
TilCorfu6. nóvember - 9. nóvember 2025
TilCorfu
6. nóvember - 9. nóvember 2025
Grikkir kalla hana Kerkyra, en annars er hún þekkt sem Corfu.Hrífandi eyja sem í áraraðir hefur glatt og skemmt gestum sínum með náttúrutöfrum, glæsiströndum og einstakri upplifun.
Þessi fallega eyja á sér heilmikla sögu, en þar hafa bæði Frakkar, Bretar og Ítalir ráðið ríkjum. Fornar byggingar og minjar standa þar enn, vel varðveittar. Má þar nefna gamla bæinn í Corfu Town sem er á heimsminjaskrá UNESCO, gamla virkið (Palaio Frourio), og nýja virkið (Neo Frourio). Hér er líka margra áratuga hefð fyrir ferðaþjónustu, enda eyjan full af hvers kyns ánægjulegri afþreyingu fyrir alla, og heimamenn þekktir fyrir gestrisni og góða þjónustu. Hér eru fallegar strendur, bæði gylltar sandstrendur og vel hannaðar grjótstrendur í dásamlegu umhverfi, þar sem þú getur valið hvaða skemmtun sem þú óskar þér, hvort sem þú vilt gott tjill eða þeytast um fagurgrænan hafflötinn á risavindsæng, jet-ski eða öðru tryllitæki, eða skoða litskrúðugt lífríkið neðansjávar. Næsti bar
eða veitingastaður eru auðvitað í seilingsfjarlægð. Hér er boðið upp á ljúfenga Miðjarðarhafsrétti, sem blandaðir eru hinum ýmsu menningar- straumum. Þá er næturlífið taktfast og fjörugt og fullt af iðandi skemmtun. Það er ekki að ástæðulausu að Corfu þykir frábær áningastaður fyrir hvers kyns hópaferðir, hvatningaferðir, skólaferðir og ráðstefnur. Sumir láta sér ekki nægja að koma bara einu sinni, ýmsir Ferrari- og fornbílaklúbbar hittast til að mynda þar með reglulegu millibili. Alls kyns skemmtiferðir eru í boði, heimsóknir í ólífugarða, á vínekrur, í bjórframleiðslur, jeppasafarí eða aðrar náttúru-skoðunarferðir. Svo geturðu líka bara farið þínar eigin leiðir og notið þeirrar fegurðar og lífsins gæða sem þessi yndiseyja býður upp á.
Hvað er hægt að gera á Corfu
Heimsókn í Achilleion
höllina er pínku möst, þó ekki væri nema fyrir útsýnið þaðan.
17. aldar marmarakirkjan í Kynopiastes
er dásamleg, eins og reyndar bærinn allur eins og hann leggur sig
Bærinn Nymphes er umkringdur fögrum fossum og vötnum, og býður upp á sögulegar byggingar og eðal matsölustaði
Viltu nöfn á góðum ströndum? Vromolimni
(partýströnd), Dassia
(mjög vinsæl), Liapades, Porto Timoni, Bouka, Petriti.
Og fleiri og fleiri
Besta næturlífið á Corfu ku vera í Kavos, Acharavi, Sidari, í Corfu Town og í gamla bænum þar
Farðu í rómantíska sólseturs siglingu. Margar slíkar ferðir bjóða upp á kvöldverð og aðra skemmtun
Hvað er innifalið í ferðinni
Flug
Flug fram og til baka með leiguflugi Tripical 1 innrituð taska 15 kg og 5 kg handfarangur.
Leiguflugsverðin miðast við gengi dagsins bæði á evrunni og eldsneytisverði
Brottför
Frá Egilsstöðum til Corfu á fimmtudegi, flugtímar koma síðar.
Flugtímar áætlaðir út snemma og heim um miðjan dag. Fluglengd um 4,5 - 5 klst
Heimför
Heimför frá Corfu til Egilsstaða á sunnudegi, flugtímar koma síðar.
Gisting
3 nætur á 4/5 stjörnu hóteli - Innifalið er morgunverður borgarskatturinn og wi-fi.
Rútur
Rútuferðir til og frá flugvelli í Corfu 25 - 30 mín
Farastjórn
Tveir óendanlega hjálpfúsir og skemmtilegir fararstjórar frá Tripical.
Ferðalottó-Tripical
Við viljum magna upp stemninguna fyrir brottför með því að draga út heppin pör/einstaklinga sem fá óvæntan glaðning frá Tripical
Skemmtitékkinn í boði Tripical
Við viljum gera árshátíðarferðina ógleymanlega! Þess vegna bjóðum við hópnum þínum upp á frítt skemmtiatriði í ferðinni. Hópar sem eru með skipulagða árshátíð á vegum Tripical geta valið sér skemmtikraft hér af síðunni. Viðkomandi skemmtikraftur þarf að vera laus á þeim dagsetningum sem óskað er eftir.
Hægt er að kynna sér hvaða skemmtiatriði er hægt að fá með í ferðina með að ýta á hnappinn hér fyrir neðan.
Hótel
-all inclusive-*****
Lúxus 5 stjörnu, all inclusive. opnar heim endalausra valkosta á töfrandi stað við vatnið. Hágæða matar- og drykkjarúrval sem hægt er að njóta yfir daginn, þar á meðal íburðarmikill morgun-, hádegis- og kvöldverður, à la carte veitingastöðum, dýrindis snarl á áætluðum tímabilum, Patisserie-Chocolaterie og Creperie-Gelateria staðir, ótakmarkaður drykkur frá kl. mikið úrval úrvalsmerkja, völdum vínmerkjum, hressandi kokteilum og hollum safi. Gestir njóta sundlaugar- og strandþjónustu, auk skemmtilegrar líkamsræktar- og vellíðunarstarfsemi. Fjölskyldur nýta sér ótrúlegan vatnagarð með ókeypis ótakmarkaðan aðgang.
Hótelið fær 8,6 í heildareinkun á booking.com og 8,9 fyrir staðsetningu
Verðin
284 990 kr
á mann í tvíbýli
70 000 kr
aukagjald í einbýli