
Til Prag
9. október - 12. október 2025
Rómuð fyrir magnaðar hallarbyggingar, kirkjur brýr og torg, sín breiðu stræti og þröngu mystísku göngugötur. Stórborgin Prag rekur sögu sína aftur til 9. aldar og er í heild sinni eitt stórkostlegt listaverk!
Prag slapp nánast heil frá sprengjuregni síðari heimsstyrjaldarinnar og því standa hinar fjölmörgu stórbyggingar þar í sinni upprunalegu mynd, sumar hverjar allt frá upphafsárum borgarinnar. Lengsta á Tékklands, Vltava
rennur um borgina miðja og skiptir henni í tvennt.
Gamli bærinn er hjartað í sögulegum kjarna Prag og þar í kring má finna tignarlegar Barokkhallir og gotneskar kirkjur. Þar er einnig hin mjög svo merkilega Stjörnfræðiklukka (Astronomical Clock) sem byggð var á miðöldum, og Charles brúin frá 14. öld.
Hér er sannarlega ekki aðeins boðið upp á augnakonfekt hvert sem litið er. Prag er þrátt fyrir aldurinn full af lífi, og næturnar einkennast af gleði og gáska. Tékkar eru þekktir fyrir bjórgerð, en auk þess eru snafsar af margvíslegu tagi afar vinsælir. Þjóðlegir réttir einkennast aðallega af kjöti og matarmiklum súpum. Rétt er að benda á að tékkneskur "burger" er ekki endilega það sama og við eigum að venjast, heldur nokkurs konar snitsel, stundum úr fiski, stundum kjöti og umvafið raspi. Hina klassísku borgara má þó auðvitað finna víða.
Hvað er hægt að gera í Prag
Prag kastalinn
er sá elsti í heimi skv. Heimsmetabók Guiness
Prague Dancing House
er ótrúleg bygging sem hiklaust má mæla með
Fyrir spennuþyrsta er mikið úrval af Escape Rooms í borginni, einna vinsælast er Puzzle Room Prague
Strahov klaustrið
stendur á hæð einni í borginni, stútfullt af sögu og gersemum
Josefov
gyðingahverfið er afar áhugavert
Alls kyns vín- og matarsmakk ferðir má finna hér og þar um borgina
Hvað er innifalið í ferðinni
Flug
Beint flug til og frá Prag með Play í áætlunarflugi, innrituð 20kg taska ásamt 10kg handfarangri sem passar undir sætið f. framan.
Flogið út
Frá Keflavík fimmtudaginn 9. október kl. 15:00, lent kl. 20:50 í Prag
Flogið heim
Frá Prag sunnudaginn 12. október kl.21:50 og lent á Keflavík kl 23:55.
Gisting
3 nætur á 4-5 stjörnu hóteli. Innifalið er morgunverður, wi-fi og city tax.
Rútur
Rútuferðir til og frá flugvelli í Prag ca 25 mín
Farastjórn
Einn óendanlega hjálpfús og skemmtilegur fararstjóri frá Tripical.
Tripical sér um allt úti
Árshátíðarkvöldið
Við erum snillingar í að skipuleggja árshátíðina
úti, bóka sal, velja matinn, skemmtikrafta og búa til ógleymanlegt
kvöld
Hvað er hægt að gera úti?
Við getum boðið upp á dagsferðir
úti sem hópurinn velur úr og bókar í gegnum sölukerfi Tripical.
Einnig setjum við upp dagskrá
með meðmælum af veitingarstöðum, börum & vinsælum ferðamannastöðum.
Við reddum öllu!
Sérðfræðingar Tripical hafa áratugareynslu
í að skipuleggja árshátíðarferðir hópa!
Ferðalottó Tripical
Við viljum magna upp stemninguna fyrir brottför með því að draga út 1 heppið par/einstakling sem fær óvæntan glaðning frá Tripical
Skemmtitékkinn í boði Tripical
Við viljum gera árshátíðarferðina ógleymanlega! Þess vegna bjóðum við hópnum þínum upp á frítt skemmtiatriði í ferðinni. Hópar sem telja 75 eða fleiri og eru með skipulagða árshátíð á vegum Tripical geta valið sér skemmtikraft hér af síðunni.
Viðkomandi skemmtikraftur þarf að vera laus á þeim dagsetningum sem óskað er eftir.
Hægt er að kynna sér hvaða skemmtiatriði er hægt að fá með í ferðina með að ýta á hnappinn hér fyrir neðan.
Hótel
*****
Grandium Hotel Prague er staðsett í hjarta Prag, rétt handan við hornið frá Wenceslas-torginu.
Herbergin eru glæsileg og nútímaleg með ókeypis WiFi, loftkælingu og te/kaffiaðbúnaði.
Veitingastaðurinn og kaffihúsið á Grandium Hotel Prague býður upp á ljúffenga alþjóðlega sem og tékkneska matargerð. Gestir geta notið máltíða í glæsilega borðsalnum eða úti í sumargarðinum þegar veðrið er gott.
Grandium Hotel Prague býður upp á móttöku sem opin er allan sólarhringinn.
Gestir geta nálgast almenningssamgöngur í nokkurra skrefa fjarlægð. Þjóðminjasafnið í Prag og Betlehem-kapellan eru í 300 til 600 metra fjarlægð.
Hótelið fær heildareinkunina 8,7 og 9,5 fyrir staðsetningu.
Verðin
149 990 kr
á mann í tvíbýli
50 000 kr
aukagjald í einbýli
Verðin miðast við 120 manns. Ekki hefur verið tekið frá flug og hótel. Verðin eru viðmiðunarverð fyrir umbeðið tímabil. Endanlegt verð liggur fyrir til kynningar og samþykktar þegar að dagsetning ferðar hefur verið ákveðin.
Umsagnir fyrri hópa
Smelltu hér á hnappinn til að sjá umsagnir ánægðra viðskiptavina Tripical!
Skoða umsagnir