
Til Sitges
6. júní til 9. júní &7. júní til 10. júní 2025
Aðeins í 35 km fjarlægð, suð-vestur af Barcelona, stendur hin líflega Sitges, með sínum girnilegu ströndum, eldheitu næturlífi og frábærum festivölum. Yndislegur staður!
Í þessum dásemdar smábæ er fjölbreytileikanum fagnað með dansi og tónlist. Íbúar leggja stolt sitt og metnað í að bjóða alla hjartanlega velkomna, hvaðan úr heiminum sem fólk kemur eða hver sem kynhneigð þess er. Hér allir eru vinir og áhyggjum og leiðindum er ekki hleypt inn á svæðið.
Litlar þröngar göturnar eru fullar af litlum búðum, veitingastöðum og börum þar sem auðveldlega má finna eitthvað við sitt hæfi, milli þess sem legið er á einni af 17 ströndum sem boðið er upp á.
Sitges er stundum nefnd festivalabærinn. Allt árið um kring eru einhverjar hátíðir í gangi. Þekktast er líklega Sitges Carnival, þar sem dans, skrautlegir búningar og sjóðheit suðræn stemming taka öll völd. Hér er líka árlega haldin alþjóðleg kvikmyndahátíð, kappaksturskeppnir, stórtónleikar, leiklistarhátíðir, ásamt ýmis konar minni hátíðum og listasýningum. Næturlífið er einstaklega fjörugt og gleðin óstöðvandi allt fram undir morgun.
Hvað er hægt að gera í Sitges
Saga bæjarins er merkileg og fullt af gönguferðum með leiðsögn í boði
17. aldar kirkja heilags Bartomeu stendur við ströndina og gaman að skoða
Vínsmökkunar hjólreiðatúr til vínbænda í næsta nágrenni
Barcelona er skammt frá og auðvelt að skella sér í dagsferð þangað með lest
Liggja og slaka á og tana og njóta
Gönguferð um bæinn, borða, drekka, versla, elska
Hvað er innifalið í ferðinni
Flug
Beint flug til og frá Barcelona með leiguflugi og áætlunarflugi Icelandair með 1 innritaðri 15/23 kg tösku og 10kg handfarangri.
Flugtími er um 4klst og 20 mínútur.
Brottför
Brottför með leiguflugi:
Brottför fimmtudaginn og föstudaginn, 6. og 7. júní frá Keflavík að morgni, flugtímar koma síðar.
Brottför með Icelandair:
Brottför föstudaginn 7. júní frá Keflavík kl. 08:25, lent í Barcelona kl. 14:40
Heimkoma
Heimför með leiguflugi:
Heimför sunnudaginn og mánudaginn, 9. og 10. júní, frá Barcelona seinnipart dags, flugtímar koma síðar.
Heimför með Icelandair:
Heimför mánudaginn 10. júní frá Barcelona kl.15:45, lent í Keflavík 18:20.
Gisting
3 nætur á 4/5 stjörnu hóteli - Innifalið er morgunverður, wi-fi og city tax.
Rútur
Rútuferðir til og frá flugvelli í Barcelona 30-35 mín
Farastjórn
Þrír óendanlega hjálpfúsir og skemmtilegir fararstjórar frá Tripical.
Tripical sér um allt úti
Árshátíðarkvöldið
Við erum snillingar í að skipuleggja árshátíðina
úti, bóka sal, velja matinn, skemmtikrafta og búa til ógleymanlegt
kvöld
Hvað er hægt að gera úti?
Við getum boðið upp á dagsferðir
úti sem hópurinn velur úr og bókar í gegnum sölukerfi Tripical.
Einnig setjum við upp dagskrá
með meðmælum af veitingarstöðum, börum & vinsælum ferðamannastöðum.
Við reddum öllu!
Sérðfræðingar Tripical hafa áratugareynslu
í að skipuleggja árshátíðarferðir hópa!
Ferðalottó Tripical
Við viljum magna upp stemninguna fyrir brottför með því að draga út 2 heppin pör/einstaklinga sem fá óvæntan glaðning frá Tripical
Skemmtitékkinn í boði Tripical
Við bjóðum þeim hópum sem halda árshátíð í gegnum Tripical
frían skemmtikraft til að gera kvöldið ógleymanlegt!
Hægt er að kynna sér hvaða skemmtiatriði er hægt að fá með í ferðina með að ýta á hnappinn hér fyrir neðan*
*Með fyrirvara um að skemmtikrafturinn sé laus þá daga sem árshátíðin er :)
Hótel
****
Melia Sitges er staðsett á rólegu svæði í Sitges, í aðeins 3 mínútna göngufjarlægð frá Balmins- og Aiguadolç-ströndunum. Hótelið er með stílhreinum garði, útisundlaug og veitingastað með verönd.
Meliá Sitges er í 5 mínútna göngufjarlægð frá Aiguadolç-smábátahöfninni og í 15 mínútna göngufjarlægð frá líflega miðbænum. Lestarstöðin er í 20 mínútna göngufjarlægð en hún býður upp á tengingar við miðbæinn á aðeins 40 mínútum.
Öll herbergin á Meliá eru með nútímalegum innréttingum í minimalíksum stíl og loftkælingu. Öll eru með koddaúrval og flatskjá með gervihnattarásum.
Veitingastaðurinn Saffron Bistrot framreiðir Miðjarðarhafsrétti. Það er einnig til staðar glæsilegur kokkteilbar með nútímalegum sætum í garðinum.
Hótelið fær heildareinkunina 8,4 og 8,2 fyrir staðsetningu á booking.com
Verðin
209 990 kr
á mann í tvíbýli
60 000 kr
aukagjald í einbýli
Tilboðið miðast við 420 manns en ekki hafa verið tekið frá hótel né flug. Verðin miðast við minnst 80% nýtingu í leiguvél. Ef það næst ekki, fellur ferðin niður með 3 mánaða fyrirvara. Endanleg verð reiknast út frá staðfestri dagsetningu og geta því hækkað eða lækkað og liggur endanlegt verð ekki fyrir fyrr en ferð er staðfest.
Umsagnir fyrri hópa
Smelltu hér á hnappinn til að sjá umsagnir ánægðra viðskiptavina Tripical!
Skoða umsagnir