til Nice
11. september til 15. september 2025

Í hinni dásamlegu höfuðborg Frönsku Rívíerunnar finnurðu hina fullkomnu leið til að njóta lífsins til fulls. Nice er svooo næs!

Nice var hluti af Ítalíu allt til ársins 1860 og því er auðvelt að finna bæði frönsk og ítölsk áhrif í arkitektúr, menningu og matargerð. Gamli bærinn (Vieux Nice) ber sterk ítölsk einkenni, og þar er skemmtilegt að týna sér á rölti um þröngar hlykkjóttar götur og stíga, njóta litagleðinnar í framhliðum húsanna og skoða fornar glæsibyggingar eins og Cathédrale Sainte-Réparate og 17. aldar safnið Palais Lascaris. Þar er líka mikið úrval af börum og veitingahúsum og hægt að gæða sér á ljúfum kokteil eða bjórglasi og horfa á himneskt sólarlagið. Hin víðfeðma göngugata Promenande des Anglais, eða ,,La Prom“ nær meðfram
risalangri strandlengju borgarinnar, með stórkostlegu útsýni út á hafið fyrir utan. Fyrir stórkostlegt útsýni og sjarmerandi umhverfi má líka mæla með göngu upp tröppurnar að Colline du Château (þangað gengur reyndar líka lyfta fyrir þau sem það kjósa). Strendurnar í og ​​við Nice eru auðvitað ein af meginástæðum fyrir vinsældum staðarins. Plage des Ponchettes er meðal þeirra vinsælustu, en einnig má nefna Plage Publique de Castel, og Plage de Carras en hún þykir einna best fyrir þau sem vilja meira fjör, eins og jet-ski, fallhlífasvif, brimbretti eða vindsængurrall.

Hvað er hægt að gera í Nice

Einn frægasti listamaður Frakka, Henri Mattisse, bjó í Nice til fjölda ára og þar er safn með öllum hans helstu verkum
Ertu í stuði til að gambla svolítið? Casino Barrière Le Ruhl er glæsilegur staður fyrir þess háttar
Á Cours Saleya er vinsæll götu-markaður (fyrst opnaður 1861) og dásamleg kaffihúsaverönd 
Hôtel Negresco er rúmlega 100 ára glamúrbygging við Promenade des Anglais, og dýrindis kokteilar á barnum
Strætókerfi svæðisins er mjög þægilegt og kvikmyndahátíðabærinn Cannes er skammt undan. Kíktu!
Le Shapko er geggjaður djassbar með lifandi tónlist og góðum stemmara öll kvöld vikunnar

Hvað er innifalið í ferðinni

Flug

Beint áætlunarflug með Icelandair, 1 innrituð 23 kg taska  og 10 kg.  handfarangur. 

Brottför

Brottför fimmtudaginn 11. september til Nice kl 16:25. Lending áætluð um kl 22:45

Flugtímar

Heimför mánudaginn 15. september til Keflavíkur kl 23:40 og áætluð lending kl 02:00.

Gisting

4 nætur á 3/4 stjörnu hóteli. Innifalið er morgun-verður, wi-fi og citytax.

Rútur

Rútuferðir til og frá flugvelli, aksturstími  15  mín

Farastjórn

Einn óendanlega hjálpfús og skemmtilegur fararstjóri frá Tripical.

Tripical sér um allt úti

Árshátíðarkvöldið

Við erum snillingar í að skipuleggja árshátíðina úti, bóka sal, velja matinn, skemmtikrafta og búa til ógleymanlegt kvöld

Hvað er hægt að gera úti?

Við getum boðið upp á dagsferðir úti sem hópurinn velur úr og bókar í gegnum sölukerfi Tripical.
Einnig setjum við upp dagskrá með meðmælum af veitingarstöðum, börum & vinsælum ferðamannastöðum.

Við reddum öllu!

Sérðfræðingar Tripical hafa áratugareynslu í að skipuleggja árshátíðarferðir hópa!

Ferðalóttó Tripical 

Við viljum magna upp stemninguna fyrir brottför með því að draga út heppin pör/einstaklinga sem fá óvæntan glaðing frá Tripical

Hótel

****

Hôtel Nice Azur Riviera er vel staðsett í miðbæ Nice og býður upp á loftkæld herbergi, sameiginlega setustofu, ókeypis WiFi og bar. Þetta 4 stjörnu hótel býður upp á herbergisþjónustu og sólarhringsmóttöku. Gistirýmið býður upp á viðskiptamiðstöð, alhliða móttökuþjónustu og skipulagningu ferða fyrir gesti.

Herbergin á hótelinu eru með skrifborði, flatskjá, sérbaðherbergi, rúmfötum og handklæðum. Einnig bjóða herbergin gestum upp á fataskáp og ketil.

Áhugaverðir staðir nálægt Hôtel Nice Azur Riviera eru meðal annars Plage Beau Rivage, Plage du Centenaire og Plage du Ruhl. Næsti flugvöllur er Nice Côte d'Azur-flugvöllurinn, 10 km frá gististaðnum.

Hótelið fær heildareinkunina 8,5 og 8,3 fyrir staðsetningu. 

Verðin

154 990 kr

á mann í tvíbýli

50 000 kr

aukagjald í einbýli

Hótel

****

Þetta Holiday Inn er staðsett í hjarta Nice, í aðeins 5 mínútna göngufjarlægð frá fræga Promenade des Anglais. Það býður upp á nútímalegt gistirými og er með æfingamiðstöð með sjávarútsýni og er opin allan sólarhringinn. Ókeypis WiFi er í boði.

Stílhrein herbergin og svíturnar á hótelinu eru prýdd nútímalegum stíl og hönnun og eru með marmara en-suite baðherbergi.

Hótelið er einnig í samstarfi við tvær einkastrendur í nágrenninu. Gestum geta nýtt sér nútímalega aðstöðu hótelsins á borð við sólstofu og æfingamiðstöð.

Veitingastaðurinn býður upp á rétti úr lífrænum hráefnum sem njóta má á veröndinni. Kokteilbarinn framreiðir drykki frá hádegi til miðnættis og er þar er einnig happy hour.

Holiday Inn Nice er í aðeins 10 mínútna göngufjarlægð frá gamla bæ Nice og sjónum. Alþjóðaflugvöllurinn í Nice er í 15 mínútna akstursfjarlægð.

Hótelið fær heildareinkunina 8,3 og 9,4 fyrir staðsetningu. 

Verðin

169 990 kr

á mann í tvíbýli

65 000 kr

aukagjald í einbýli

Tilboðið sýnir verðhugmyndir og miðast við 50 manns, 
Endanlegt verð liggur fyrir þegar ferð er staðfest, staðfestingargjald þarf að greiða um leið og ferð er ákveðin svo hægt sé að tryggja flug og hótel. 


Umsagnir fyrri hópa 

Smelltu hér á hnappinn til að sjá umsagnir ánægðra viðskiptavina Tripical!
Skoða umsagnir

Arnar Magnússon

Fyrirtækjaferðir

S. 519-8900

GSM. 848 1520

Netfang. arnar@tripical.com