til Katowice  
6. júní til 9. júní 2025

Borgin Kraká er af mörgum talin ein sú fallegasta í Evrópu og situr alla jafna á toppnum yfir áhugaverðustu áfangastaði í heiminum.  Saga, menning, matur og hagstætt verðlag einkenna borgina.

Kraká stendur við árbakka Vistulu, og sögu hennar má rekja aftur til sjöundu aldar! Fornar sagnir segja frá því hvernig borgin óx og dafnaði eftir frækilegan sigur á miklum dreka sem bjó í helli í nágrenninu og hrelldi og drap íbúa með reglulegum heimsóknum. Hvað sem hæft er í þeim lysingum, er það staðreynd að goðsagnakennt og seiðmagnað andrúmsloft svífur yfir þessari mögnuðu borg. Wawel kastalinn er eitt af stærri nafnspjöldum borgarinnar, sem og gamli bærinn með sínum aldagömlu kirkjum og áhugaverðu söfnum. Þá má ekki gleyma hinu mikla Rynek Główny, sem er hvorki meira né minna en stærsta markaðstorg Evrópu. 

Gamli bærinn í Kraká er eitt af friðarsvæðum UNESCO. Það er ekki að ástæðulausu og við mælum hiklaust með skoðunarferð þangað. Þar má finna hundruði veitingastaða og helling af börum og klúbbum. 
Íbúafjöldi er 760.000 en hafa ber í huga að um það bil 8 milljónir búa í 100km radíus í kringum borgarmörkin. 
Borgin er þekktust fyrir glæsileika sinn, stórbrotna sögu og menningu, en meiri ró er yfir næturlífi hennar. Kraká er fullkomin borg til þess að slaka á, ganga í rólegheitum um götur og hverfi og leyfa skilningarvitunum að draga þig frá hversdagslegu amstri yfir í núið.

Hvað er hægt að gera í Kraká

Röltu um og skoðaðu Kazimierz gyðingahverfið
Verksmiðja Oskars Schindler er mögnuð
Skoðaðu Saltnámurnar, ef þú þorir en þær eru neðanjarðar
Heimsæktu Wawel kastalann og stærsta markaðstorg Evrópu Rynek Glowny
Gamli bærinn er, eins og sagt er, algjört möst!
Stutt er að fara til Auschwitch-Birkenau

Hvað er innifalið í ferðinni

Flug

Flug með Wizz air með einungis handfarangri 8kg.

Brottför

Brottför frá Keflavík föstudaginn 6. júní 2025 kl. 20:15. Lent í Katowice kl. 02:20 eftir miðnætti.

Heimkoma

Heimför mánudaginn 9. júní 2025 kl. 17:15 frá Kraká. Lent í Keflavík kl. 19:35.

Gisting

3 nætur á 4ra/5 stjörnu hóteli. Innifalið er morgunverður, wifi og city tax.

Rútur

Rútuferðir til og frá flugvelli í Katowice, ca 25 mín akstur.

Fararstjórn

Sé þess óskað - gegn gjaldi

Ferðalóttó Tripical

Við viljum magna upp stemninguna fyrir brottför með því að draga út heppið par/einstakling sem fær óvæntan glaðning frá Tripical í ferðinni.

Hótel

****

Hið 4-stjörnu Vienna House Easy by Wyndham Katowice er staðsett í miðbæ Katowice, aðeins 750 metrum frá Katowice Główne-lestarstöðinni. Það býður upp á loftkæld herbergi með ókeypis Wi-Fi Interneti, sem og líkamsræktarstöð og gufubað, bæði ókeypis.

Herbergin á Vienna House Easy by Wyndham Katowice eru máluð í andstæðum litum og eru með stílhreina hönnun. Hver er með flatskjásjónvarpi ásamt geislaspilara, DVD-spilara og te/kaffiaðbúnaði.

Veitingastaður Vienna House Easy by Wyndham Katowice framreiðir alþjóðlega og staðbundna rétti. Í móttökubarnum er boðið upp á drykki og snarl.

Starfsfólk hótelsins stendur gestum til boða allan sólarhringinn og veitir aðstoð við að skipuleggja flugrútu.

Silesia City Centre-verslunarmiðstöðin er 1 km frá hótelinu. Silesian Museum er í 1,6 km fjarlægð, en Spodek Arena er í innan við 850 metra fjarlægð frá Vienna House Easy by Wyndham Katowice.

Hótelið fær heildareinkunina 9,0 og 9,3 fyrir staðsetningu á Booking.com

Verðin

 119 990 kr

á mann í tvíbýli

20 000 kr 

aukagjald í einbýli

Hótel

****

Qubus Hotel Katowice er staðsett í Katowice, í innan við 1 km fjarlægð frá Katowice-lestarstöðinni, og býður upp á gistingu með líkamsræktarstöð, einkabílastæði, verönd og veitingastað. Gististaðurinn er 2,1 km frá Silesia City Center-verslunarmiðstöðinni, 4,7 km frá FairExpo-ráðstefnumiðstöðinni og 6,3 km frá Stadion Śląski. Gististaðurinn býður upp á sólarhringsmóttöku, flugrútu, herbergisþjónustu og ókeypis WiFi hvarvetna.

Hótelið býður gestum upp á loftkæld herbergi með skrifborði, katli, ísskáp, öryggishólfi, flatskjá og sérbaðherbergi með baðkari eða sturtu. Herbergin á Qubus Hotel Katowice eru með rúmföt og handklæði.

Gestir geta notið morgunverðarhlaðborðs.

Qubus Hotel Katowice býður upp á 4 stjörnu gistingu með gufubaði.

Það er bar á staðnum og gestir geta einnig nýtt sér viðskiptamiðstöðina.

Áhugaverðir staðir í nágrenni við hótelið eru Spodek, Silesia-háskóli og Læknaháskólinn í Silesia. Næsti flugvöllur er Katowice-flugvöllur, 35 km frá Qubus Hotel Katowice.

Hótelið fær heildareinkunina 9,2 og 9.6 fyrir staðsetningu á Booking.com

Verðin

 114 990 kr

á mann í tvíbýli

15 000 kr 

aukagjald í einbýli

Hótel

****

Hið 4-stjörnu Hotel Diament Plaza Katowice er staðsett í miðbæ Katowice, aðeins 300 metrum frá Katowice Główny-lestarstöðinni.

Hótelið býður upp á loftkæld herbergi með ókeypis WiFi, gervihnattasjónvarpi og te/kaffiaðbúnaði. Öll eru með sérbaðherbergi með hárþurrku og annað hvort baðkari eða sturtu.

Hægt er að njóta fjölbreytts morgunverðarhlaðborðs á hverjum morgni á glæsilegum veitingastað hótelsins, KAKTUSY Kato Koncept Kulinarny, þar sem framreiddir eru pólskir og svæðisbundnir réttir.

Hið hjálpsama og vingjarnlega starfsfólk á Hotel Diament Plaza Katowice er til taks allan sólarhringinn og getur aðstoðað við flugrútu. Gestir geta notað farangursgeymslu og pantað þvotta- og strauþjónustu.
Einkabílastæði eru staðsett í bílakjallara og eru að fullu aðgengileg fyrir fatlaða.

Hotel Diament Plaza Katowice er staðsett 250 metrum frá Silesian Theatre. Hinn vinsæli Spodek vettvangur er í aðeins 1 km fjarlægð. Katowice-flugvöllur og Kraków Balice-flugvöllur eru í innan við 45 mínútna akstursfjarlægð.

Hótelið fær heildareinkunina 9.1 og 9.6 fyrir staðsetningu á Booking.com

Verðin

 119 990 kr

á mann í tvíbýli

15 000 kr 

aukagjald í einbýli

Verðin miðast við 28 manns. Ekki hefur verið tekið frá flug og hótel.

Verðin eru viðmiðunarverð fyrir umbeðið tímabil. Endanlegt verð liggur fyrir til kynningar og samþykktar þegar að dagsetning ferðar hefur verið ákveðin.


ATH. þar sem WIZZ air býður ekki upp á að halda sætum nema í 2 daga þá getur verð hækkað þegar bókað er.


Arnar Magnússon

Fyrirtækjaferðir

S. 519-8900

GSM. 848 1520

Netfang. arnar@tripical.com