50 ára útskriftarferð
til Sitges

19. maí til 25. maí 2025

Aðeins í 35 km fjarlægð, suð-vestur af Barcelona, stendur hin líflega Sitges, með sínum girnilegu ströndum, eldheitu næturlífi og frábærum festivölum.  Yndislegur staður!

Í þessum dásemdar smábæ er fjölbreytileikanum fagnað með dansi og tónlist. Íbúar leggja stolt sitt og metnað í að bjóða alla hjartanlega velkomna, hvaðan úr heiminum sem fólk kemur eða hver sem kynhneigð þess er. Hér allir eru vinir og áhyggjum og leiðindum er ekki hleypt inn á svæðið.
Litlar þröngar göturnar eru fullar af litlum búðum, veitingastöðum og börum þar sem auðveldlega má finna eitthvað við sitt hæfi, milli þess sem legið er á einni af 17 ströndum sem boðið er upp á.
Sitges er stundum nefnd festivalabærinn. Allt árið um kring eru einhverjar hátíðir í gangi. Þekktast er líklega Sitges Carnival, þar sem dans, skrautlegir búningar og sjóðheit suðræn stemming taka öll völd. Hér er líka árlega haldin alþjóðleg kvikmyndahátíð, kappaksturskeppnir, stórtónleikar, leiklistarhátíðir, ásamt ýmis konar minni hátíðum og listasýningum. Næturlífið er einstaklega fjörugt og gleðin óstöðvandi allt fram undir morgun.  

Hvað er hægt að gera í Sitges

Saga bæjarins er merkileg og fullt af gönguferðum með leiðsögn í boði
17. aldar kirkja heilags Bartomeu stendur við ströndina og gaman að skoða
Vínsmökkunar hjólreiðatúr til vínbænda í næsta nágrenni
Barcelona er skammt frá og auðvelt að skella sér í dagsferð þangað með lest
Liggja og slaka á og tana og njóta
Gönguferð um bæinn, borða, drekka, versla, elska

Hvað er innifalið í ferðinni

Flug

Beint flug til og frá Barcelona með Play með 1 innritaðri 20 kg tösku og  8kg handfarangri.

Brottför

Brottför mánudaginn 19. maí frá Keflavík kl. 14:50, lent í Barcelona kl. 21:10

Heimkoma

Heimför sunnudaginn 25. maí frá Barcelona kl.22:10, lent í Keflavík 00:45.

Gisting

6 nætur á 4/5  stjörnu hóteli - Innifalið er morgunverður, wi-fi og city tax.

Rútur

Rútuferðir til og frá flugvelli í Barcelona 30-35 mín

Farastjórn

Sé þess óskað - gegn gjaldi

Tripical sér um allt úti

Árshátíðarkvöldið

Við erum snillingar í að skipuleggja árshátíðina úti, bóka sal, velja matinn, skemmtikrafta og búa til ógleymanlegt kvöld

Hvað er hægt að gera úti?

Við getum boðið upp á dagsferðir úti sem hópurinn velur úr og bókar í gegnum sölukerfi Tripical.
Einnig setjum við upp dagskrá með meðmælum af veitingarstöðum, börum & vinsælum ferðamannastöðum.

Við reddum öllu!

Sérðfræðingar Tripical hafa áratugareynslu í að skipuleggja árshátíðarferðir hópa!

Ferðalottó Tripical

Við viljum magna upp stemninguna fyrir brottför með því að draga út 1 heppið par/einstakling sem fær óvæntan glaðning frá Tripical 

Hótel

****

Hotel MiM Sitges & Spa er aðeins 120 metrum frá Sitges-ströndinni og býður upp á heilsulind og árstíðabundna þaksundlaug. Stílhrein herbergin eru með nútímalegar innréttingar og sum bjóða upp á sjávarútsýni.

Öll rúmgóðu herbergin á Hotel MiM Sitges & Spa eru með loftkælingu, sjónvarpi og minibar. Hótelið útvegar strandhandklæði gegn endurgreiðanlega tryggingu.

Veitingastaður hótelsins býður upp á úrval af bæði staðbundinni og alþjóðlegri matargerð. Skybarinn á þakinu býður upp á sjávar- og fjallaútsýni.

Heilsulind Hotel MiM Sitges & Spa býður upp á gufubað, eimbað, skynjunarsturtur, afþreyingarsundlaug og upphituð rúm sem þú getur fengið aðgang að með sérstökum afslætti.

Það er 24 tíma líkamsræktarstöð með ókeypis aðgangi fyrir alla gesti.

Göngusvæði Sitges við sjávarsíðuna er aðeins nokkra metra frá hótelinu. Lestarstöð bæjarins er í 10 mínútna göngufjarlægð og hér finnur þú reglulegar lestir til Barcelona, ​​í 40 km fjarlægð.

Hótelið fær heildareinkunina 8,4 og 9,4 fyrir staðsetningu á booking.com

Verðin

 199 990 kr

á mann í tvíbýli

95 000 kr

aukagjald í einbýli

Verðin miðast við 12 manns. Endanlegt verð liggur fyrir til kynningar og samþykktar þegar að dagsetning ferðar hefur verið ákveðin. Staðfestingargjald þarf að greiða um leið og ferð er ákveðin svo hægt sé að tryggja flug og hótel. 


Umsagnir fyrri hópa

Smelltu hér á hnappinn til að sjá umsagnir ánægðra viðskiptavina Tripical!
Skoða umsagnir

Arnar Magnússon

Fyrirtækjaferðir

S. 519 8900

GSM. 848 1520

Netfang: arnar@tripical.com