til Prag 
1. maí til 4. maí 2025

Rómuð fyrir magnaðar hallarbyggingar, kirkjur brýr og torg, sín breiðu stræti og þröngu mystísku göngugötur. Stórborgin Prag rekur sögu sína aftur til 9. aldar og er í heild sinni eitt stórkostlegt listaverk!

Prag slapp nánast  heil frá sprengjuregni síðari heimsstyrjaldarinnar og því standa hinar fjölmörgu stórbyggingar þar í sinni upprunalegu mynd, sumar hverjar allt frá upphafsárum borgarinnar. Lengsta á Tékklands, Vltava rennur um borgina miðja og skiptir henni í tvennt.
Gamli bærinn er hjartað í sögulegum kjarna Prag og þar í kring má finna tignarlegar Barokkhallir og gotneskar kirkjur. Þar er einnig hin mjög svo merkilega Stjörnfræðiklukka (Astronomical Clock) sem byggð var á miðöldum, og Charles brúin frá 14. öld. 
Hér er sannarlega ekki aðeins boðið upp á augnakonfekt hvert sem litið er. Prag er þrátt fyrir aldurinn full af lífi, og næturnar einkennast af gleði og gáska. Tékkar eru þekktir fyrir bjórgerð, en auk þess eru snafsar af margvíslegu tagi afar vinsælir. Þjóðlegir réttir einkennast aðallega af kjöti og matarmiklum súpum. Rétt er að benda á að tékkneskur "burger" er ekki endilega það sama og við eigum að venjast, heldur nokkurs konar snitsel, stundum úr fiski, stundum kjöti og umvafið raspi. Hina klassísku borgara má þó auðvitað finna víða. 

Hvað er hægt að gera í Prag

Prag kastalinn er sá elsti í heimi skv. Heimsmetabók Guiness
Prague Dancing House er ótrúleg bygging sem hiklaust má mæla með 
Fyrir spennuþyrsta er mikið úrval af Escape Rooms í borginni, einna vinsælast er Puzzle Room Prague 
Strahov klaustrið stendur á hæð einni í borginni, stútfullt af sögu og gersemum  
Josefov gyðingahverfið er afar áhugavert
Alls kyns vín- og matarsmakk ferðir má finna hér og þar um borgina

Hvað er innifalið í ferðinni

Flug

Beint flug til og frá Prag með Play í áætlunarflugi innrituð 20kg taska ásamt 10kg handfarangri sem passar undir sætið.

Flogið út

Brottför frá Keflavík fimmtudaginn 1. maí kl.15:00 og lent í Prag 20:50.

Flogið heim

Brottför frá Prag sunnudaginn 4. maí,
kl.21:50 og lent í Keflavík 23:55. 

Gisting

3 nætur á 4-5 stjörnu hóteli. Innifalið er morgunverður, wi-fi og city tax.

Rutur

Rútuferðir til og frá flugvelli í Prag ca 25 mín

Farastjórn

Einn óendanlega hjálpfús og skemmtilegur fararstjóri frá Tripical.

 Ferðalottó Tripical

Við viljum magna upp stemninguna fyrir brottför með því að draga út 1 heppið par/einstakling sem fær óvæntan glaðning frá Tripical 

Hótel

Grandior Hotel Prague
*****

Grandior Hotel Prague er 5* hönnunarhótel sem er staðsett í miðbænum en það býður upp á veitingastað og rúmgóð herbergi með ókeypis WiFi, mjög nálægt almenningssamgöngum.

Herbergin eru björt og eru með loftkælingu, klassísk húsgögn, öryggishólf, LCD-gervihnattasjónvarp, minibar, skrifborð og ókeypis te-/kaffiaðstöðu. Baðherbergið er með baðkar eða sturtu og býður upp á L'Occitane-snyrtivörur, baðsloppa, inniskó og gólfhita. Straubúnaður er einnig til staðar.
Morgunverður er í boði á hverjum morgni. Gestir geta snætt á veitingastað hótelsins sem framreiðir alþjóðlega rétti og notið drykkjar á barnum á staðnum. Mörg kaffihús og matvöruverslanir eru í nágrenninu. Sólarhringsmóttaka er til staðar fyrir gesti.

Karlsbrúin er í 2 km fjarlægð frá Grandior Hotel Prague, torgið í gamla bænum með Stjörnuklukkunni er í 1,2 km fjarlægð og Wenceslas-torgið er í 1,3 km fjarlægð frá Grandior Hotel Prague.

Sporvagna- og strætisvagnastoppið Bílá labuĆ„ er staðsett í 3 sekúndna göngufjarlægð frá aðaldyrunum og Florenc-neðanjarðarlestarstöðin er í 2 mínútna göngufjarlægð.

Hótelið fær heildareinkunina 8,8 og 9,2 fyrir staðsetningu. 

Hótelið er með fallega bjarta sali sem henta undir árshátíðarkvöldverð, fundahöld og kokteilboð.  Salirnir eru búnir nýjust tækni og búnaði og flestir eru með dagsljósi.  Verð fyrir árshátíðarkvöldverð í sér sal er frá 15.900,-  Innifalið:  fordrykkur, 3 rétta kvöldverður, 2 klt drykkjarpakki (ótakm hvítt/rautt, bjór og gos) og salarleiga.  Tæknibúnaður eins og skjár, skjávarpi og míkrafónn er reiknaður sér og fer eftir umfangi..

Verðin

 164 990 kr

á mann í tvíbýli

55 000 kr

aukagjald í einbýli

Verðin miðast við 160 manns. Ekki hefur verið tekið frá flug og hótel. Verðin eru viðmiðunarverð fyrir umbeðið tímabil. Endanlegt verð liggur fyrir til kynningar og samþykktar þegar að dagsetning ferðar hefur verið ákveðin.



Arnar Magnússon

Fyrirtækjaferðir

S. 519-8900

GSM. 848 1520

Netfang. arnar@tripical.com