Andorra
20. febrúar til 27. febrúar 2025
Andorra er rétt um 480 ferkílómetrar að stærð og þar búa 78 þúsund
manns. Stærðin er svona eins og Reykjavik, Kópavogur og Garðabær til samans. Hægt er að ganga í kringum Andorra á 5 dögum!
Þótt íbúatala Andorra sé ekki há er alltaf mikið um að vera í þessu sjarmerandi fjallalandi. Þangað koma árlega um þrjár og hálf milljón ferðamanna og dvelja til lengri eða skemmri tíma, fyrir utan fjölda gesta frá nágrannaríkjunum Frakklandi og Spáni, en þaðan koma á hverju ári um 5 milljónir manns í styttri dagsferðir. Ferðaiðnaðurinn er allra stærsta tekjulind þjóðarinnar og hann einkennist í öllu af mikilli fagmennsku og gæðum. Andorra býður upp á stórkostlega aðstöðu til fjölbreyttrar skíðaiðkunar yfir vetrartímann, og á sumrin flykkist fólk þangað í hvers kyns gönguferðir og náttúruskoðun, enda umhverfið og útsýnið æði tilkomumikið og magnað.
Sólríkar hlíðar Andorra lúra milli Spánar og Frakklands. Svæðið á sér langa sögu í þjónustu við ferðamenn allt árið um kring og er án efa einn heppilegasti áfangastaðurinn fyrir blandaða skíðahópa. Dagskráin er svo sniðin að þörfum þeirra sem vilja skíða OG hafa gaman. Náttúrufegurðin, girnilegur matur, töfrandi viðmót heimafólks, hagstætt veður og lágt verðlag gera dvölina ógleymanlega.
Hvað er hægt að gera í Andorra
Notaðu tækifærið og smakkaðu rétti heimamanna, eins og trinxat
og escudella, bæði gómsætir pottréttir.
Caldea Spa
er ein af stærstu heilsulindum Evrópu. Frábær staður til að slaka á!
Naturlandia er vinsæll ævintýragarður sem býður upp á afþreyingu eins og zip-fóðrun, rennibrautaferðir og dýraskoðun.
Mótorhjólasafnið Carmen Thyssen
er mjög töff. Þar má skoða safn af vintage mótorhjólum.
Ef þig langar að prófa paragliding, þá er Andorra stórkostlegur staður fyrir þess háttar.
Casa de la Vall er glæsileg 16. aldar bygging sem vert er að skoða.
Hvað er innifalið í ferðinni
Flug
Áætlunarflug með Play til og frá Barcelona með innritaðri 20kg tösku
og handfarangri (8kg).
Flogið út
Brottför 20. febrúar 2025 frá Keflavík kl: 15:30 og lent í Barcelona kl: 20:50.
Flogið heim
Heimför 27. febrúar 2025 frá Barcelona kl: 21:50 og lent í Keflavík kl: 01:50.
Gisting
7 nætur á 4ra stjörnu hóteli með morgunverði.
Rútur
Rútuferðir til og frá flugvelli - 3,5 klst akstur
Farastjórn
Sé þess óskað - gegn gjaldi.
Ferðalottó Tripical
Við viljum magna upp stemninguna fyrir brottför með því að draga út heppin pör/einstaklinga sem fá óvæntan glaðing frá Tripical
Hótel
***
Þetta flotta hótel er staðsett í hjarta skíðadvalarstaðarins Soldeu í Andorra og er fullkominn staður fyrir skíðafrí eða til að kanna hið fallega landslag á þessu svæði Pýreneafjalla.
Hotel Xalet Montana er staðsett í aðeins 150 metra fjarlægð frá kláfferjustöðinni sem býður upp á ferðir að skíðabrekkunum í nágrenninu. Einnig er til staðar skíðageymsla á hótelinu.
Gestir geta stungið sér í sundlaug staðarins en þeir sem vilja enn meiri afslöppun geta notið þess að fara í vellíðunaraðstöðuna sem er búin heitum potti og gufubaði.
Hótelið er með eigin veitingastað þar sem gestir geta bragðað á matargerð svæðisins án þess að yfirgefa Xalet Montana.
Hótelið fær heildareinkunn 8,5 og 9,2 fyrir staðsetningu á booking.com.
Verðin
269 990 kr
á mann í tvíbýli
190 000 kr
aukagjald í einbýli
Hótel
****
Park Piolets MountainHotel & Spa er í Pýreneafjöllunum, 300 metrum frá skíðabrekkunum í Grandvalira-Soldeu og 600 metrum frá Vall d'Incles. Gestir eru með ókeypis aðgang að líkamsræktinni, krakkaklúbbnum og geymslu fyrir reiðhjól með verkfærum og þrifum. Ókeypis WiFi er til staðar hvarvetna á gististaðnum.
Öll herbergin eru rúmgóð og þægileg og bjóða upp á fjallaútsýni. Þau eru með flatskjá, minibar og öryggishólfi. Herbergin eru með svölum eða verönd. Á baðherberginu eru ókeypis snyrtivörur, baðkar eða sturta og hárþurrka.
Hlaðborðsveitingastaður hótelsins býður upp á alþjóðlega matargerð, 8 opin eldhús og útsýni yfir nærliggjandi fjöll. Gestir geta pantað sér drykk á vínveitingastofunni og notfært sér verönd hótelsins.
Einkabílastæði eru í boði gegn aukagjaldi og þar er hleðslustöð fyrir rafbíla.
Skíði og gönguferðir eru vinsæl afþreying á svæðinu. Á hótelinu er að finna skíðageymslu, en einnig er hægt að kaupa og leigja skíða útbúnað. Park Piolets MountainHotel & Spa er í 5 mínútna akstursfjarlægð frá El Tarter-skíðasvæðinu og Pas de La Casa er í 25 mínútna akstursfjarlægð.
Hótelið fær heildareinkunn 9,0 og 9,1 fyrir staðsetningu á booking.com.
Verðin
274 990 kr
á mann í tvíbýli
80 000 kr
aukagjald í einbýli
Tilboðið sýnir verðhugmyndir og miðast við 21 manns, ekki hafa verið tekið frá flug og hótel. Endalegt verð liggur fyrir þegar ferð er staðfest og hægt er að bóka flug. Staðfestingargjald þarf að greiða um leið og ferð er ákveðin svo hægt sé að tryggja flug og hótel.
Tilboðið sýnir verðhugmyndir og miðast við 21 manns, ekki hafa verið tekið frá flug og hótel. Endalegt verð liggur fyrir þegar ferð er staðfest og hægt er að bóka flug. Staðfestingargjald þarf að greiða um leið og ferð er ákveðin svo hægt sé að tryggja flug og hótel.
Umsagnir fyrri hópa
Smelltu hér á hnappinn til að sjá umsagnir ánægðra viðskiptavina Tripical!
Skoða umsagnir