Split
1. maí - 5. maí 2025  

Split er stærsta borg Dalmatíu. Hún er talin vera 1700 ára gömul og íbúafjöldi hennar gerir Split að næststærstu borg Króatíu. 

Í sögulegum kjarna Split, og listað á Heimsminjalista Menningarmálastofnunnar Sameinuðu þjóðanna (UNESCO), stendur stórbrotin höll rómverska keisarans Diocletian, bygging frá því um fjórðu öld fyrir Krist.  Í gegnum aldirnar hefur gamli bær Split byggst inn í og kringum höllina, þar má finna þrjú rómversk musteri og stærðarinnar grafhýsi.
Rómverjar byggðu mikið af byggingum Split og má þar finna fornminjar sem ná aftur til 500 f.kr. Borgin er afar ferðamannavæn og falleg.  Split býður einnig upp á mjög líflegt og spennandi næturlíf. Þar er margt hægt að gera sér til afþreyingar, og við mælum hiklaust með skoðunarferð um rómversku rústirnar sem borgin er byggð í kringum.

Hvað er hægt að gera í Split

Fara í vínsmökkun á Zinfandel Wine Bar í gamla bænum. Króatísku vínin koma skemmtilega á óvart!
Fara á markaðinn og kaupa alvöru nýtýndar Istriskar trufflur!!
Kafaða, snorkla eða sigla í tærasta hafi Evrópu - Adríahafinu
Liggja á ströndinni með kokteil í hönd og fylgjast með öllum snekkjunum
Skoða rómversku rústirnar og ekki gleyma að tékka á Járninu og gullna hliðinu 
Rölta um g amla bæinn og kíkja á höll Diocletian

Hvað er innifalið í ferðinni

Flug

Áætlunarflug Play, 1 innrituð taska 20 kg og 8 kg handfarangur.

Brottför

Brottför frá Keflavík fimmtudaginn 1.maí kl.09:35 og lent í Split 16:20

Heimför

Heimför frá Split mánudaginn 5.maí kl.17:25 og lent í Keflavík 20:30 

Gisting

4  nætur á 4/5 stjörnu hóteli. Innifalið er morgunverður, wi-fi og city tax.

Rútur

Rútuferðir til og frá flugvelli í Split ca. 25 mín

Farastjórn

Sé þess óskað - gegn gjaldi 

Tripical sér um allt úti

Árshátíðarkvöldið

Við erum snillingar í að skipuleggja árshátíðina úti, bóka sal, velja matinn, skemmtikrafta og búa til ógleymanlegt kvöld

Hvað er hægt að gera úti?

Við getum boðið upp á dagsferðir úti sem hópurinn velur úr og bókar í gegnum sölukerfi Tripical.
Einnig setjum við upp dagskrá með meðmælum af veitingarstöðum, börum & vinsælum ferðamannastöðum.

Við reddum öllu!

Sérðfræðingar Tripical hafa áratugareynslu í að skipuleggja árshátíðarferðir hópa!

 Ferðalóttó Tripical

Við viljum magna upp stemninguna fyrir brottför með því að draga út heppið par sem fær óvæntan glaðning frá 
Tripical í ferðinni

Hótel 

*****

Le Meridien Lav hótel er staðsett í Podstrana, 8 km suður af Split. Hótelið sem opnaði 2017 er með með 800 metra langa strandlínu, landslagshannaða garða og þaðan er útsýni yfir borgina og eyjarnar í kring. Á hótelinu eru 4 veitingastaðir allt frá króatískum og miðjarðarhafs mat yfir í skemmtilegan grillmat á ströndinni.
Við smábátahöfnina eru verslanir, barir og veitingahús.

Herbergin eru að meðaltali 30 fm og eru með lofthæðarháa glugga sem opnast út á stórar svalir, 40" snjallsjónvarp,Wi-Fi og háhraðanettengingu, hágæða húsgögn, sérstýrða loftkælingu, hárþurrku, mínibar og öryggishólf. 
Hótelið er með heilsulind á heimsmælikvarða sem inniheldur gufuböð, eimböð, nuddpott, nagla-og fótsnyrtingarstofur, djúpslökunarherbergi, líkamsrækt og dásamlega infinity sundlaug. Mikið úrval meðferða er í boði í heilsulindinni, 
Einnig er mikið í boði á hótelinu eins og tennisvelli, vatnasport, hjól og bátsferðir.
Á hótelinu er næturklúbbur sem hægt er að leigja undir hópinn.

Hótelið fær heildareinkunina 8,3 og 8,7 fyrir staðsetningu. 

Verðin

189 990 kr

á mann í tvíbýli

60 000 kr

aukagjald í einbýli

Hótel 

****

Amphora Hotel er staðsett við ströndina og býður upp á 3 sundlaugar með sundlaugarbar, sólbekkjum og sólhlífum. Það er staðsett í Split og er með 2 veitingastaði, bar og heilsulind og vellíðunaraðstöðu.

Öll herbergin eru nútímalega og glæsilega innréttuð og státa af setusvæði með TV, loftkælingu, minibar, skrifborði og svölum. Sérbaðherbergið er með sturtu, hárþurrku og ókeypis snyrtivörum. Baðsloppur og inniskór eru í boði fyrir gesti. Hótelið býður upp á líkamsræktarstöð og sólarhringsmóttöku. Æðislegur morgunverður er í boði á hverjum morgni.

Áhugaverðir staðir í nágrenni Amphora Hotel eru meðal annars Znjan-ströndin, Duilovo-hundaströndin og Trstenik. 

Hótelið fær heildareinkunina 8,5 og 8,5 fyrir staðsetningu. 

Verðin

 194 990 kr

á mann í tvíbýli

60 000 kr

aukagjald í einbýli

Hótel 

****

Marvie Hotel opnaði í júlí 2017 og býður upp á heilsulind, útisundlaug á þaki og veitingastað. Það er staðsett í Split, 1,5 km frá Diocletian-höllinni og 650 metrum frá næstu strönd. Ókeypis WiFi er til staðar hvarvetna.

Öll herbergin á þessu hóteli eru með loftkælingu og flatskjásjónvarpi. Þú finnur ketil í herberginu. Öll herbergin eru með sérbaðherbergi. Aukahlutir eru baðsloppar, inniskór og ókeypis snyrtivörur.

Gestir geta fengið sér drykk á barnum. Á hótelinu er heitur pottur og líkamsræktarstöð. Hægt er að bóka ýmis nudd á staðnum. Bacvice-ströndin er 800 metrum frá Marvie Hotel.

Hótelið fær heildareinkunina 9,0 og 8,7 fyrir staðsetningu. 

Verðin

 184 990 kr

á mann í tvíbýli

50 000 kr

aukagjald í einbýli

Verðin miðast við 50-60 manns. Ekki hefur verið tekið frá flug og hótel. Verðin eru viðmiðunarverð fyrir umbeðið tímabil. Endanlegt verð liggur fyrir til kynningar og samþykktar þegar að dagsetning ferðar hefur verið ákveðin.


Umsagnir fyrri hópa 

Smelltu hér á hnappinn til að sjá umsagnir ánægðra viðskiptavina Tripical!
Skoða umsagnir

Arna Rut Kristinsdóttir

Fyrirtækjaferðir

S. 519-8900

GSM. 6633313

Netfang. arna@tripical.com