
Til Aberdeen24. apríl - 27. apríl 2025
Kannski ertu að hugsa, “af hverju Aberdeen?”. Góð spurning! Við ætlum að svara þeirri spurningu, og ekki nóg með það, þá ætlum við að kynna borgina fyrir þér þannig að þú getur ekki staðist freistingu að skella þér til Skotlands.
Norðarlega, eins og Ísland, þá er Aberdeen orkuborg. Ofan á það er Aberdeen þekkt undir nafninu Granítborgin en nafnið er viðeigandi að tvennu leiti, svæðið er mikið byggt upp úr silfurgrænu graníti sem sem var grafið í nú yfirgefnu Rubislaw Quarry námunni sem eitt sinn var dýpsta manngerða hola í Evrópu. Hin ástæðan fyrir nafninu er sú að fólkið og hugarfar þess er graníthart!
Á góðum sólardegi má sjá borgina glitra vegna endurkasts granítsins. Aftur á móti á lágskýuðum gráum degi er erfitt að átta sig á því hvar byggingarnar enda og himininn byrjar.
Það sem svæðið hefur með sér, er hrikalega flott og sjónrænt landslag. Hefur Aberdeen verið á mikilli uppsiglingu undanfarin ár og er nú orðin að ansi mikilvæg skoska landanum, drifinn af olíuiðnaði í Norðursjónum. Olíupeningurinn hefur gert fær borgina nær London og Edinborg. Er hún í dag því orðin meiri “lúxusborg” en hún var hér áður fyrr. Hótel, veitingastaðir og klúbbar sem sprottið upp eins og gorkúlur og því virkilega mikið að sjá, skoða og gera. Það er ekki nóg að geyma bara flott klúbba og bari, heldur geymir borgin mikið úrval af menningarlegri hlutum, t.d. lista- og sögu söfnum, og meira að segja stórt moll þar sem hægt er að versla eins og brjálæðingur (mjög kúltúral!).
Hvað er hægt að gera í Aberdeen
Fara á ströndina! Já, það er strönd í Aberdeen.
Shire Castle & Distillery tour
Aberdeen Maritime Museum
Hvað er innifalið í ferðinni
Flug
Beint flug með leiguflugi Icelandair, innrituð allt að 20kg farangurstaska og 10kg í handfarangur
Flogið út
Frá Akureyrarflugvelli 24.apríl með leiguflugi að morgni og lent í Aberdeen um hádegi.
Flogið heim
Flogið frá Aberdeen 27. apríl um miðjan daginn og lent að seinnipartinn á Akureyrarflugvelli.
Gisting
3 nætur á 4/5 stjörnu hóteli. Innifalið er morgunverður, wi-fi, gisti- og borgarskatturinn.
Rútur
Rútuferðir til og frá flugvelli í Aberdeen 25-30 mín akstur
Farastjórn
Einn óendanlega hjálpfús og skemmtilegur fararstjóri frá Tripical.
Tripical sér um allt úti
Árshátíðarkvöldið
Við erum snillingar í að skipuleggja árshátíðina
úti, bóka sal, velja matinn, skemmtikrafta og búa til ógleymanlegt
kvöld
Hvað er hægt að gera úti?
Við getum boðið upp á dagsferðir
úti sem hópurinn velur úr og bókar í gegnum sölukerfi Tripical.
Einnig setjum við upp dagskrá
með meðmælum af veitingarstöðum, börum & vinsælum ferðamannastöðum.
Við reddum öllu!
Sérðfræðingar Tripical hafa áratugareynslu
í að skipuleggja árshátíðarferðir hópa!
Ferðalottó Tripical
Við viljum magna upp stemninguna fyrir brottför með því að draga út heppin pör/einstaklinga sem fá óvæntan glaðing frá Tripical
Skemmtitékkinn í boði Tripical
Við bjóðum þeim hópum sem halda árshátíð í gegnum Tripical
frían skemmtikraft til að gera kvöldið ógleymanlegt!
Hægt er að kynna sér hvaða skemmtiatriði er hægt að fá með í ferðina með að ýta á hnappinn hér fyrir neðan*
*Með fyrirvara um að skemmtikrafturinn sé laus þá daga sem árshátíðin er :)
Hótel
****
Sandman Signature Aberdeen Hotel & Spa býður upp á gistingu í Aberdeen. Meðal hinna ýmsu aðstöðu er sameiginleg setustofa, bar, líkamsræktarsvæði á staðnum, lúxus heilsulind og verslun sem er opin allan sólarhringinn. Ókeypis WiFi er í boði.
Öll herbergin á hótelinu eru búin flatskjásjónvarpi, ísskáp og örbylgjuofni. Sérbaðherbergið er með sturtu. Allar einingarnar eru með sérbaðherbergi og ókeypis snyrtivörum. Sum herbergin eru með skrifborði.
Morgunverður er í boði daglega og inniheldur hlaðborð.
Sandman Signature Aberdeen Hotel & Spa getur veitt upplýsingar í móttökunni til að hjálpa gestum að komast um svæðið.
Áhugaverðir staðir í nágrenni gististaðarins eru meðal annars Beach Ballroom, Aberdeen Art Gallery og Bon Accord & St Nicholas. Næsti flugvöllur er Aberdeen-flugvöllurinn, 8 km frá Sandman Signature Aberdeen Hotel & Spa.
Hótelið fær heildareinkunn 8,5 og 9,0 fyrir staðsetningu á booking.com
Verðin
169 990 kr.
á mann í tvíbýli
40 000 kr.
aukagjald í einbýli
Tilboðið er fyrir 150-200 manns, flogið er í leiguflugi og er miðað við að minnst 80% sætanýting sé í flugi með leiguflugi.
Endanlegt verð liggur ekki fyrir fyrr en ferð hefur verið ákveðin og hægt er að bóka flug og hótel.
Umsagnir fyrri hópa
Smelltu hér á hnappinn til að sjá umsagnir ánægðra viðskiptavina Tripical!
Skoða umsagnir