Kvennakórinn Hrynjanditil Helsinki13. júní til 17. júní 2025
Helsinki sem kölluð hefur verið dóttir Eystrasaltsins er þekkt fyrir stórfenglegan arkitektúr ekki síður en hönnun sem hefur haft áhrif um allan heim.
Ekki skemmir að borgin er ennfremur þekkt fyrir góða veitingastaði þar sem hráefnið kemur úr nærumhverfinu, eftir árstíðum og sjálfbært. Fyrir finnum er þetta "way of life"
Margir sem ferðast um Norðurlönd láta Helsinki fram hjá sér fara sem er bæði synd og skömm en um leið blessun þar sem þeir sem heimsækja borgina losna við troðning alltof margra ferðamanna og ná betur að njóta hennar með öllum sínum skemmtilegu skringilheitum.
Finnar sem þekktir eru fyrir allt annað en að vera of málglaðir hafa ástríðu fyrir Finnskum Tango sem er ekki það sama og Argentískur Tango. Það er varla hægt að koma til Finnlands án þess að fara í saunu, svo samofin er hún lífi heimamanna, heilsusamlegt fyrir bæði líkama og sál.
Hvað er hægt að gera í Helsinki
Klettakirkjan er afar sérstök lúthersk kirkja í Helsinki og einstök listfræðileg hönnun. Kirkjan var grafin úr gegnheilum klettavegg og byggð neðanjarðar undir miklu hvolfþaki.
Uspenski dómkirkjan er mikil og reisuleg bygging sem gnæfir yfir sjónlínu Helsinki við hafnarbakkann. Ásamt auðkenndu hvítu lúthersku dómkirkju borgarinnar er Uspenski kirkjan eitt af helstu kennileitum Helsinki.
Nútímalistasafnið Kiasma í Helsinki sýnir það allra besta í finnskri nútímalist með reglulegum og síbreytilegum sýningum svo gestir koma iðulega aftur og aftur.
Suomenlinna er mikið virki sem Svíar reistu á nokkrum eyjum rétt fyrir utan Helsinki og þýðir nafn þess finnski kastalinn.
Í matargerð leggja Finnar áherslu á staðbundnar afurður og sjálfbærni í landbúnaði þar sem árstíðarbundnar afurðir njóta sín best. Í Finnlandi er nóg framboð af villibráð og ferskum sjávarafurðum ásamt villtum berjum og skógarsveppum sem finnsk matargerð nýtir á fjölbreyttan hátt.
Á hafnarsvæðinu er alltaf eitthvað gerast, bílasýningar, markaðstorg, siglingar og margt fleira. Mjög skemmtileg er að sigla til Tallin og eyða deginum þar.
Hvað er innifalið í ferðinni
Flug
Beint flug með Finnair ásamt 1 innritaðri, 23 kg, tösku
og 8 kg handfarangri.
Brottför
Flogið föstudaginn 13. júní frá Keflavík kl. 08:45, lent í Helsinki kl. 15:10
Heimför
Flogið heim þriðjudaginn 17. júní frá Helsinki kl. 16:05, lent í Keflavík kl. 16:55
Gisting
4 nætur á 4ra stjörnu hóteli. - 2 nætur í Tallinn og 2 nætur í Helsinki.
Innifalið er morgunverður og wi-fi.
Rútur & Ferja til Tallinn
Rútuferðir til og frá flugvelli í Helsinki sem og rúta frá ferju að hótel Original sokos hotel Vaakuna í Helsinki.
Ferja fram og til baka til Tallinn.
Farastjórn
Einn óendanlega hjálpfús og skemmtilegur fararstjóri frá Tripical.
Tripical sér um allt úti
Árshátíðarkvöldið
Við erum snillingar í að skipuleggja árshátíðina
úti, bóka sal, velja matinn, skemmtikrafta og búa til ógleymanlegt
kvöld
Hvað er hægt að gera úti?
Við getum boðið upp á dagsferðir
úti sem hópurinn velur úr og bókar í gegnum sölukerfi Tripical.
Einnig setjum við upp dagskrá
með meðmælum af veitingarstöðum, börum & vinsælum ferðamannastöðum.
Við reddum öllu!
Sérðfræðingar Tripical hafa áratugareynslu
í að skipuleggja árshátíðarferðir hópa!
Ferðalottó Tripical
Við viljum magna upp stemninguna fyrir brottför með því að draga út heppið par/einstakling sem fær óvæntan glaðning frá Tripical
Gisting í Tallinn
Hótel
****
Vel staðstett fjögurra stjörnu hótel Tallink City Hotel.
Hótelið er staðsett rétt fyrir utan gamla miðaldabæ Tallinn, 850 metrum frá Ráðhústorginu, og býður upp á 2 gufuböð, snyrtistofu og glæsileg herbergi með ókeypis interneti.
Öll loftkældu herbergin á City Hotel eru með gervihnattasjónvarpi, öryggishólfi og minibar.
Fjölbreytt morgunverðarhlaðborð er borið fram í City Grill House, sem sérhæfir sig í alþjóðlegum réttum.
Starfsfólk móttökunnar er til taks allan sólarhringinn og getur útvegað móttökuþjónustu eða aðstoðað við farangursgeymslu. Úrval af nuddmeðferðum er einnig í boði.
Tallink City Hotel er staðsett aðeins 1 km frá farþegahöfn Tallinn.
Slökunarsvæðið og heilsulindaraðstaðan er fyrir fólk 18 ára og eldri og þarf að panta fyrirfram með minnst 2 klukkustunda fyrirvara. Miðinn fyrir slökunarsvæðið kostar 16 € á mann og gildir í 2 tíma (opið alla daga 7-11 og 2-10).
Hótelið fær heildareinkunn 8,4 og 9,4 fyrir staðsetningu á booking.com
Gisting í Helsinki
Hótel
****
Þetta glæsilega hótel er við hliðina á aðallestarstöð Helsinki, í 5 mínútna göngufjarlægð frá Esplanadi-verslunargötunum. Það býður upp á þakverönd, flatskjásjónvörp á herbergjum, auk ókeypis gufubaðs og WiFi.
Upprunalega Sokos Hotel Vaakuna Helsinki var byggt fyrir Ólympíuleikana 1952 og er staðsett í byggingu sem er á minjaskrá. Hljóðeinangruðu herbergin eru með loftkælingu, minibar og nútímalegum innréttingum.
Stílhreini á la carte veitingastaðurinn býður upp á blöndu af finnskum og alþjóðlegum réttum. Eftir kvöldverð er hægt að njóta drykkja á barnum sem býður upp á stórkostlegt útsýni yfir iðandi miðbæ Helsinki.
Vingjarnlega starfsfólkið er fús til að veita ferðamannaupplýsingar og aðra þjónustu.
Flugvallarrútan stoppar beint á móti Sokos Vaakuna Helsinki. Sokos-stórverslunin er til húsa í sömu byggingu en þar njóta gestir 10% afsláttar.
Hótelið fær heildareinkunn 8,7 og 9,7 fyrir staðsetningu á booking.com
Verðin
169 990 kr
á mann í tvíbýli
55 000 kr
aukagjald í einbýli
Tilboðið sýnir verðhugmyndir og miðast við 25-30 manns.
Endalegt verð liggur fyrir þegar ferð er staðfest.
Staðfestingargjald þarf að greiða um leið og ferð er ákveðin svo hægt sé að tryggja flug og hótel.
Umsagnir fyrri hópa
Smelltu hér á hnappinn til að sjá umsagnir ánægðra viðskiptavina Tripical!
Skoða umsagnir