greiða um leið og ferð er ákveðin svo hægt sé að tryggja flug og hótel. 


Umsagnir fyrri hópa 

Smelltu hér á hnappinn til að sjá umsagnir ánægðra viðskiptavina Tripical!
Skoða umsagnir

Arna Rut Kristinsdóttir

Fyrirtækjaferðir

S. 519-8900

GSM. 6633313

Netfang. arna@tripical.com


Arnar Magnússon

Fyrirtækjaferðir

S. 519 8900

GSM. 848 1520

Netfang: arnar@tripical.com