til Lissabon
24. apríl - 27. apríl 2025

Hvítar kalksteina- byggingar setja svip sinn á borgina, ásamt litlum göngugötum og  húsasundum, iðandi mannlífi og elskulegu viðmóti gestgjafanna. Það er gott að vera í Lissabon, sem er að verða einn af vinsælustu áfanga-stöðum í Evrópu. 

Lissabon er ein af elstu borgum heims, og þar má finna menjar allt frá 2. öld fyrir Krist, auk þess sem byggingar frá hinum ýmsu tímaskeiðum í sögu og stíl prýða borgina. 
Í dag blómstrar Lissabon sem aldrei fyrr. Hún er ekki einungis falleg, hún er sannkölluð heimsborg, sem lætur til sín taka á flestum sviðum, hvort sem er í viðskiptum, menningu og listum, nútímatækni eða ferðaiðnaði. Um leið er hún aðallífæð Portúgals, héðan er landinu stjórnað og hér er t.d. miðstöð allra helstu samgangna sem teygja si g vítt og breitt um landið. 
Í Lissabon er af nægu að taka, og allir ættu að finna eitthvað við sitt hæfi, hvort sem áhuginn snýr að sögulegu efni eða lífsins nautnum, góðum mat, skemmtun og almennri gleði.  
   
Borgin er eina höfuðborg Evrópu sem staðsett er við strendur Atlantshafs. Hún stendur við  árósa Tejo árinnar og rís þaðan, með öllum sínum fjölbreyttu hverfum, upp í landið. Eins og stórborg sæmir eru samgönguleiðir margar, og sumar hverjar mjög áhugaverðar, eins og að fara með bát meðfram ánni og njóta útsýnis þaðan. Annar skemmtilegur fararskjóti er toglestin Tram 28, en hún er ein af þremur upprunalegu lestum í leiðarkerfi borgarinnar (frá því í kringum 1936-1947) og gengur frá Gamla bænum og um helstu kennileiti og einstaka staði Lissabon. Leiðin er hæðótt og ekki farið hratt yfir, enda klárinn orðinn æði fullorðinn, en að sitja hann er sannarlega þess virði.      

Hvað er hægt að gera í Lissabon?

Gönguferð gegnum hið fallega hverfi Alfama og upp að kastala St. Georgs (Castelo de São Jorge). Dágóður spotti en borgar ríkulega til baka.  
Jardim Botânico da Ajuda er einn af elstu skrúðgörðum Evrópu. Afar heillandi staður. Taktu teppi og nestiskörfu með þér!
Fáðu þér að borða á LX Factory sem staðsett er í yfirgefnu iðnaðarhverfi en hefur verið umbreytt í mjög hip og kúl veitingastað og menningarsetur.
Dans og djamm finnurðu ansi víða. En risaklúbburinn Lux / Frágil er alveg magnaður skemmtistaður sem vert er að tékka á.

Belém hverfið er eins og sagt er "must see" en þar er að finna mikið af merkilegum minnisvörðum og gömlum byggingum.
Ponte 25 de Abril er systurbrú San Francisco brúar og hönnuð af sama arkitekt árið 1966.

Hvað er innifalið í ferðinni

Flug

Beint flug í áætlun með Play og leiguflug, farangurstaska allt að 20kg og léttur handfarangur. Fluglengd 4,5 klst 

Brottför 

Brottför 1 (leiguflug):
fimmtudaginn 24. apríl  kl 08:00 frá Keflavík og lent í Lissabon kl 12:00.

Brottför 2 (Play):
föstudaginn 25. apríl  kl 15:10 frá Keflavík og lent í Lissabon kl 20:45.

Heimför 

Heimför 1 (leiguflug):
sunnudaginn 27. apríl kl 17:30 frá Lissabon og lent í Keflavík kl 18:55

Heimför 2 (Play):
mánudaginn 28. apríl kl 21:30 frá Lissabon og lent í Keflavík kl 00:55+

Gisting

3 nætur á 4-5 stjörnu hóteli 
Innifalið er morgunverður, borgarskatturinn og wi-fi.

Rútur

Rútuferðir til og frá flugvelli upp á hótel, akstur 20-25 mín

Farastjórn

Tveir óendanlega hjálpfúsir og skemmtilegir fararstjórar frá Tripical.

Ferðalottó-Tripical

Við viljum magna upp stemninguna fyrir brottför með því að draga út heppin pör/einstaklinga sem fá óvæntan glaðning frá Tripical 

Skemmtitékkinn í boði Tripical

Við viljum gera árshátíðarferðina ógleymanlega! Þess vegna bjóðum við hópnum þínum upp á frítt skemmtiatriði í ferðinni. Hópar sem telja 75 eða fleiri og eru með skipulagða árshátíð á vegum Tripical geta valið sér skemmtikraft hér af síðunni. Viðkomandi skemmtikraftur þarf að vera laus á þeim dagsetningum sem óskað er eftir.  
Hægt er að kynna sér hvaða skemmtiatriði er hægt að fá með í ferðina með að ýta á hnappinn hér fyrir neðan.

Hótel

****

SANA Metropolitan Hotel er staðsett nálægt Praça de Espanha og í aðeins 5 mínútna akstursfjarlægð frá Marquês de Pombal-torgi. Það býður upp á herbergi með setusvæði, baðherbergi og flatskjásjónvörp.

Á SANA Metropolitan er boðið upp á sólarhringsmóttöku og viðskiptamiðstöð. Einnig er boðið upp á þvotta- og fatahreinsunarþjónustu.

Astrolábio veitingastaður hótelsins býður upp á úrval af portúgölskri og alþjóðlegri matargerð, bæði í hlaðborðsstíl og à la carte.

SANA Metropolitan Hotel býður upp á fundarherbergi og viðburðasvæði.

Sögulegi miðbærinn er í aðeins 5 mínútna akstursfjarlægð. Bílaleiga er í boði á gististaðnum.

Hótelið fær heildareinkunina 8,6 og 8,0 fyrir staðsetningu á booking.com

Verðin

169 990 kr

á mann í tvíbýli

30 000 kr

aukagjald í einbýli

Hótel

*****

Þetta nýlega enduruppgerða 5 stjörnu hótel býður upp á ókeypis upphitaða innisundlaug, spa og líkamsræktaraðstöðu í viðskiptahverfinu í Lissabon, einungis í 2 mínútna göngufæri frá tískuverslununum á Avenida da Liberdade og 700 metrum frá Príncipe Real.
Öll herbergin eru með glæsilegum og nýtískulegum innréttingum úr lúxus-svartviði. Þau eru í hlýjum litartónum og þau fela einnig í sér loftkælingu og vinnusvæði með góðri lýsingu. Ókeypis WiFi er í boði hvarvetna á hótelinu.

Grill D. Fernando veitingastaðurinn státar af stórkostlegu útsýni yfir Lissabon, Tagus-ána og S. Jorge-kastalann og framreiðir úrval af portúgölskum réttum með áherslu á ferskan fisk frá svæðinu. Heilnæmi morgunverðurinn felur í sér úrval af nýbökuðu sætabrauði og frægu Pastel de Nata-bökuna (hefðbundin kaka með vanillukremi).

Avenida-neðanjarðarlestarstöðin er í 400 metra fjarlægð og boðið er upp á ókeypis skutluþjónustu til og frá Belém-hverfinu, háð framboði og óskum.  Chiado er í innan við 20 mínútna göngufæri og líka barirnir í flotta Bairro Alto-hverfinu í Lissabon.

Hótelið fær heildareinkunina 8,8 og 9,0 fyrir staðsetningu á booking.com

Hótelið státar af fjölmörgum sölum sem henta mismunandi fundum og viðburðum.  Flestir salirnir eru með dagsbirtu.
Sameiginlegur kvöldverður getur verið á hótelinu, verð frá 12.900 fyrir fordrykk, 3 rétta kvöldverð og vínpakka.   Salarleiga með skjá, skjávarpa og míkrafón.

Verðin

199 990 kr

á mann í tvíbýli

60 000 kr

aukagjald í einbýli

Hótel

SANA Malhoa Hotel
****

SANA Malhoa Hotel er á frábærum stað, á milli viðskiptahverfisins og sumra af þekktustu kennileitum Lissabon, og býður upp á hinn fullkomna valkost fyrir alla ferðamenn, í viðskiptum eða tómstundum. Praça de Espanha-neðanjarðarlestarstöðin, El Cortes Inglês-verslunarmiðstöðin og Calouste Gulbenkian-safnið eru í aðeins 5 mínútna göngufjarlægð.

Öll herbergin og svíturnar eru innréttuð og hönnuð í nútímalegum stíl til að tryggja þægindi og vellíðan, með ókeypis Wi-Fi aðgangi meðal annars. Samskiptaherbergi eru í boði fyrir fjölskyldur sé þess óskað.

Nýi Mediterrâneo veitingastaðurinn með hitabeltis-nýlendustemningu og náttúrulegri lýsingu býður upp á yndislegt morgunverðarhlaðborð, hádegismat og kvöldmat. Einnig er boðið upp á herbergisþjónustu allan sólarhringinn. Barin er með yfirbyggða verönd með náttúrulegum hangandi garði en þar er tilvalið rými til að vinna eða einfaldlega slaka á, nýta sér snarl matseðilinn, með klassískum og töff kokteilum

Fyrir eða eftir annasaman dag er gestum boðið í sæluferð á SAYANNA WELLNESS & SPA - með 3 meðferðarherbergjum, slökunarherbergi, gufubaði, eimbað, nuddpotti og fullbúnu líkamsræktarherbergi.

SANA Malhoa Hotel er í innan við 5 mínútna göngufjarlægð frá Praça de Espanha-neðanjarðarlestarstöðinni. Það er innan við 15 mínútna akstursfjarlægð frá flugvellinum í Lissabon.

Hótelið fær heildareinkunina 8,7 og 8,2 fyrir staðsetningu á booking.com.

Verðin

184 990 kr

á mann í tvíbýli

45 000 kr

aukagjald í einbýli

Tilboðið sýnir verðhugmyndir og miðast við 320 manns. Fyrirvari er um að í leiguflug þarf 80% nýtingu. 
Endanlegt verð liggur fyrir þegar ferð er staðfest, staðfestingargjald þarf að greiða um leið og ferð er ákveðin svo hægt sé að tryggja flug og hótel. 


Arna Rut Kristinsdóttir

Fyrirtækjaferðir

S. 519 8900

GSM. 663 3313

Netfang: arna@tripical.com


Arnar Magnússon

Fyrirtækjaferðir

S. 519 8900

GSM. 848 1520

Netfang: arnar@tripical.com