Til Kaupmannahafnar  
2. janúar til 5. janúar 2025

Kóngsins Kaupmannahöfn er þekkt fyrir að vera menningarborg með stórfenglegan arkitektúr ekki síður en hönnun sem hefur haft áhrif um allan heim, og líka bjórinn þeirra, já og H.C.Andersen.

Danmörk er oft rómuð fyrir að vera eitt ,,grænasta“ land heims. Á fáum stöðum notar fólk reiðhjól í sama magni og hér. Danir eru mjög duglegir að flokka rusl og hugsa almennt mjög vel um umhverfið. Þetta hafa þeir gert um svo langt skeið að nýjum kynslóðum er þetta í blóð borið.
Einn af þekktari skemmtigörðum heims er miðsvæðis í borginni. Tívolíið er ekki bara vel þekkt víða um heim, það er eitt af elstu skemmtigörðum heims. Sjálfur Walt Disney nefndi eitt sinn að danska Tívolíið væri fyrirmynd að Disney garðinum hans.

Hér blandast gömlu ævintyrin saman við nytískulegan arkitektúr og hönnun á heimsmælikvarða, heitur jazz blandast við ískalt teknó í kjallaraklúbbi. Þér finnst eins og þú hafir séð allt á einum degi, en gætir auðveldlega skoðað þig um og séð nyja hluti svo mánuðum skipti.
Það er ótrúlega gaman að versla í Kaupmannahöfn og sterk hönnunarhefð er gegnumgangandi í verslunum borgarinnar. Engan þarf að kynna fyrir Strikinu, einni lengstu verslunargötu Evrópu og þeim fjölmörgu stórverslunum, hönnunarverslunum og alþjóðlegu vörumerkjum sem þar eru.

Hvað er hægt að gera í Kaupmannahöfn

Tívolíð í Kaupmannahöfn er eitthvað sem allir ætttu að skoða. 
Strikið fræga er vinsælt fyrir búðaráp og góða veitingastaði. Þar finna allir eitthvað sér við hæfi. 
Nyhavn eða nýhöfn eins og hún er kölluð á íslensku er fullkominn staður til að fara á til að fá sér kaffi og með því. 
Kíkja á Torvehallerne  markaðinn í Nørrebro
Svo er góður hjólreiðatúr kannski besta leiðin til að kynnast borgarlífinu
Reffen er stútfullt af menningarviðburðum, markaði og mat frá öllum heiminum

Hvað er innifalið í ferðinni

Flug

Beint flug með Play til og frá Kaupmannahöfn,  innifalið innrituð taska 20kg og handfarangur 8kg

Brottför

Brottför fimmtudaginn 2. janúar til Kaupmannahafnar kl 06:35. Lending áætluð um kl 10:45

Heimför

Heimför sunnudaginn 5. janúar til Keflavíkur kl 11:45 og áætluð lending kl 14:15.

Gisting

3 nætur á 4 stjörnu hóteli. Innifalið er morgunverður, wi-fi og city tax.

Rútur

Rútuferðir til og frá flugvelli í ca 20 mín

Farastjórn

Einn óendanlega hjálpfús og skemmtilegur fararstjóri frá Tripical.

Ferðalóttó Tripical 

Við viljum magna upp stemninguna fyrir brottför með því að draga út heppin pör/einstaklinga sem fá óvæntan glaðing frá Tripical

Skemmtitékkinn í boði Tripical

Við bjóðum þeim hópum sem halda árshátíð í gegnum Tripical 
frían skemmtikraft til að gera kvöldið ógleymanlegt!


Hægt er að kynna sér hvaða skemmtiatriði er hægt að fá með í ferðina með að ýta á hnappinn hér fyrir neðan*

*Með fyrirvara um að skemmtikrafturinn sé laus þá daga sem árshátíðin er :)

Hótel

****

Þetta vistvæna hótel er með þakverönd og er staðsett við Rådhuspladsen, aðeins 200 metra frá tívolíinu og aðallestarstöð Kaupmannahafnar. Frá morgunverðarsalnum og þakveröndinni er skemmtilegt útsýni yfir húsþök borgarinnar.

Öll herbergin á The Square eru fallega hönnuð, svokölluð naumhyggjuhönnun.  Í þeim er fatapressa, öryggishólf og loftkæling. Öll herbergin eru búin flatskjá með gervihnattarásum, minibar og skrifborði.

Hótelð státar af flottum bar sem býður upp á úrval drykkja og koktaila. Ókeypis WiFi er til staðar hvarvetna á hótelinu. Í sameiginlegu setustofunni er sjónvarp, dagblöð og úrval af tímaritum.

Strikið byrjar 150 metrum frá hótelinu. Veitingastaðir, barir, kaffihús og verslanir eru í göngufæri.

Hótelið fær heildareinkunina  8,2 og 9,6 fyrir staðsetningu.

Verðin

139  990 kr

á mann í tvíbýli

60 000 kr

aukagjald í einbýli

Tilboðið sýnir verðhugmyndir og miðast við 100 manns, 
Endanlegt verð liggur fyrir þegar ferð er staðfest, staðfestingargjald þarf að greiða um leið og ferð er ákveðin svo hægt sé að tryggja flug og hótel. 


Arnar Magnússon

Fyrirtækjaferðir

S. 519-8900

GSM. 848 1520

Netfang. arnar@tripical.com