
Til Lošinj í Króatíu
6. júní - 9. júní &7. júní - 10. júní 2025
Til Lošinj í Króatíu
6. júní - 9. júní &
7. júní - 10. júní 2025
Eyjan Lošinj leikur við öll skilningarvit, með jurtailmi og litadýrð, dýrindis mat, svalandi drykk og seiðandi sjávarnið. Hrífandi áfangastaður!
Lošinj er staðsett utarlega í Kvarnerflóa, ein fjölmargra eyja við strendur Króatíu. Þar standa nokkur þorp, en stærsti bærinn og aðal dvalarstaður ferðafólks er hinn dásamlegi Mali Lošinj, sem skartar meðal annars, að margra mati, fallegustu höfn í Adríahafinu. Ferðabransinn er engin nýlunda hér. Í lok 19. aldar fór staðurinn að vekja athygli sem frábær heilsuáfangastaður, þar sem loftslag Lošinj með sinni hreinu sjávargolu þótti - og þykir enn - gagnast afar vel gegn ýmsum öndunarfæra sjúkdómum. Í dag eru heilsuferðir þó bara brot af kökunni, enda er eyjan tilvalin fyrir alla sem leita að góðum og fallegum stað til að slaka á. Lošinj svarar því kalli svo sannarlega, hér er umhverfið allt mjög heillandi, gróðursæld mikil, strendurnar hreinar og
sjórinn fagurblár. Mali Lošinj er sjarmerandi bær, með gömlum byggingum á borð við St. Martins kirkjuna frá 15. öld. Þá má mæla með heimsókn í Museum Of Apoxyomenos
og skoða bronsstyttuna frá 1. öld sem þar er til sýnis. Í veitingum er heilmargt í boði, m.a. Michelin-stjörnu staðurinn Alfred Keller, auk alls kyns minni staða með fjölbreytta rétti á seðlinum. Auðvelt er að ferðast um og heimsækja smærri þorp eða ganga einhverjar af fjöldamörgu gönguleiðum sem í boði eru. Vinsælust þeirra er nefnd Footpath of Vitality, um 3 km ganga frá Mali Lošinj til smærri bæjar í grenndinni, Veli Lošij. Lošinj Aromatic Garden
er líka heillandi staður, sem sýnir hina miklu jurtaflóru sem finna má á þessari dásamlegu paradísareyju.
Hvað er hægt að gera í Lošinj
Njóttu sólsetursins uppi á Providenca hæðinni. Það er ógleymanlegt.
Farðu og heimsæktu höfrungana í The Blue World Marine í Veli Lošij. Þeir taka vel á móti þér!
Čikat Bay, Veli žal og Poljana eru allt gæða strendur sem mæla má með
Hverfið við höfnina í bænum Veli Lošij er litríkt, líflegt og ótrúlega skemmtilegt
Leigðu þér kajak, sigldu meðfram eyjunni og finndu þína einkaströnd eða vík
Kíktu í spa! Lošinj býr yfir alda gamalli reynslu af heilsubætandi meðferðum
Hvað er innifalið í ferðinni
Flug
Flug fram og til baka með leiguflugi, 1 innrituð taska 18 kg og 5kg handfarangur sem passar undir sætið.
Flugtími er um 4 klst og 20 mín
Brottför
Brottför föstudaginn og laugardaginn, 6. og 7. júní, fyrri part dags og lent um miðjan dag á Pula alþjóða flugvellinum.
Heimför
Heimför seinni partinn 9. og 10. júní og lent um kvöld í Keflavík
Gisting
3 nætur á 5 stjörnu hóteli - Innifalið er morgunverður borgarskatturinn og wi-fi.
Rútur / Ferja
Rútuferð frá flugvelli að höfninni í Pula sem tekur 10-15 mínútur, þaðan er farið með Catamaran ferju að höfninni við hótelið sem tekur um 60 mínútur.
Farastjórn
Þrír óendanlega hjálpfúsir og skemmtilegir fararstjórar frá Tripical
Tripical sér um allt úti
Árshátíðarkvöldið
Við erum snillingar í að skipuleggja árshátíðina
úti, bóka sal, velja matinn, skemmtikraftar
og búa til ógleymanlegt
kvöld
Hvað er hægt að gera úti?
Við getum boðið upp á dagsferðir
úti sem hópurinn velur úr og bókar í gegnum sölukerfi Tripical.
Einnig setjum við upp dagskrá
með meðmælum af veitingarstöðum, börum & vinsælum ferðamannastöðum.
Við reddum öllu!
Sérðfræðingar Tripical hafa áratugareynslu
í að skipuleggja árshátíðarferðir hópa!
Hótel
Hotel Bellevue*****
Hotel Bellevue býður upp á glænýja heilsulindarstofu, 2 veitingastaði með Miðjarðarhafs- og japanska matargerð, setustofubar og 2 sundlaugar. Hótelið er staðsett í Mali Lošinj, sem er talið heilsudvalarstaður, umkringt furutrjám og býður upp á strönd með sólbekkjum.
Loftkæld herbergin eru með gervihnattasjónvarpi, minibar og öryggishólfi. Baðherbergið er með hárþurrku, baðslopp, inniskóm og strandhandklæði. Koddaúrval er í boði sé þess óskað.
Þar sem öll eyjan er þekkt fyrir græðandi loftslag, býður Hotel Bellevue upp á heilsulindarstofu með úrvali af snyrtivörum, heildrænum og læknisfræðilegum meðferðum sem framkvæmdar eru undir eftirliti sérfræðinga.
Gestir geta notið sérhönnuðra endurnýjunarmeðferða, streituvarnarprógramma til að vernda ónæmiskerfið, margs konar andlits- og líkamsnudds, slökunarsvæða, vetrargarðs og sjósundlaugar inni og úti.
Hótelið fær 9,3 í heildareinkunn á booking.com og 9,7 fyrir staðsetningu
Umsagnir fyrri hópa
Smelltu hér á hnappinn til að sjá umsagnir ánægðra viðskiptavina Tripical!
Skoða umsagnir