til Búdapest 
1. maí til 5. maí 2025 

Búdapest er paradís hinna ferðaglöðu. Stórbrotin borg, mótuð af menningarstraumum liðinna alda. Mögnuð saga, töfrandi arkitektúr og merkileg menning - algjör fjársjóður. Ekki að ástæðulausu að Búdapest er oft kölluð París austursins!

Um borgina miðja rennur Dóná,  sitthvoru megin hennar standa Buda og Pest, sem sameinuðust formlega í eina borg árið 1873. Það hefur gengið á ýmsu í Ungverjalandi í gegnum tíðina. Þetta sýna byssukúluör og ummerki eftir sprengjur seinni heimstyrjaldarinnar og frá uppreisninni 1956, sem finna má víða um borgina. Það er í raun eins og að fara í litla Evrópureisu þegar maður sekkur sér í sögu Búdapest, svo fjölbreytt og stórbrotin er hún. Og byggingar hennar og tignarleg mannvirkin gera mann hreinlega orðlausan, en borgin var einmitt sett á heimsminjaskrá UNESCO fyrir menningar- og byggingarsögu sína.
Á milli þess sem þú dásamar fagrar byggingarnar, getur þú skellt þér í tyrknest baðhús og pústað aðeins, en hitauppstreymi frá jörðu er vinsæll orkugjafi fyrir fjölmargar heilsulindir borgarinnar. Þá þykir sólsetur í Búdapest eitt það fegursta í allri E vrópu og margir sem leggja ýmislegt á sig til að verða vitni að því.
Verðlag er hagstætt, maturinn er góður, íbúarnir eru vinalegir og veðrið er gott.
Njóttu!

Hvað er hægt að gera í Búdapest

Þinghúsið, Kossuth Lajos tér, er stærsta bygging í Evrópu, hvorki meira né minna
Margrétareyja er einstaklega fallegur staður að sigla í og njóta
Alls staðar er hægt að leigja hjól, bæði venjuleg og rafmagns, og gaman að skoða borgina þannig
Sjúkrahússafnið, staðsett í helli á Castle Hill er sjón sögu ríkari
Hryllingshúsið, House of Terror, geymir erfiða en afar athyglisverða sögu
Konungshöllin, Királyi palota, er ein vinsælasti staður borgarinnar og ekki að ástæðulausu

Hvað er innifalið í ferðinni

Flug

Flug fram og til baka með leiguflugi Tripical 1 innrituð taska 15 kg og 8 kg handfarangur. 

Leiguflugsverðin miðast við gengi dagsins bæði á evrunni og eldsneytisverði

Brottför

Frá Keflavík til Búdapest á fimmtudeginum 1. maí, flugtímar koma síðar.

Flugtímar áætlaðir út snemma og heim um miðjan dag. Fluglengd um 4 - 4,5 klst

Heimkoma

Frá Budapest til Keflavíkur á mánudeginum 5. maí, brottför eftir hádegi.

Gisting

4 nætur á 4* hóteli. Innifalið er morgunverður og wi-fi og city tax.

Rútur

Rútuferðir til og frá flugvelli í Búdapest, ca 30 mín

Farastjórn

Einn óendanlega hjálpfús og skemmtilegur fararstjóri frá Tripical

Hverju er hægt að bæta við pakkann

Sigling

Sigling eftir ánni Dóná kostar allt frá 8.900 kr. á manninn upp í 24.900 kr. á mann eftir tíma og hvort hádegis- eða kvöldverður sé innifalið í verðinu.

Gönguferð um miðbæinn

Gönguferð um miðbæinn með leiðsögn kostar allt frá 5.900 kr. á manninn eftir því hvort þið takið hádegisverð með eða aðgangi að söfnum.

Árshátíðarkvöldverður

Kvöldverður fyrir hópinn er allt frá 8.900 kr. án drykkjarpakka upp í 19.900 kr. með opnum bar.
Einnig ferð verðið eftir því hvaða matseðill er valinn.

 Ferðalottó Tripical

Við viljum magna upp stemninguna fyrir brottför með því að draga út heppin pör/einstaklinga sem fá óvæntan glaðning frá Tripical 

Skemmtitékkinn í boði Tripical

Við bjóðum þeim hópum sem halda árshátíð í gegnum Tripical 
frían skemmtikraft til að gera kvöldið ógleymanlegt!


Hægt er að kynna sér hvaða skemmtiatriði er hægt að fá með í ferðina með að ýta á hnappinn hér fyrir neðan*

*Með fyrirvara um að skemmtikrafturinn sé laus þá daga sem árshátíðin er :)


Skoða skemmtitékka

Hótel

****

Monastery Boutique Hotel Budapest er staðsett í innan við 600 metra fjarlægð frá Fisherman's Bastion, 700 metrum frá Keðjubrúnni og það er nálægt nokkrum þekktum áhugaverðum stöðum. Hótelið býður upp á sólarhringsmóttöku og ókeypis WiFi á öllum svæðum.

Herbergin eru með skrifborði, flatskjá, sérbaðherbergi, loftkælingu og fataskáp.

Ríkulegt morgunverðarhlaðborð er í boði á hverjum morgni á hótelinu. Margar verslanir, barir, kaffihús og veitingastaðir má finna í nærliggjandi götum.

Gestir geta notið hjólreiða í nágrenninu og móttaka gististaðarins getur veitt ábendingar um svæðið.

Næsta neðanjarðarlestarstöð er í 600 metra fjarlægð. Buda-kastalinn er 1,4 km frá hótelinu og ríkisóperan er í 2,1 km fjarlægð. Næsti flugvöllur er Budapest Ferenc Liszt-alþjóðaflugvöllurinn, 23 km frá Monastery Boutique Hotel Budapest.

Hótelið fær heildareinkunina 9,1 og 9,4 fyrir staðsetningu á Booking.com

Verðin

209 990 kr

á mann í tvíbýli

40 000 kr

aukagjald í einbýli

Hótel

****

Hotel Zenit Budapest Palace er staðsett í sögulega miðbænum í Búdapest og í 50 metra fjarlægð frá árbakka Dónár. Það státar af veitingastað sem framreiðir alþjóðlega matargerð og vellíðunarsvæði með líkamsræktaraðstöðu og gufubaði.

Ókeypis Wi-Fi-Internet er í boði hvarvetna á hótelinu. Gegn aukagjaldi og háð framboði geta gestir einnig fengið lánaðan Wi-Fi-netpung en hann má nota í bænum.

Öllum herbergjunum fylgja loftkæling og nútímalegar innréttingar. Þau eru með gervihnattasjónvarp, öryggishólf og minibar. Allar einingarnar innifela einnig sérbaðherbergi með sturtu eða baðkar.

Zenit Budapest Palace Hotel býður upp á valfrjálst morgunverðarhlaðborð en þar geta gestir fengið nýútbúnar eggjakökur. Einnig er boðið upp á strau- og þvottaþjónustu. Almenningsbílastæði er í boði gegn aukagjaldi.

Margir af áhugaverðustu stöðum borgarinnar eru staðsettir í næsta nágrenni við hótelið. Það eru mörg kaffihús og veitingastaðir á Váci utca en það er glæsilega verslunargöngugata borgarinnar. Deak Square, þar sem finna má 3 neðanjarðarlestarlínur (M1, M2, M3), er í innan við 500 metra fjarlægð. St. Stephen's-basilíkan er í 1 km fjarlægð frá gististaðnum en Óperuhúsið og Andrássy-breiðstrætið eru í 1,5 km fjarlægð.

Hótelið fær heildareinkunina 8,6 og 9,7 fyrir staðsetningu á Booking.com.

Verðin

224 990 kr

á mann í tvíbýli

55 000 kr

aukagjald í einbýli

Hótel

****

Hið 4 stjörnu Hotel President er rétt við hliðina á ungverska seðlabankanum og viðskiptaráðinu. Það býður upp á þakverönd með víðáttumiklu útsýni og vellíðunaraðstöðu.

Ókeypis internet og Wi-Fi eru staðalbúnaður í öllum herbergjum. Öll herbergin eru einnig með loftkælingu, gervihnattasjónvarpi og minibar. Hárþurrka og snyrtivörur eru til staðar á baðherbergjunum.

Innlendur og alþjóðlegur matur er borinn fram á glæsilega Intermezzo Café & Restaurant. Herbergisþjónusta er í boði.

Gestir geta einnig nýtt sér gufubað og líkamsræktarstöð.

Í aðeins 200 metra fjarlægð er Arany János Utca-neðanjarðarlestarstöðin, á M3 línunni. St. Stephen's Basilíkan er í aðeins 5 mínútna göngufjarlægð niður götuna.

Hótelið fær heildareinkunina 8,0 og 9,4 fyrir staðsetningu á Booking.com.

Verðin

224 990 kr

á mann í tvíbýli

50 000 kr

aukagjald í einbýli

Tilboðið er fyrir 160 manns í einni brottför, flogið er í leiguflugi og er miðað við að minnst 80% sætanýting sé í flugi með leiguflugi. 
 Endanlegt verð liggur ekki fyrir fyrr en ferð hefur verið ákveðin og hægt er að bóka flug og hótel. 


Umsagnir fyrri hópa

Smelltu hér á hnappinn til að sjá umsagnir ánægðra viðskiptavina Tripical!
Skoða umsagnir

Arnar Magnússon

Fyrirtækjaferðir

S. 519 8900

GSM. 848 1520

Netfang: arnar@tripical.com