Til Riga 
24. apríl til 27. apríl 2025

Hér finnurðu frábæra blöndu af gömlu og nyju. Hér er sjór, hér eru vötn, skógar og óspillt náttúra. Í Lettlandi eru margir smærri bæir en aðeins ein raunveruleg borg, Ríga, höfuðborg landsins.

Á yfirborðinu virðist Riga kannski nokkuð róleg borg, en ef dypra er kafað má finna fjölbreytta bari, nútímalistasöfn og fleiri áhugaverða staði. Þá má ekki gleyma veitingastöðunum, sem eru margir hverjir á heimsmælikvarða, og bjóða upp á rétti á afar sanngjörnu verði. Borgin er því tilvalinn áfangastaður fyrir hvern þann sem hefur yndi af að njóta ljúffengra veitinga í fögru umhverfi.
Ríga er mikil dekurborg, þekkt meðal annars fyrir magnaðar fegurðarmeðferðir sem finna má á hinum ýmsu snyrtistofum borgarinnar. 
Og svo er nauðsynlegt að prófa klassískt lettneskt bað! Á meðan aðrar þjóðir taka baðmenningu sína alvarlega, kemst engin á sama stað og Lettar, sem halda fast í fornar hefðir og saunaferðir eru þeim sem heilög stund. Svo má einnig finna skemmtileg bjórböð. Lettar eru mikil bjórþjóð, og láta sér ekki nægja að drekka hann sér til ánægju, því það er vinsælt að baða sig upp úr honum líka.

Hvað er hægt að gera í Riga


Art Nouveau safnið er ansi magnað

Smakkaðu Black Balsam drykkinn

Slakaðu á í fallegum almenningsgarði, Gauja National Park er einstakur

Skelltu þér í andlitsbað eða nudd 


Lettnesku böðin eru eftirminnileg reynsla

Hjólatúr í gamla bænum með leiðsögn

Hvað er innifalið í ferðinni

Flug

Beint flug með Air Baltic þar sem innifalið er ein innrituð taska allt að 20kg og handfarangur

Flug út 

Beint flug út á fimmtudaginn 24. apríl frá Keflavík kl : 00:30 og lent í Riga 07:05.

Flug heim

Heimflug frá Riga á sunnudaginn 27. apríl kl 22:45 og lent í Keflavík kl 23:40

Gisting

3 nætur á 4 stjörnu hóteli. Innifalið er morgunverður og wi-fi. 

Rútur

Rútuferðir til og frá flugvelli í Riga, 15-20 mín

Farastjórn

Einn óendanlega hjálpfús og skemmtilegur fararstjóri frá Tripical.

Tripical sér um allt úti

Árshátíðarkvöldið

Við erum snillingar í að skipuleggja árshátíðina úti, bóka sal, velja matinn, skemmtikrafta og búa til ógleymanlegt kvöld

Hvað er hægt að gera úti?

Við getum boðið upp á dagsferðir úti sem hópurinn velur úr og bókar í gegnum sölukerfi Tripical.
Einnig setjum við upp dagskrá með meðmælum af veitingarstöðum, börum & vinsælum ferðamannastöðum.

Við reddum öllu!

Sérðfræðingar Tripical hafa áratugareynslu í að skipuleggja árshátíðarferðir hópa!

Ferðalóttó Tripical

Við viljum magna upp stemninguna fyrir brottför með því að draga út heppið par/einstakling sem fá óvæntan glaðning frá Tripical í ferðinni.

Hótel

****

Radisson Blu Latvija Conference & Spa Hotel er 4 stjörnu hótel í hjarta Riga og í göngufæri frá fallega gamla bænum. 
Herbergin eru rúmgóð og með ókeypis WiFi. Öll herbergin eru með minibar og te- og kaffiaðstöðu. Hvert gistirými er með nútímalegt baðherbergi með snyrtivörum, hárþurrku og annaðhvort baðkar eða sturtu.
Á jarðhæðinni er vinsæll bar þar sem er hægt að fá kaffi og samlokur, hann er opinn frá kl 10:00 - 22:00.  Á 26.hæð er Skyline barinn sem er opinn frá kl 18:00-02:00, þar geta gestir notið drykkja, léttra veitinga og þar er frábært útsýni yfir sjóndeildarhring borgarinnar.
Veitingastaðurinn Esplanade sér um morgunverðinn, er með opið í hádeginu og á kvöldin. Þar er boðið upp á alþjóðlega rétti fyrir all.

Heilsulindin- og heilsumiðstöðin á staðnum, ESPA Riga, er með lúxushönnun, 18 metra sundlaug, gufuböð og eimböð og úrval af heilsulindarmeðferðum fyrir andlit og líkama.

Hótelið fær heildareinkunina 8,7 og 9,6 fyrir staðsetningu. 

Verðin

114 990 kr

á mann í tvíbýli 

35 000 kr

aukagjald í einbýli

Hótel

AC Hotel by Marriott Riga
****

AC Hotel Riga er þægilega staðsett í hinu heillandi Art Nouveau-hverfi í miðbæ Riga. Gestir geta því flúið hávaða miðbæjarins á meðan þeir eru í aðeins nokkurra mínútna fjarlægð frá gamla bænum í Riga og áhugaverðustu stöðum borgarinnar.

AC Hotel Riga er með 239 hótelherbergi og svítur og býður einnig upp á 4 fjölnota ráðstefnuherbergi sem eru staðsett á efri hæð hótelsins og rúma 184 gesti í stærsta fundarherbergi hótelsins.

Gististaðurinn er umkringdur veitingastöðum, kaffihúsum og sælkeraverslunum, söfnum og listagalleríum, byggingum í Art Nouveau-stíl, íþróttaaðstöðu, tónleika og viðburðavettvöngum.

Hótelið fær heildareinkunina 9,0 og 9,2 fyrir staðsetningu á booking.com 


Verðin

119 990 kr

á mann í tvíbýli 

25 000 kr

 aukagjald í einbýli

 Tilboðið sýnir verðhugmyndir og miðast við 70 manns. Endalegt verð liggur fyrir þegar ferð er staðfest og hægt er að bóka flug og hótel. Staðfestingargjald þarf að greiða um leið og ferð er ákveðin svo hægt sé að tryggja flug og hótel. 


Arna Rut Kristinsdóttir

Fyrirtækjaferðir

S. 519-8900

GSM. 663 3313

Netfang. arna@tripical.com