
til Brescia21. ágúst til 24. ágúst 2025
Seint á 19. öld fékk Brescia viðurnefnið Ljónynja Ítalíu, fyrir baráttuþrek íbúanna gegn óvinaárásum. Einstaklega fögur borg nálægt Garda-vatni, hlaðin aldargamalli sögu og dásamlegu umhverfi.
Borgin Brescia stendur við rætur ítölsku Alpanna, í nokkurra kílómetra fjaralægð frá Garda-vatni og þar búa rúmlega 200.000 manns. Fornar rústir má víða finna á Ítalíu, en Brescia býr yfir þeim mikilvægustu og best varðveittu í norður-parti landsins. Hún er í raun algjör fjársjóðskista þegar kemur að verðmætum fornminjum og hluti hennar er skráður á Heimsminjaskrá UNESCO. Þar er klaustur frá 8. öld, miðaldakastalar, dómkirkjur og ýmsir merkilegir minnisvarðar frá tímum Rómverja. Einnig má benda á hringlaga dómkirkjuna, Duomo Vecchio, sem er sannkallað gotneskt meistaraverk, en við hlið hennar stendur "nýja" dómkirkjan sem reist var fyrir 150 árum og ber mjög stórbrotna framhlið úr hvítum marmara. Aðdráttarafl Brescia er þó síður en svo bundið við sögu hennar og menningararfleifð.
Hún er þekkt fyrir líflegt andrúmsloft, iðandi markaði og yndislega matargerð. Hin sanna ítalska matargerð Lombardy héraðsins endurspeglast meðal annars í casoncelli
pastaréttum, polenta
og brescian salami. Héraðið er einnig framleiðslustaður freyðivínsins Franciacorta.
Víða eru fallegar gönguleiðir með útsýni yfir vötn og tilkomumikil fjöll og eins er auðvelt að leigja sér hjól fyrir ferðir um næsta nágrenni. Á kvöldin finnurðu úrval af næturklúbbum og börum um allan bæ, og lítið mál að sletta úr klaufum, eða sitja í rólegheitum með góðum vinum og góðu víni. Dæmið gengur fullkomlega upp: Fagurt landslag, hlýleg gestristni heimafólks, ásamt sérstakri blöndu nútíma og fornra hefða gerir heimsókn til Brescia að ógleymalegri upplifum!
Hvað er hægt að gera í Brescia
Castello
er glæsilegur kastali með glæsilegu og víðáttumiklu útsýni
Ástfangnir geta farið í rómantíska ferð með leiðsögn sem heitir Love Stories of Brescia.
Mússí mússi
Njóttu iðandi ítalskrar stemmingar og mannlífs á torgum eins og Piazza della Loggia eða Piazza della Vittoria
Franciacorta
golfvöllurinn þykir mjög skemmtilegur og umhverfi hans hrein dásemd
Santa Giulia
safnið er til húsa í varðveittri fornbyggingu og gerir sögu borgarinnar góð skil
Ítalskar fornglæsikerrur eru sannarlega eitthvað fyrir augað. Mille Miglia Museum
hefur nóg af svoleiðis
Hvað er innifalið í ferðinni
Flug
Flug með áætlunarflugi Icelandair þar sem 1 innrituð taska 23 kg og 10kg handfarangur er innifalið.
Brottför
Brottför fimmtudaginn 21. ágúst frá Keflavík til Mílan kl. 08:20 og lent kl 14:30.
Heimför
Brottför sunnudaginn 24. ágúst frá Mílan til Keflavík kl 15:30 og lent kl. 17:45.
Gisting
3 nætur á 5* stjörnu hóteli, Innifalið er morgunverður, wi-fi og borgar-skatturinn
Rútur
Rútuferðir til og frá flugvelli upp á hótel, áætlaður aksturstími er um 1 og 1/2 klukkutími.
Farastjórn
Sé þess óskað gegn gjaldi.
Tripical sér um allt úti
Árshátíðarkvöldið
Við erum snillingar í að skipuleggja árshátíðina
úti, bóka sal, velja matinn, skemmtikrafta og búa til ógleymanlegt
kvöld
Hvað er hægt að gera úti?
Við getum boðið upp á dagsferðir
úti sem hópurinn velur úr og bókar í gegnum sölukerfi Tripical.
Einnig setjum við upp dagskrá
með meðmælum af veitingarstöðum, börum & vinsælum ferðamannastöðum.
Við reddum öllu!
Sérðfræðingar Tripical hafa áratugareynslu
í að skipuleggja árshátíðarferðir hópa!
Ferðalottó Tripical
Við viljum magna upp stemninguna fyrir brottför með því að draga út heppið par/einstakling sem fær óvæntan glaðing frá Tripical.
Hótel
Hotel Vittoria*****
Hið glæsilega Hotel Vittoria í Art Nouveau-stíl er við hliðina á Duomo Nuovo-dómkirkjunni í miðbæ Brescia og 200 metrum frá Vittoria-neðanjarðarlestarstöðinni. Herbergin eru með ókeypis interneti og hótelið veitir aðgang að svæði með takmarkaðri umferð.
Vittoria Hotel er með aðlaðandi anddyri með marmarasúlum og Murano-glerljósakrónum. Herbergin eru með loftkælingu, minibar og gervihnattasjónvarpi.
Veitingastaðurinn býður upp á dýrindis blöndu af ítalskri og alþjóðlegri matargerð og þú getur notið drykkja á píanóbarnum.
Gangan frá Vittoria að Santa Giulia-safninu tekur um það bil 5 mínútur. Lítið bílastæði gegn gjaldi er í boði. Teatro Grande er í 200 metra fjarlægð.
Hótelið fær heildareinkunn 7,8 og 9,6 fyrir staðsetningu á booking.com.
Verðin
159 990 kr
á mann í tvíbili
35 000 kr
aukagjald í einbýli