Til Parísar
9. október til 12. október 2025

París hefur orð á sér fyrir að vera fegurst og rómantískust allra borga. Uppspretta helstu tískustrauma, listræn og gourmet gómsæt. Fólk sem þangað kemur, vill fara aftur. Aðrir hafa hana efst á óskalistanum, staðráðnir í að heimsækja hana við fyrsta tækifæri.

Ein af stórborgum Evrópu, með rúmar 2 milljónir íbúa í sjálfum kjarnanum, en um 12 milljónir í borginni allri. En París er stórborg með stóru S-i af fleiri ástæðum. Hún gegnir lykilhlutverki í þróun menningar og lista í heiminum, sem og í hönnun og matargerð. Þar er að finna næstflesta Michelin veitingastaði í einni borg, (aðeins Tokyo hefur fleiri). Síðast en ekki síst er París Mekka tískunnar, og heimastaður stærstu og frægustu tísku- og snyrtivörurisa heimsins, eins og  
Louis Vuitton, Chanel, Dior, Yves Saint-Laurent, Guerlain, Lancôme, L'Oréal og Clarins, svo einhverjir séu nefndir.
Ofan á allt þetta bætist svo stórkostlegar byggingar hennar, stræti og torg. París hefur einhvern veginn allt!
Hvert sem litið er má sjá söguleg stórhýsi og minjar, og stór hluti borgarinnar er skráður á Heimsminjaskrá UNESCO.
Þekktastur af mörgum frægum áningarstöðum verður að teljast sjálfur Eiffel turninn, en hann á einmitt metið í heimsóknum ferðamanna, á heimsvísu. Fleiri merkilegir staðir fylgja fast á eftir, hér höfum við Notre-Dame kirkjuna, Louvre listasafnið með sína Monu Lisu, hinn magnaða Sigurboga, Moulin Rouge kabarettinn, og ekki síður merkilega bourlesque kabarettinn Lido.
Af öllu því sem hér er nefnt, má ekki þykja skrýtið að París er einn alvinsælasti ferðamannastaður heimsins, og þangað koma árlega í kringum 45 milljónir manns í heimsókn. 

Hvað er hægt að gera í París

Ekki er vitlaust að fá sér ParisPass, sem veitir aðgang að öllum stærstu áningarstöðum
Versalir eru það sem kallað er á frönsku à voir (must see)!
Það er eiginlega ekki hægt að sleppa alvöru kabarett sýningu, á einhverjum af fjölmörgum leikhúsum borgarinnar.
Katakomburnar í París eru ansi stórbrotnar!
Picasso safnið inniheldur frumútgáfur af helstu verkum meistarans
Við getum því miður ekki mælt með einum veitingastað - prófaðu bara að gera "ugla sat á kvisti".

Hvað er innifalið í ferðinni

Flug

Beint flug til og frá París með áætlunarflugi Play Flugtími ca 3,5 klst og innifalið er 20 kg innrituð taska og 8 kg handfarangur sem passar undir sæti fyrir framan.

Flugtímar út

Brottför:
Flogið er í morgunflugi 06:00 frá Keflavík, 9. október, og lent í París um kl 11:30

Flugtímar heim

Heimför:
Flugið frá París er kl 12:30, 12. október, og lent í Keflavík kl 14:05.

Gisting

3 nætur á 4-5 stjörnu hóteli. Innifalið er morgunverður wifi og city tax.

Rutur

Rútuferðir til og frá flugvelli   45 - 75 mín

Farastjórn

Sé þess óskað - gegn auka gjaldi 5.000-10.000,-kr per mann

Tripical sér um allt úti

Árshátíðarkvöldið

Við erum snillingar í að skipuleggja árshátíðina úti, bóka sal, velja matinn, skemmtikrafta og búa til ógleymanlegt kvöld

Hvað er hægt að gera úti?

Við getum boðið upp á dagsferðir úti sem hópurinn velur úr og bókar í gegnum sölukerfi Tripical.
Einnig setjum við upp dagskrá með meðmælum af veitingarstöðum, börum & vinsælum ferðamannastöðum.

Við reddum öllu!

Sérðfræðingar Tripical hafa áratugareynslu í að skipuleggja árshátíðarferðir hópa!

Ferðalottó Tripical 

Við viljum magna upp stemninguna fyrir brottför með því að draga út 1 heppið par/einstakling sem fær óvæntan glaðning frá Tripical 

Hótel 

****

Le Méridien Etoile snýr í átt að sýningar- og vörusýningamiðstöðinni í París og er staðsett í 1,2 km fjarlægð frá Sigurboganum. La Défense-viðskiptahverfið og miðbær Parísar eru nokkrar neðanjarðarlestarstöðvar frá.

Þessi glæsilegi gististaður er með nútímalegar innréttingar og öll herbergin eru með loftkælingu, sérbaðherbergi og flatskjá. Herbergin eru hljóðeinangruð og boðið er upp á herbergisþjónustu fyrir allar máltíðir.

Club herbergin eru með ókeypis aðgang að LM Club Lounge sem er á efri hæðum hótelsins. Club-setustofan opnast út á Patio Etoile.

Jazz Club Etoile er vel þekktur djassklúbbur í París og býður upp á suma af bestu tónlistarmönnum heims en hann er staðsettur á jarðhæð Méridien Etoile. Klúbburinn er einnig með sérverönd með gróðri þar sem hægt er að fá sér snarl og kokkteila.

Porte Maillot-neðanjarðarlestarstöðin (lína 1) er í 200 metra fjarlægð frá hótelinu. Þessi lína gengur í viðskiptahverfið La Défense og miðbæ Parísar.

Hótelið fær heildareinkunina 7,0 og 8,1 fyrir staðsetningu á booking.com

Verðin

129 990 kr

á mann í tvíbýli

60 000 kr

aukagjald í einbýli

Hótel 

****

Þessi 19. aldar bygging með áberandi framhlið er heimili Crowne Plaza Paris République, 4 stjörnu hótels staðsett á Place de la République. Full endurnýjað árið 2019, það býður upp á stórt svæði á jarðhæð með sveigjanlegu vinnurými.

Herbergin eru rúmgóð og í nútímalegum stíl. Öll herbergin og svíturnar eru með nútímalegum baðherbergjum og flatskjásjónvarpi.

Crowne Plaza Paris République býður einnig upp á veitingastað og bar. Veitingastaðurinn býður upp á hefðbundna franska matargerð á meðan barinn býður upp á úrval drykkja, kokteila og bragðmikla rétti í opnu rými sem er sveigjanlegt fyrir allar þarfir.

Crowne Plaza er staðsett miðsvæðis í einu af líflegustu hverfum Parísar og er tilvalin stöð til að uppgötva borg ljósanna. Það er aðeins nokkrum skrefum frá neðanjarðarlestarstöð og í göngufæri frá Canal Saint-Martin. Það eru nokkrir veitingastaðir, kaffihús og barir í nágrenninu.

Hótelið fær heildareinkunina 7,9 og 8,9 fyrir staðsetningu á
 booking.com

Verðin

139 990 kr

á mann í tvíbýli

70 000 kr

aukagjald í einbýli

Hótel 

****

Pullman Paris Montparnasse er 4 stjörnu hótel sem er staðsett í hinu líflega Montparnasse-hverfi á vinstri bakka Signu. Hótelið var enduruppgert að fullu árið 2021. Montparnasse-lestarstöðin er í aðeins 370 metra fjarlægð.
Hvert herbergi er með loftkælingu, flatskjá, minibar og sérbaðherbergi með hárþurrku og ókeypis WiFi er í boði hvarvetna.. Gestir geta notið víðáttumikils útsýnis yfir Montparnasse-hverfið. Herbergisþjónusta er í boði allan sólarhringinn.
Veitingastaðurinn Fi'lia framreiðir hefðbundna ítalska rétti en veitingastaðurinn Umami býður upp á alþjóðlega matargerð og "des plats de rue" með opnu eldhúsi. Gestir geta slakað á og fengið sér drykk á 2 mismunandi börum. Skybar er staðsettur á 32. hæð og býður upp á víðáttumikið útsýni yfir París. Einnig er kaffihús á staðnum þar sem boðið er upp á focaccia og kokkteila.

Gestir geta nýtt sér líkamsræktaraðstöðuna. Á 3 hæðum eru fundarherbergi og ráðstefnuherbergi.

Saint Germain des Pres og Eiffelturninn eru í innan við 20 mínútna fjarlægð með neðanjarðarlest frá hverju herbergi. Jardin du Luxembourg er í 15 mínútna göngufjarlægð frá Pullman hótelinu.

Hótelið fær heildareinkunina 8,5 og 8,6 fyrir staðsetningu á booking.com

Verðin

139 990 kr

á mann í tvíbýli

70 000 kr

aukagjald í einbýli

Hótel 

Hyatt Regency Paris Etoile
*****

Hyatt Regency Paris Etoile, áður hið fræga Hotel Concorde La Fayette, er 1,5 km frá bæði Sigurboganum og hinu fræga Champs Elysées.

Öll herbergin eru með skrifborði, sjónvarpi, loftkælingu og öryggishólfi. Öll herbergin á Hyatt Regency Paris Etoile bjóða upp á útsýni yfir París. Lúxus baðvörur eru til staðar á baðherberginu.

Veitingastaðurinn MAYO í anddyri hótelsins tekur á móti gestum í vinalegu andrúmslofti með árstíðabundinni matargerð. Einnig er hótelið með frábæran rooftop bar Windo Skybar, hæsta bar í París!

Hótelið er í 5 mínútna fjarlægð með neðanjarðarlest og vel tengt Palais des Congrès og La Defense viðskiptahverfsins. Á hótelinu er meðal annars sólarhringsmóttaka og gjaldeyrisskipti.

Hótelið fær heildareinkunina 8,5 og 8,9 fyrir staðsetningu á booking.com 

Fallegir salir eru á hótelinu og sumir með dagslbirtu. Hægt er að vera með árshátíðarkvöldverðinn á hótelinu. 

Verðin

139 990 kr

á mann í tvíbýli

60 000 kr

aukagjald í einbýli

Tilboðið sýnir verðhugmyndir og miðast við 40-60 manns, ekki er búið að taka frá flug og hótel. 
Staðfestingargjald þarf að greiða um leið og ferð er ákveðin svo hægt sé að tryggja flug og hótel. 


Arnar Magnússon

Fyrirtækjaferðir
S. 519 8900
GSM. 848 1520