
til Vilníus15. maí til 18. maí 2025
Höfuðborg Litháen, Vilníus, er athyglisverð borg með fjölbreytt aðdráttarafl, og ekki skemmir fyrir hið frábæra næturlíf sem þar er að finna
Barokk kirkjur rísa upp hér og þar um borgina, þar á milli liggja falleg gömul hús og mynda þröngar götur og torg þar sem finna má mikið úrval af fyrsta flokks veitingastöðum. Þetta er skemmtileg borg, og fullkominn áfangastaður fyrir góðmenna hópa.
Ekki skemmir fyrir að við Íslendingar erum brjálæðislega vinsæl í Vilníus. Við vorum fyrsta þjóðin til að samþykkja sjálfstæði Litháen á sínum tíma, og þeirri ákvörðun okkar gleyma Litháar ekki. Í borginni má finna Íslandsstræti, Íslandsbari og margt fleira sem tengist okkur Íslendingum. Hér á þér eftir að líða eins og kóngi í ríki sínu.
Vilníus er vönduð nútímaborg, hún er ansi þétt og samanþjöppuð af höfuðborg að vera, og því furðu auðvelt að kynnast henni náið. Hún byður upp á listasöfn á heimsmælikvarða, fallegan arkitektúr í gamla bænum, sem er friðaður af UNESCO, steinlagðar götur og glæsilegar kirkjur, sem ásamt afar líflegu menningarlífi gera hana að frábærum áfangastað fyrir næstu menningarferð þína.
Hvað er hægt að gera í Vilnius
Uzupis hverfið er sérstök og óvenjuleg upplifun
Farðu upp í einhverja háa byggingu og njóttu útsynisins
Svífðu um í loftbelg
Gakktu í gegnum Hlið dögunnar og bíddu eftir kraftaverki
Röltu um Íslandsstræti og fáðu þér kokteil á Alchemikas
Göngutúr um gamla miðbæinn
Hvað er innifalið í ferðinni
Flug
Beint flug til og frá Varsjá með áætlunarflugi Play. Innifalið er innrituð taska 20kg og handfarangur 10kg
Brottför
Flogið út á fimmtudegi 15. maí frá Keflavík kl. 15:20, lent í Vilnius kl. 22:20.
Heimkoma
Flogið heim á sunnudeginum 18. maí frá Vilnius kl.23:20, lent í Keflavík 00:30.
Gisting
3 nætur á 4/5 stjörnu hóteli - Innifalið er morgunverður og wi-fi.
Rútur
Rútuferðir til og frá flugvelli í Vilnius
Farastjórn
Sé þess óskað - gegn auka gjaldi
Tripical sér um allt úti
Árshátíðarkvöldið
Við erum snillingar í að skipuleggja árshátíðina
úti, bóka sal, velja matinn, skemmtikrafta og búa til ógleymanlegt
kvöld
Hvað er hægt að gera úti?
Við getum boðið upp á dagsferðir
úti sem hópurinn velur úr og bókar í gegnum sölukerfi Tripical.
Einnig setjum við upp dagskrá
með meðmælum af veitingarstöðum, börum & vinsælum ferðamannastöðum.
Við reddum öllu!
Sérðfræðingar Tripical hafa áratugareynslu
í að skipuleggja árshátíðarferðir hópa!
Ferðalóttó Tripical
Við viljum magna upp stemninguna fyrir brottför með því að draga út
heppið par/einstakling sem fær óvæntan glaðning frá Tripical í ferðinni
Hótel
-staðfest verð-****
Hotel Neringa er í aðeins 10 mínútna göngufjarlægð frá Gediminas-kastalanum og gamla bænum í Vilnius. Í boði eru 124 björt og loftkæld herbergi, hefðbundinn veitingastaður, móttökubar og þakbar (opinn hluta af árinu). Wi-Fi Internet er í boði í öllum herbergjum og almenningssvæðum og er ókeypis. Hægt er að nota bílastæði í bílageymslu gegn aukagjaldi (nauðsynlegt er að panta).
Herbergin á Neringa eru með stórt skrifborð, minibar, öryggishólf, flatskjá með gervihnattarásum, straubúnað og te- og kaffiaðstöðu og baðherbergi með hárþurrku.
Klassísk litháísk matargerð og alþjóðlegir réttir eru framreiddir í sögulegu umhverfi Neringa-veitingastaðarins.
Gestir geta æft í líkamsræktarstöð hótelsins (án endurgjalds).
Neringa er staðsett beint við Gedimino-breiðgötuna, aðalgötuna í Vilnius. Allir helstu áhugaverðu staðirnir eru í göngufæri. Flugvöllurinn í Vilníus er í 20 mínútna akstursfjarlægð.
Hótelið fær heildareinkunina 9,3 og 9,8 fyrir staðsetingu á booking.com
Verðin
119 990 kr
á mann í tvíbili
30 000 kr
aukagjald í einbýli
Hótel
-staðfest verð-*****
Radisson Collection Astorija Hotel var byggt árið 1901, er staðsett í hjarta gamla bæjar Vilniusar og býður upp á innilaug og líkamsræktaraðstöðu. Allir helstu áhugaverðu staðirnir eru í göngufæri.
Radisson Collection Astorija Hotel býður upp á ókeypis WiFi hvarvetna á hótelinu. Öll herbergin eru með loftkælingu, kapalsjónvarpi, minibar og baðherbergi.
Fíni veitingastaðurinn Astorija Brasserie framreiðir nútímalega franska matargerð. Þaðan er útsýni yfir bæjartorgið og St. Casimir-kirkju. Á hótelinu er einnig barinn Astorija, þar sem gestir geta slakað á með drykk og dáðst að útsýninu. Ríkulegt morgunverðarhlaðborð er borið fram á morgnana og gestir sem fara snemma geta fengið Grab & Run-morgunverð til að taka með.
Rútu- og lestarstöðin er í 1 km fjarlægð frá Radisson Collection Astorija Hotel. Flugvöllurinn er í 6 km fjarlægð.
Hótelið fær heildareinkunina 9,3 og 9,9 fyrir staðsetningu á booking.com.
Verðin
139 990 kr
á mann í tvíbili
65 000 kr
aukagjald í einbýli
Tilboðið sýnir verðhugmyndir og miðast við 100 manns.
Endalegt verð liggur fyrir þegar ferð er staðfest og hægt er að bóka flug. Staðfestingargjald þarf að greiða um leið og ferð er ákveðin svo hægt sé að tryggja flug og hótel.
Umsagnir fyrri hópa
Smelltu hér á hnappinn til að sjá umsagnir ánægðra viðskiptavina Tripical!