Til Kaupmannahafnar  
07. júní til 10. júní 2025

Kóngsins Kaupmannahöfn er þekkt fyrir að vera menningarborg með stórfenglegan arkitektúr ekki síður en hönnun sem hefur haft áhrif um allan heim, og líka bjórinn þeirra, já og H.C.Andersen.

Danmörk er oft rómuð fyrir að vera eitt ,,grænasta“ land heims. Á fáum stöðum notar fólk reiðhjól í sama magni og hér. Danir eru mjög duglegir að flokka rusl og hugsa almennt mjög vel um umhverfið. Þetta hafa þeir gert um svo langt skeið að nýjum kynslóðum er þetta í blóð borið.
Einn af þekktari skemmtigörðum heims er miðsvæðis í borginni. Tívolíið er ekki bara vel þekkt víða um heim, það er eitt af elstu skemmtigörðum heims. Sjálfur Walt Disney nefndi eitt sinn að danska Tívolíið væri fyrirmynd að Disney garðinum hans.

Hér blandast gömlu ævintyrin saman við nytískulegan arkitektúr og hönnun á heimsmælikvarða, heitur jazz blandast við ískalt teknó í kjallaraklúbbi. Þér finnst eins og þú hafir séð allt á einum degi, en gætir auðveldlega skoðað þig um og séð nyja hluti svo mánuðum skipti.
Það er ótrúlega gaman að versla í Kaupmannahöfn og sterk hönnunarhefð er gegnumgangandi í verslunum borgarinnar. Engan þarf að kynna fyrir Strikinu, einni lengstu verslunargötu Evrópu og þeim fjölmörgu stórverslunum, hönnunarverslunum og alþjóðlegu vörumerkjum sem þar eru.

Hvað er hægt að gera í Kaupmannahöfn

Tívolíð í Kaupmannahöfn er eitthvað sem allir ætttu að skoða. 
Strikið fræga er vinsælt fyrir búðaráp og góða veitingastaði. Þar finna allir eitthvað sér við hæfi. 
Nyhavn eða nýhöfn eins og hún er kölluð á íslensku er fullkominn staður til að fara á til að fá sér kaffi og með því. 
Kíkja á Torvehallerne  markaðinn í Nørrebro
Svo er góður hjólreiðatúr kannski besta leiðin til að kynnast borgarlífinu
Reffen er stútfullt af menningarviðburðum, markaði og mat frá öllum heiminum

Hvað er innifalið í ferðinni

Flug

Beint flug með Icelandair til og frá Kaupmannahöfn,  innifalið innrituð taska 23kg og handfarangur 10kg

Brottför

Brottför föstdaginn 06. júní ATH. næturflug í til Kaupmannahafnar kl 01:10. Lending áætluð um kl. 06:20 að morgni laugardags 07. júní

Heimför

Heimför þriðjudaginn 10. júní til Keflavíkur kl 22:35 áætluð lending kl 23:50

Gisting

3 nætur á 3 stjörnu hóteli. 
Innifalið er morgunverður, wi-fi og city tax.

Rútur

Rútuferðir til og frá flugvelli í ca 20 mín

Farastjórn

Sé þess óskað - gegn gjaldi ( eru starfsmenn á vegum skólans )

Hótel

Þetta hótel er staðsett í hinu vinsæla Vesterbro-hverfi, í um 5 mínútna göngufjarlægð frá aðaljárnbrautastöðinni í Kaupmannahöfn og Tívolíinu. Í boði er ókeypis Wi-Fi Internet og fjölbreytt morgunverðarhlaðborð.

Öll herbergin á Comfort Hotel Vesterbro eru með kapalsjónvarpi, loftkælingu og viðargólfi. Baðherbergið innifelur hárþurrku og snyrtivörur.

Miðlæg staðsetningin býður upp á greiðan aðgang að menningu, verslunum og afþreyingu. Mörg kaffihús og veitingastaðir eru í göngufæri. Starfsfólkið getur mælt með áhugaverðum stöðum til að skoða.

Hótelið fær heildareinkunina  7,8 og 9,2 fyrir staðsetningu.

Verðin

 134 990 kr

á mann í blönduðum herberjum 
TRIP & QUAD

  139 990 kr

verð í tvíbýli

 239 990 kr

verð í einbýli

Tilboðið sýnir verðhugmyndir og miðast við 17 manns, 
Endanlegt verð liggur fyrir þegar ferð er staðfest, staðfestingargjald þarf að greiða um leið og ferð er ákveðin svo hægt sé að tryggja flug og hótel. 
ATH. hægt að að kaupa aukanótt gegn gjaldi því næturflug - er að bíða eftir kannski hægt að fá herb. fyrr um morguninn, getur því bæst við lítill kostnaður.


Arna Rut Kristinsdóttir

Fyrirtækjaferðir

S. 519-8900

GSM. 663 3313

Netfang. arna@tripical.com