
Til The Hague
3. september - 6. september 2025
Hrífandi borg, skreytt gömlum heillandi hverfum, stórbrotnum byggingum og blómlegum almenningsgörðum. Hér er lífleg menning, skemmtun og gleði.Gangi þér allt í Haag!
Í Haag er aðsetur hollenska þingsins en auk þess býr þar Willem-Alexanders Hollandskonungur. Þá er borgin þekkt sem dómstólaborg heimsins, þar starfrækja Sameinuðu þjóðirnar Alþjóðadómstólinn (ICJ) og Alþjóðaglæpadómstólinn (ICC), ásamt fjölda annarra alþjóðlegra stofnanna. Haag er þriðja stærsta borg Hollands og þar búa um 500.000 manns, en 700.000 sé héraðið allt tekið með. Þar hefur ferðamanna-iðnaðurinn sótt í sig veðrið síðustu ár, og sífellt fleiri leggja leið sína þangað, enda býr borgin yfir miklum þokka og fegurð.
Haag er í ýmsu ólík stóru systur sinni Amsterdam og öðrum hollenskum borgum. Hún er af mörgum talin sú virðulegasta í landinu. Í stað hinna dæmigerðu hollensku endurreisnarhúsa frá 17. öld, standa þar 18. aldar stórhýsi í barrok og klassískum stíl. Í hjarta borgarinnar má finna mikið af sögulegum byggingum frá miðöldum og endur-
reisnartímanum. Rétt fyrir utan miðbæinn eru svo gríðarlega falleg hverfi í art nouvau stíl. Alls staðar eru svo hugguleg kaffihús og veitingastaðir, breiðar verslunargötur og síðast en ekki síst, falleg ströndin að Norðursjó.
Hvað er hægt að gera í The Hague
The Pier Skyview
býður upp á útsýnisferð í risa parísarhjóli.
Ein elsta gatan í Haag er Molenstraat.
Skemmtileg til göngu.
Scheweningen Beach Speedboat Tour
er vægast sagt hressandi skemmtun.
Í Panorama Mesdag Museum er áhrifarík og flott sýning með risamálverki sem sýnir forna tíð.
Kloosterbrouwerij Haagsche Broeder.
Bjórgerð í munkaklaustri. Mögnuð upplifun!
Planet Jump er trampólíngarður, og hann er staðsettur í kirkju. Athyglisvert!
Hvað er innifalið í ferðinni
Flug
Beint flug til og frá Amsterdam með Icelandair í áætlunarflugi innrituð 23kg taska ásamt 10kg handfarangri.
Brottför
Brottför 3. september frá Keflavík kl. 07:40, lent í Amsterdam kl. 12:55
Heimkoma
Heimför 6. september frá Amsterdam kl.14:10, lent í Keflavík 15:25.
Gisting
3 nætur á 4/5 stjörnu hóteli - Innifalið er morgunverður og wi-fi
Rútur
Rútuferðir til og frá flugvelli sem tekur um 1 klst,
Rúta til og frá Rotterdam einn daginn.
Farastjórn
Einn óendanlega hjálpfús og skemmtilegur fararstjóri frá Tripical.
Tripical sér um allt úti
Árshátíðarkvöldið
Við erum snillingar í að skipuleggja árshátíðina
úti, bóka sal, velja matinn, skemmtikrafta og búa til ógleymanlegt
kvöld
Hvað er hægt að gera úti?
Við getum boðið upp á dagsferðir
úti sem hópurinn velur úr og bókar í gegnum sölukerfi Tripical.
Einnig setjum við upp dagskrá
með meðmælum af veitingarstöðum, börum & vinsælum ferðamannastöðum.
Við reddum öllu!
Sérðfræðingar Tripical hafa áratugareynslu
í að skipuleggja árshátíðarferðir hópa!
Ferðalóttó Tripical
Við viljum magna upp stemninguna fyrir brottför með því að draga út heppin pör/einstaklinga sem fá óvæntan glaðning frá Tripical
Hótel
(staðfest verð)****
Voco The Hague, an IHG Hotel er með líkamsræktarstöð, garð, verönd og veitingastað í Haag. Þetta 4 stjörnu hótel býður upp á herbergisþjónustu, sólarhringsmóttöku og ókeypis WiFi. Gististaðurinn er í 600 metra fjarlægð frá miðbænum og í 2,5 km fjarlægð frá Madurodam.
Herbergin eru með flatskjá með gervihnattarásum, minibar, kaffivél, sturtu, ókeypis snyrtivörum og skrifborði. Herbergin eru með öryggishólfi og sum herbergin eru með borgarútsýni. Allar einingar eru með sérbaðherbergi, hárþurrku og rúmfötum.
Hjólreiðar eru vinsælar á svæðinu og það er reiðhjólaleiga á hótelinu.
Paleis Huis Ten Bosch er 4,1 km frá voco Haag, an IHG Hotel, en Westfield Mall of the Netherlands er 7 km frá gististaðnum. Næsti flugvöllur er Rotterdam-Haag-flugvöllur, 19 km frá gististaðnum.
Verðin
149 990 kr
á mann í tvíbili
55 000 kr
aukagjald í einbýli
Verðin miðast við 40 manns. Endanlegt verð liggur fyrir til kynningar og samþykktar þegar að dagsetning ferðar hefur verið ákveðin. Staðfestingargjald þarf að greiða um leið og ferð er ákveðin svo hægt sé að tryggja flug og hótel.
Umsagnir fyrri hópa
Smelltu hér á hnappinn til að sjá umsagnir ánægðra viðskiptavina Tripical!
Skoða umsagnir