Álftagerði til Tenerife

 Tan og endalaus gleði á Tene! 
27. febrúar til 6. mars 2025 

Tenerife er afar vinsæll áningarstaður hjá sólarþyrstum, og ekki að ástæðulausu. Þar eru strendurnar fallegar, sjórinn hreinn og hlýr, alltaf bongó blíða, íbúar eyjunnar næs, og hellingur af fjölbreyttri og skemmtilegri afþreyingu. Tenerife klikkar ekki!   

Eyjan var á árum áður fátækleg bananarækt, allt þar til á 6. áratug síðustu aldar að ákveðið var að nýta einstaka veðursæld hennar og fagra náttúru fyrir ferðaþjónustu. Hótel voru byggð og veitingastaðir opnuðu. Þetta var ansi fín ákvörðun, því þar hefur verið mikið um að vera æ síðan.  Bæir hafa stækkað, hótelum fjölgað og ýmis konar afþreying bæst við til að gera heimsókn til eyjunnar sem skemmtilegasta. Þar er nefnilega heilmargt að gera, fyrir þá sem ekki hafa endalausa þolinmæði í sólböð og strandagleði.  Þá nýtur Tenerife ákveðinna sérréttinga í skattlagningu, sem gerir að verkum að þar er bæði tóbak og áfengi mun ódýrara en annars staðar í Evrópu. Það fussar enginn við því! 

Tenerife er sannkölluð paradísareyja. Þar finnurðu þéttvaxna skóga og litríka náttúru með hinu fjölskrúðugasta dýralífi. Hér hefurðu auk fagurra stranda, gyllta  eyðimerkursanda og tignarlegustu fjöll. Þar á meðal er hið stórbrotna eldfjall El Teide, sem rís tæpa 4000 metra frá sjávarmáli, og býður gestum upp á toppinn með þar til gerðum kláfum. Um skeið var boðið upp á ferðir ofan í gýg fjallsins, en því hefur nú verið hætt af öryggisástæðum. Heimsókn á fjallið er þó vel þess virði, því útsýnið þaðan er alveg einstakt.
Suðurhluti eyjunnar er tileinkaður almennri ferðaþjónustu, en sé farið á norðurhlutann má finna meira af grænum svæðum, þar er menningin meira lókal og þú færð spænskar hefðir og venjur beint í æð.   


Hvað er hægt að gera á Tenerife

Viltu kafa? Tenerife er þekkt fyrir úrval af köfunarferðum af öllum stærðum og gerðum, fyrir vana sem óvana
Loro Parque Zoo er skemmtilegur dýragarður með alls kyns sýningum
Parque Rural de Anaga, er frábært svæði fyrir góðar gönguferðir. Fullt af leiðum, fallegt umhverfi og frábært útsýni
Masca dalurinn er vinsæll áningarstaður, sökum fegurðar
Siam vatnagarðurinn er risastór og stútfullur af skemmtilegum rennibrautum og veitingastöðum
Ron Miel, er romm með hunangi út í og afar svalandi ískalt í klaka 

Hvað er innifalið í ferðinni

Flug

Beint flug til og frá Tenerife með Play með 1 innritaðri 20 kg tösku og 8kg handfarangri.

 Flug út

Flogið er frá Keflavík fimmtudaginn 27. febrúar kl. 09:10 og lent á Tenerife kl. 14:50.

Flug heim

Flogið er frá Tenerife fimmtudaginn 6. mars kl. 15:50 og lent í Keflavík kl. 21:35.

Gisting

7 nætur á 4 stjörnu hóteli með morgunverði, borgarskatti og WIFI

Rútur

Rútuferðir til og frá flugvelli á Tenerife

Hægt að bæta við Fararstjórn

Gegn lágu gjaldi

Hótel

Hotel Best Jacaranda er staðsett í garði, 550 metra frá Fañabe-strönd. Hótelið býður upp á sjávarútsýni, 6 sundlaugar með fossi og herbergi með svölum.

Rúmgóð herbergin á Hotel Best Jacaranda eru með loftkælingu og gervihnattasjónvarp. Öll eru þau með minibar og fullbúið baðherbergi.

Hotel Best Jacaranda býður einnig upp á opið eldhús og vikulega þemakvöldverði. Sundlaugarbarinn framreiðir snarl allan daginn og gestir geta notið drykkja við píanóbarinn.

Hotel Best Jacaranda er með líkamsræktarstöð á staðnum. Þar er einnig að finna tennisvelli, borðtennisaðstöðu og fjölíþróttavöll.

Hotel Best Jacaranda er í 3 mínútna göngufjarlægð frá göngusvæði þar sem hægt er að njóta útsýnis yfir nálægu eyjuna La Gomera.

Á booking.com er hótelið með heildareinkunnina 7,9 og 8,7 fyrir staðsetningu.

 

Verð

164 990 kr

á mann í tvíbýli

169 990 kr

á mann í fjölskylduherbergi

139 990 kr

á mann í aukarúmi (13 ára)

119 990 kr

á mann í aukarúmi (undir 10 ára)

Verðin miðast við 20 manns. Endanlegt verð liggur fyrir til kynningar og samþykktar þegar að dagsetning ferðar hefur verið ákveðin. Staðfestingargjald þarf að greiða um leið og ferð er ákveðin svo hægt sé að tryggja flug og hótel. 


Umsagnir fyrri hópa

Smelltu hér á hnappinn til að sjá umsagnir ánægðra viðskiptavina Tripical!
Skoða umsagnir

Arnar Magnússon

Fyrirtækjaferðir

S. 519 8900

GSM. 848 1520

Netfang: arnar@tripical.com