
Til Möltu
6. júní til 9. júní &7. júní til 10. júní 2025
6. júní til 9. júní &
Mitt í Miðjarðarhafinu stendur smáríkið Malta, með sínum aldagömlu musterum og virkjum, og forsögulegu minjum. Byggð á eyjunum má rekja síðan löngu fyrir Kristburð, og ekki að undra. Þar er svo ósköp gott að vera.
Malta samanstendur af litlum eyjaklasa mitt á milli Sikileyjar og stranda Norður-Afríku. Á eyjunum er ýmislegt markvert að sjá. Fyrst ber að nefna hina smáu höfuðborg, Valletta, sem öll er byggð í anda 16. aldar, en hana má finna á Heimsminjaskrá Unesco. Þá er hin forna höfuðborg Mdina (stundum nefnd Þögla borgin) áhugaverður staður, sem og Vittoriosa, og hinar fögru byggingar þar. Einnig má nefna að Maltverjar eiga eins og við, sitt Bláa Lón (Blue Lagoon), sem er falleg lítil vík með kristaltærum sjó og hreinni strönd.
Þrátt fyrir smæð sína er Malta rík af sögu sem nær aftur til 4 árþúsundum fyrir Krist, og þar má finna ýmsar fornminjar því til sönnunar. Reyndar eru á eyjunum nokkrar af elstu uppistandandi byggingum í heimssögunni. En hér er margt fleira að gera en skoða forn hýbýli. Malta er nútímastaður sem býður upp á fyrsta flokks afþreyingu fyrir ferðamenn. Hér er upplagt að njóta veðurblíðunnar á góðri siglingu eða sörfbretti. Menningarlífið blómstrar, hér má finna jassfestivöl, karnivöl og aðrar skemmtanir, og borgirnar allar með úrval af fínum veitingastöðum og börum.
Hvað er hægt að gera á Möltu
Eyjan Gozo er stórbrotið náttúruundur. Skemmtileg staðreynd: Leikarinn Billy Connolly býr á eynni
Vertu vakandi fyrir bæjarhátíðum, líkt og á Íslandi á hér hver bær sína hátíð sem er frábær skemmtun
Víða á Möltu hafa margar stórmyndir verið teknar
og Malta Film Tour býður upp á leiðsögn um þá staði
Suðurhluti Möltu er minna þekktur af ferðamönnum, en þar finnurðu hina sönnu maltnesku lífshætti
Það er svokallað "möstsí" að skoða einhverja af elstu byggingum heims, sem hér standa
Lókalbjórinn heitir Cisk, og þykir bæði afar bragðgóður og svalandi á heitum degi
Hvað er innifalið í ferðinni
Flug
Beint flug með leiguflugi Tripical, 1 innritaðri 20 kg tösku
og handfarangri
Leiguflugsverðin miðast við gengi dagsins bæði á evrunni og eldsneytisverði.
Fluglengd um 5 klst
Brottför
Áætluð brottför dagana 6. og 7. júní frá Keflavík til Möltu
Flugtímar áætlaðir út snemma og heim um miðjan dag.
Heimkoma
Áætluð heimför dagana 9. og 10. júní frá Möltu til Keflavíkur.
Áætlaðir flugtímar um miðjan dag frá Möltu.
Gisting
3 nætur á 4/5 stjörnu hóteli. Innifalið er morgun-verður, wi-fi, city og ECO skattur.
Rútur
Rútuferðir til og frá flugvelli, aksturstími 20 mín til 1 klst og 30 mín eftir hóteli.
Farastjórn
Þrír óendalega hjálpfúsir og skemmtilegir fararstjórar frá Tripical.
Tripical sér um allt úti
Árshátíðarkvöldið
Við erum snillingar í að skipuleggja árshátíðina
úti, bóka sal, velja matinn, skemmtikrafta og búa til ógleymanlegt
kvöld
Hvað er hægt að gera úti?
Við getum boðið upp á dagsferðir
úti sem hópurinn velur úr og bókar í gegnum sölukerfi Tripical.
Einnig setjum við upp dagskrá
með meðmælum af veitingarstöðum, börum & vinsælum ferðamannastöðum.
Við reddum öllu!
Sérðfræðingar Tripical hafa áratugareynslu
í að skipuleggja árshátíðarferðir hópa!
Ferðalottó Tripical
Við viljum magna upp stemninguna fyrir brottför með því að draga út 2 heppin pör/einstaklinga sem fá óvæntan glaðning frá Tripical.
Skemmtitékkinn í boði Tripical
Við bjóðum þeim hópum sem halda árshátíð í gegnum Tripical
frían skemmtikraft til að gera kvöldið ógleymanlegt!
Hægt er að kynna sér hvaða skemmtiatriði er hægt að fá með í ferðina með að ýta á hnappinn hér fyrir neðan*
*Með fyrirvara um að skemmtikrafturinn sé laus þá daga sem árshátíðin er :)
Hótel
InterContinental Malta, an IHG Hotel*****
InterContinental Malta er staðsett í hjarta St Julians, 200 metrum frá eigin ókeypis einkaströnd við St. George's Bay. Það býður upp á rúmgóð herbergi með ókeypis WiFi og svölum.
Glæsileg og rúmgóð herbergin bjóða upp á gervihnatta- og greiðslurásir, loftkælingu og te/kaffivél. Öll herbergin eru með ókeypis WiFi og svölum eða verönd með borgarútsýni eða garðútsýni.
Sky Beach Infinity Pool er opin yfir sumarmánuðina og er aðeins í boði án endurgjalds fyrir gesti sem bóka Highline svítu.
Gestir sem bóka herbergi geta fengið aðgang að útsýnislauginni gegn daggjaldi. Klúbbsetustofan er opin allt árið um kring og er í boði ókeypis fyrir gesti sem dvelja í Highline svítunum og klúbbherbergjunum og býður upp á einkainnritun við komu og slökun allan daginn með mat og drykk
Gestir sem dvelja í svítum geta einnig nýtt sér Club InterContinental setustofuna á 15. hæð, þar sem þeir geta notið útsýnis yfir eyjuna.
Fjölbreytt úrval veitingastaða og bara má finna í kringum hótelið sem framreiðir Miðjarðarhafsmatargerð, maltneska og ítalska matargerð.
Hótelið er í 2 mínútna göngufjarlægð frá St Julian's Terminus strætóstöðinni og 10 km frá flugvellinum á Möltu. Valletta, höfuðborg eyjarinnar, er í aðeins 15 mínútna akstursfjarlægð.
Hótelið fær heildareinkunina 8,8 og 8,8 fyrir staðsetningu.
Verðin
259 990 kr
á mann í tvíbýli
75 000 kr
aukagjald í einbýli
Hótel
*****
Radisson Blu Resort & Spa, Malta Golden Sands er staðsett við sandströndina Golden Bay á Möltu og inniheldur stóra sundlaug, sundlaug sem er aðeins fyrir fullorðna og barnasundlaug. Það býður einnig upp á einkaströnd og heilsulind. Herbergin eru stór og glæsileg.
Radisson Blu Resort & Spa, Malta Golden Sands nýtur rólegs, einkaumhverfis með friðsælu útsýni yfir hafið og nærliggjandi sveitir. Það er í 10 mínútna akstursfjarlægð frá höfninni þar sem ferjur fara til Gozo Comino.
Heilsulindin nær yfir 1000 m² að rými og frístundamiðstöð dvalarstaðarins býður upp á töfrandi útsýni yfir hafið frá stórum gluggum með útsýni yfir flóann.
Herbergin eru innréttuð með nútímalegum innréttingum og bjóða upp á svalir með sjávar- eða sveitaútsýni. Á sumrin innifelur verðið 1 sólhlíf og 2 sólbekki í hverju herbergi.
Hótelið fær heildareinkunina 9,0 og 9,3 fyrir staðsetningu.
Verðin
259 990 kr
á mann í tvíbýli
60 000 kr
aukagjald í einbýli
Tilboðið miðast við 420 manns en ekki hafa verið tekið frá hótel né flug. Verðin miðast við minnst 80% nýtingu í leiguvél. Ef það næst ekki, fellur ferðin niður með 3 mánaða fyrirvara. Endanleg verð reiknast út frá staðfestri dagsetningu og geta því hækkað eða lækkað og liggur endanlegt verð ekki fyrir fyrr en ferð er staðfest.
Umsagnir fyrri hópa
Smelltu hér á hnappinn til að sjá umsagnir ánægðra viðskiptavina Tripical!
Skoða umsagnir