
Til Dublin
21. nóvember - 24. nóvember 2025
Dublinarbúar hafa getið sér góðan orðstír sem bráðfyndnir og dásamlegir gestgjafar og eru barirnir, tónlistin og frásagnarlistin óviðjafnanleg.
Dublin er yfirfull af fyrsta flokks skemmtun á hverju horni, allt frá heimsbókmenntun til listaverka á heimsmælikvarða.
Sögu Írlands er finna út um gervalla Dublin, frá stórfengle gum dómkirkjum til sögufrægra fangelsa, að ógleymdum töfrum Guinness brugghússins. Í borginni er að finna yfir 1000 ölknæpur. Margir barir bjóða upp á mat samhliða flæðandi Guinnes bjór og írsku viskíi.
Sláinte!
Gæddu þér á einhverjum af þjóðarréttum Íra eins og írsku boxty, colcannon eða champ? Þú munt kynnast kartöflum á nýjan hátt og í margvíslegum búningi, en sömuleiðis munt þú finna glæsilega veitingastaði sem bjóða upp á gómsæta dýrindisrétti beint frá býli. Ekki sleppa því að smakka sódabrauð sem er ostur. Eða fara á Temple Bar eða sjá strákana í Merry Ploughboys.
Hvað er hægt að gera í Dublin
Upplifðu heitt súkkulaði á Butlers Chocolate Café
Borgin er full af söfnum en eitt sem stendur upp úr er Safn Holdsveikra.
Grafton street er þeirra verslunargata þar eru margir barir og kaffihús.
Farðu á viskísafnið eða Irish Whiskey Museum!
The Trinity College
býður upp á fegurstu og eina elstu bók í heimi.
Barir og knæpur allt fullt af þeim en spurning að skella sér í Guinnes bjórverksmiðjuna?
Hvað er innifalið í ferðinni
Flug
Beint flug með PLAY, innrituð allt að 20 kg farangurstaska og 10 kg í handfarangur sem passar undir sætið fyrir framan.
Flogið út
Flogið á föstudeginum 21. nóvember frá Keflavík kl. 07:00 og lent í Dublin kl 09:40.
Flogið heim
Flogið á mánudeginum 24. nóvember frá Dublin kl 11:00 og lent í Keflavik kl 13:40
Gisting
3 nætur á 4ra stjörnu hóteli, morgunverður innifalinn sem og wifi og gistináttaskatturinn
Rútur
Rútuferðir til og frá flugvelli til Dublin 20 mín akstur
Farastjórn
Einn óendanlega hjálpfús og skemmtilegur fararstjóri frá Tripical.
Tripical sér um allt úti
Árshátíðarkvöldið
Við erum snillingar í að skipuleggja árshátíðina
úti, bóka sal, velja matinn, skemmtikrafta og búa til ógleymanlegt
kvöld
Hvað er hægt að gera úti?
Við getum boðið upp á dagsferðir
úti sem hópurinn velur úr og bókar í gegnum sölukerfi Tripical.
Einnig setjum við upp dagskrá
með meðmælum af veitingarstöðum, börum & vinsælum ferðamannastöðum.
Við reddum öllu!
Sérðfræðingar Tripical hafa áratugareynslu
í að skipuleggja árshátíðarferðir hópa!
Ferðalóttó Tripical
Við viljum magna upp stemninguna fyrir brottför með því að draga út heppið par sem fær óvæntan glaðning frá
Tripical í ferðinni
Skemmtitékkinn í boði Tripical
Við viljum gera árshátíðarferðina ógleymanlega! Þess vegna bjóðum við hópnum þínum upp á frítt skemmtiatriði í ferðinni. Hópar sem telja 75 eða fleiri og eru með skipulagða árshátíð á vegum Tripical geta valið sér skemmtikraft hér af síðunni.
Viðkomandi skemmtikraftur þarf að vera laus á þeim dagsetningum sem óskað er eftir.
Hægt er að kynna sér hvaða skemmtiatriði er hægt að fá með í ferðina með að ýta á hnappinn hér fyrir neðan.
Hótel
***
Gestir eru boðnir velkomnir á Holiday Inn Express® Dublin City Centre en það er staðsett í hjarta O'Connell Street í Dublin. Þetta nútímalega og glæsilega hótel býður upp á samkeppnishæf verð á hentugum stað í miðbænum.
Holiday Inn Express® Dublin City Centre er í aðeins 20 mínútna akstursfjarlægð frá flugvellinum í Dublin og er aðgengilegt með Aircoach, Airlink eða 747-strætisvagni. Luas (léttlestarkerfi Dublin) stoppar beint á móti hótelinu og er tilvalin leið til að skoða höfuðborgina og nærliggjandi svæði.
Það er fullkominn kostur hvort sem gestir eru að skipuleggja viðskiptaferð til Dublin, fjölskyldufrí til Dublin, stelpuhelgi eða að fara á íþróttaviðburði eða tónleika í Dublin. Það býður upp á 198 herbergi, 3 fundarherbergi, ókeypis morgunverð og ókeypis WiFi hvarvetna. Gestir eru með greiðan aðgang að The 3 Arena, ráðstefnumiðstöðinni Convention Centre Dublin, Croke Park, Aviva Stadium og líflega næturlífinu á Temple Bar.
Holiday Inn Express® Dublin City Centre er einnig við hliðina á öllum bestu verslunum borgarinnar, í aðeins 3 mínútna göngufjarlægð frá Henry Street, sem er vinsælasti verslunarstaður Dublin og í stuttri göngufjarlægð frá Grafton Street, sem er hin aðalverslunargatan í miðbæ Dublin. Stærsta verslunarmiðstöð Írlands, Dundrum Town Centre, er í stuttri fjarlægð með Luas-léttlestinni frá hótelinu.
Listunnendur munu kunna að meta nálægð hótelsins við áhugaverðustu staði Dublin en það er staðsett miðsvæðis í menningarkjarna Dublin. The Hugh Lane, elsta gallerí með nútímalist og samtímalist á Írlandi, er í 5 mínútna göngufjarlægð frá Holiday Inn Express® Dublin City Centre og The National Gallery er í aðeins 20 mínútna göngufjarlægð og er einnig auðveldlega aðgengilegt með Luas-léttlest. Leikhúsið Gate Theatre er í 2 mínútna göngufjarlægð og önnur leikhús Dublin eru í nágrenninu.
Hótelið fær heildareinkunn 8,6 og 9,5 fyrir staðsetningu á booking.com
Verðin
114 990 kr
Á mann í tvíbýli
45 000 kr
Einbýli - aukagjald
Hótel
****
Clayton Hotel Burlington Road er í aðeins 20 mínútna göngufjarlægð frá miðbæ Dublin og býður upp á líkamsræktaraðstöðu með útsýni yfir borgina, flottan bar og glæsilegan veitingastað. Aviva-leikvangurinn er aðeins í 20 mínútna fjarlægð og Bord Gais Theatre er í 16 mínútna göngufjarlægð.
Glæsileg herbergin eru með sjónvarp með íþrótta- og fréttarásum allan sólarhringinn. Hvert herbergi býður einnig upp á rúmgott skrifborð og ókeypis WiFi.
Gestir geta notið kokkteila á B Bar á Clayton Hotel Burlington Road. Veitingastaðurinn Sussex býður upp á nútímalega matargerð, með réttum sem eru gerðir úr staðbundnu hráefni.
Clayton Hotel Burlington Road er staðsett í hjarta hins græna suðurhluta Dublin og býður upp á vinsæla ráðstefnuaðstöðu. Ein hæðin er sérstök viðskiptahæð og þar er glæsilegur danssalur. Gestir geta nýtt sér líkamsræktarstöðina, sem státar af nýjustu tækjum.
Hótelið fær heildareinkunn 8,3 og 8,6 fyrir staðsetningu á booking.com
Verðin
139 990 kr
Á mann í tvíbýli
60 000 kr
Einbýli - aukagjald
Verðin miðast við 100 manns. Endanlegt verð liggur fyrir til kynningar og samþykktar þegar að dagsetning ferðar hefur verið ákveðin. Staðfestingargjald þarf að greiða um leið og ferð er ákveðin svo hægt sé að tryggja flug og hótel.
Umsagnir fyrri hópa
Smelltu hér á hnappinn til að sjá umsagnir ánægðra viðskiptavina Tripical!
Skoða umsagnir