Til Edinborgar

24. - 27. apríl 2025

Edinborg er höfuðborg Skotlands. Þar er heillandi borgarstæði, fallegar byggingar og tignarlegur kastali.  Iðandi menningarlíf með góðar verslanir og úrval veitingahúsa.

,,Auld Reekie" eins og borgin heitir á skosku (og þyðir Old Smoky), sameinar hið gamla og nýja á sérstæðan hátt og þar upplifirðu hið einstaka skoska andrúmsloft. Á hæðinni fyrir ofan borgina stendur hinn tignarlegi Edinborgarkastali, táknmynd borgarinnar. Borgin býður upp á blöndu af miðöldum og nútíma, þar standa bókstaflega, hlið við hlið miðaldahúsaraðir og nytískulegar byggingar, kirkjur í gotneskum stíl og hús byggð eftir nútíma arkitektúr.
 Næturlíf borgarinnar getur verið ansi villt, Edinborg er stundum kölluð Aþena norðursins. Að ekki sé minnst á alla veitingastaðina og pöbbana. 
Síðast en ekki síst, þá er Edinborg festivalaborgin, þar sem festival nefnt eftir borginni er haldið ár hvert.
Allir ættu að finna eitthvað við sitt hæfi enda Skotar höfðingjalegir gestgjafar.

Hvað er hægt að gera í Edinborg

Útsýnið úr Edinborgarkastala er stórkostlegt
Sjónblekkingarsafnið er óvenjuleg skemmtun
Rannsaka Neðanjarðarborgina  (Real Mary King´s Close) 
 Viskíáhugafólk er komið til himna. Prófaðu að smakka!
Minnismerki Scott er áhrifarík sjón
Tilvalið að skella sér í golf ef veður leyfir

Hvað er innifalið í ferðinni

Flug

Flug fram og til baka Icelandair til Glasgow, 1 innrituð taska 23kg taska og 10kg handfarangur

Brottför

Brottför fimmtudaginn 24. apríl frá Keflavík kl 10:10 og lent í Glasgow kl 13:25

Heimkoma

Heimför sunnudaginn 27. apríl frá Glasgow kl 14:20 og lent í Keflavik kl 15:45

Gisting

3 nætur á 4 stjörnu hóteli - Innifalið er morgunverður og wi-fi.

Rútur

Rútuferð frá Glasgow flugvelli að hóteli. Rúta tekur um 60mín.

Farastjórn

Sé þess óskað - gegn gjaldi

Tripical sér um allt úti

Árshátíðarkvöldið

Við erum snillingar í að skipuleggja árshátíðina úti, bóka sal, velja matinn, skemmtikrafta og búa til ógleymanlegt kvöld

Hvað er hægt að gera úti?

Við getum boðið upp á dagsferðir úti sem hópurinn velur úr og bókar í gegnum sölukerfi Tripical.
Einnig setjum við upp dagskrá með meðmælum af veitingarstöðum, börum & vinsælum ferðamannastöðum.

Við reddum öllu!

Sérðfræðingar Tripical hafa áratugareynslu í að skipuleggja árshátíðarferðir hópa!

Ferðalóttó Tripical

Við viljum magna upp stemninguna fyrir brottför með því að draga út heppið par sem fær óvæntan glaðning frá 
Tripical í ferðinni

Hótel

****

Frábært hótel í hjarta borgarinnar í miðbænum með útsýni yfir kastalahæðina. Rúmgóð og flott herbergi, stílhreint og snyrtilegt hótel.  Í hverju herbergi er 32" LCD-sjónvarp. Herbergin eru einnig með ókeypis WiFi, sérbaðherbergi, minibar og te/kaffiaðbúnaði.
Á Novotel geta gestir slakað á í gufubaðinu eða æft í nútímalegu heilsuræktarstöðinni, heitur pottur og sundlaug eru á staðnum.
The Tap Kitchen & Bar framreiðir ameríska matargerð. Gestir geta smakkað skoska matargerð en hún er í boði á „Wee Menu“ gististaðarins, en þar er hægt að fá skoska rétti eftir árstíðum. Hanastél og handverksbjórar eru einnig fáanlegir.

Royal Lyceum-leikhúsið er aðeins í 5 mínútna göngufjarlægð og Princes-stræti er í 10 mínútna göngufjarlægð.

Hótelið fær 8.3 í einkunn á booking.com og 8.8 fyrir staðsetningu. 

Verðin

 179 990 kr 

á mann í tvíbýli

75 000 kr

aukagjald í einbýli

Verðin miðast við 50 manns. Fyrirvari er um flugtímasetningu frá flugfélögum, endanlegt verð liggur fyrir til kynningar og samþykktar þegar að dagsetning ferðar hefur verið ákveðin. Staðfestingargjald þarf að greiða um leið og ferð er ákveðin svo hægt sé að tryggja flug og hótel. 


Umsagnir fyrri hópa 

Smelltu hér á hnappinn til að sjá umsagnir ánægðra viðskiptavina Tripical!
Skoða umsagnir

Arna Rut Kristinsdóttir

Fyrirtækjaferðir
S. 519-8900
GSM. 6633313
Netfang. arna@tripical.com