Edinborg er höfuðborg Skotlands. Þar er heillandi borgarstæði, fallegar byggingar og tignarlegur kastali. Iðandi menningarlíf með góðar verslanir og úrval veitingahúsa.
,,Auld Reekie" eins og borgin heitir á skosku (og þyðir Old Smoky), sameinar hið gamla og nýja á sérstæðan hátt og þar upplifirðu hið einstaka skoska andrúmsloft. Á hæðinni fyrir ofan borgina stendur hinn tignarlegi Edinborgarkastali, táknmynd borgarinnar. Borgin býður upp á blöndu af miðöldum og nútíma, þar standa bókstaflega, hlið við hlið miðaldahúsaraðir og nytískulegar byggingar, kirkjur í gotneskum stíl og hús byggð eftir nútíma arkitektúr.
Næturlíf borgarinnar getur verið ansi villt, Edinborg er stundum kölluð Aþena norðursins. Að ekki sé minnst á alla veitingastaðina og pöbbana.
Síðast en ekki síst, þá er Edinborg festivalaborgin, þar sem festival nefnt eftir borginni er haldið ár hvert.
Allir ættu að finna eitthvað við sitt hæfi enda Skotar höfðingjalegir gestgjafar.
Hvað er hægt að gera í Edinborg
Útsýnið úr Edinborgarkastala er stórkostlegt
Sjónblekkingarsafnið er óvenjuleg skemmtun
Rannsaka Neðanjarðarborgina (Real Mary King´s Close)
Viskíáhugafólk er komið til himna. Prófaðu að smakka!
Minnismerki Scott er áhrifarík sjón
Tilvalið að skella sér í golf ef veður leyfir
Hvað er innifalið í ferðinni
Flug
Flug fram og til baka Easy jet til Edinborgar, 1 innrituð taska 15kg taska og 10kg handfarangur
Brottför
Brottför fimmtudaginn 2. janúar frá Keflavík kl 09:25 og lent í Edinborg kl 11:40
Heimkoma
Heimför sunnudaginn 5. janúar frá Edinborg kl 18:00 og lent í Keflavik kl 20:30
Gisting
3 nætur á 4 stjörnu hóteli - Innifalið er morgunverður og wi-fi.
Rútur
Rútuferð frá Edinborgar flugvelli að hóteli.
Farastjórn
Einn óendanlega hjálpfús og skemmtilegur fararstjóri frá Tripical.
Tripical sér um allt úti
Árshátíðarkvöldið
Við erum snillingar í að skipuleggja árshátíðina
úti, bóka sal, velja matinn, skemmtikrafta og búa til ógleymanlegt
kvöld
Hvað er hægt að gera úti?
Við getum boðið upp á dagsferðir
úti sem hópurinn velur úr og bókar í gegnum sölukerfi Tripical.
Einnig setjum við upp dagskrá
með meðmælum af veitingarstöðum, börum & vinsælum ferðamannastöðum.
Við reddum öllu!
Sérðfræðingar Tripical hafa áratugareynslu
í að skipuleggja árshátíðarferðir hópa!
Ferðalóttó Tripical
Við viljum magna upp stemninguna fyrir brottför með því að draga út heppið par sem fær óvæntan glaðning frá
Tripical í ferðinni
Skemmtitékkinn í boði Tripical
Við bjóðum þeim hópum sem halda árshátíð í gegnum Tripical
frían skemmtikraft til að gera kvöldið ógleymanlegt!
Hægt er að kynna sér hvaða skemmtiatriði er hægt að fá með í ferðina með að ýta á hnappinn hér fyrir neðan*
*Með fyrirvara um að skemmtikrafturinn sé laus þá daga sem árshátíðin er :)
Hótel
****
Frábært hótel í hjarta borgarinnar í miðbænum með útsýni yfir kastalahæðina. Rúmgóð og flott herbergi, stílhreint og snyrtilegt hótel. Í hverju herbergi er 32" LCD-sjónvarp. Herbergin eru einnig með ókeypis WiFi, sérbaðherbergi, minibar og te/kaffiaðbúnaði.
Á Novotel geta gestir slakað á í gufubaðinu eða æft í nútímalegu heilsuræktarstöðinni, heitur pottur og sundlaug eru á staðnum.
The Tap Kitchen & Bar framreiðir ameríska matargerð. Gestir geta smakkað skoska matargerð en hún er í boði á „Wee Menu“ gististaðarins, en þar er hægt að fá skoska rétti eftir árstíðum. Hanastél og handverksbjórar eru einnig fáanlegir.
Royal Lyceum-leikhúsið er aðeins í 5 mínútna göngufjarlægð og Princes-stræti er í 10 mínútna göngufjarlægð.
Hótelið fær 8.3 í einkunn á booking.com og 8.8 fyrir staðsetningu.
Verðin
184 990 kr
á mann í tvíbýli
75 000 kr
aukagjald í einbýli
Tilboðið sýnir verðhugmyndir og miðast við 100 manns, ekki hafa verið tekið frá flug og hótel. Endalegt verð liggur fyrir þegar ferð er staðfest og hægt er að bóka flug. Staðfestingargjald þarf að greiða um leið og ferð er ákveðin svo hægt sé að tryggja flug og hótel.
Umsagnir fyrri hópa
Smelltu hér á hnappinn til að sjá umsagnir ánægðra viðskiptavina Tripical!
Skoða umsagnir