Til Prag 
3. október - 6. október 2025

Rómuð fyrir magnaðar hallarbyggingar, kirkjur brýr og torg, sín breiðu stræti og þröngu mystísku göngugötur. Stórborgin Prag rekur sögu sína aftur til 9. aldar og er í heild sinni eitt stórkostlegt listaverk!

Prag slapp nánast  heil frá sprengjuregni síðari heimsstyrjaldarinnar og því standa hinar fjölmörgu stórbyggingar þar í sinni upprunalegu mynd, sumar hverjar allt frá upphafsárum borgarinnar. Lengsta á Tékklands, Vltava rennur um borgina miðja og skiptir henni í tvennt.
Gamli bærinn er hjartað í sögulegum kjarna Prag og þar í kring má finna tignarlegar Barokkhallir og gotneskar kirkjur. Þar er einnig hin mjög svo merkilega Stjörnfræðiklukka (Astronomical Clock) sem byggð var á miðöldum, og Charles brúin frá 14. öld. 
Hér er sannarlega ekki aðeins boðið upp á augnakonfekt hvert sem litið er. Prag er þrátt fyrir aldurinn full af lífi, og næturnar einkennast af gleði og gáska. Tékkar eru þekktir fyrir bjórgerð, en auk þess eru snafsar af margvíslegu tagi afar vinsælir. Þjóðlegir réttir einkennast aðallega af kjöti og matarmiklum súpum. Rétt er að benda á að tékkneskur "burger" er ekki endilega það sama og við eigum að venjast, heldur nokkurs konar snitsel, stundum úr fiski, stundum kjöti og umvafið raspi. Hina klassísku borgara má þó auðvitað finna víða. 

Hvað er hægt að gera í Prag

Prag kastalinn er sá elsti í heimi skv. Heimsmetabók Guiness
Prague Dancing House er ótrúleg bygging sem hiklaust má mæla með 
Fyrir spennuþyrsta er mikið úrval af Escape Rooms í borginni, einna vinsælast er Puzzle Room Prague 
Strahov klaustrið stendur á hæð einni í borginni, stútfullt af sögu og gersemum  
Josefov gyðingahverfið er afar áhugavert
Alls kyns vín- og matarsmakk ferðir má finna hér og þar um borgina

Hvað er innifalið í ferðinni

Flug

Beint flug til og frá Prag með Icelandair í áætlunarflugi, innrituð 23kg taska ásamt 10kg handfarangri.

Flogið út

Flogið frá Keflavík föstudaginn 3. október kl. 07:20, lent kl. 13:05 í Prag

Flogið heim

Flogið frá Prag mánudaginn 6. október kl.14:05 og lent á Keflavík kl 16:00.

Gisting

3 nætur á 4-5 stjörnu hóteli. Innifalið er morgunverður, wi-fi og city tax.

Rútur

Rútuferðir til og frá flugvelli í Prag ca 25 mín

Farastjórn

Sé þess óskað - gegn gjaldi.

Tripical sér um allt úti

Árshátíðarkvöldið

Við erum snillingar í að skipuleggja árshátíðina úti, bóka sal, velja matinn, skemmtikrafta og búa til ógleymanlegt kvöld

Hvað er hægt að gera úti?

Við getum boðið upp á dagsferðir úti sem hópurinn velur úr og bókar í gegnum sölukerfi Tripical.
Einnig setjum við upp dagskrá með meðmælum af veitingarstöðum, börum & vinsælum ferðamannastöðum.

Við reddum öllu!

Sérðfræðingar Tripical hafa áratugareynslu í að skipuleggja árshátíðarferðir hópa!

 Ferðalottó Tripical

Við viljum magna upp stemninguna fyrir brottför með því að draga út 1 heppið par/einstakling sem fær óvæntan glaðning frá Tripical 

Hótel

****

Grand Majestic Plaza er aðeins í 500 metra fjarlægð frá Púðurturninum og ráðhúsinu og býður upp á rúmgóð herbergi með ókeypis WiFi og ókeypis kaffi- og teaðstöðu.

Herbergin eru nútímaleg og eru með loftkælingu, minibar, öryggishólfi, skrifborði og flatskjá með gervihnattarásum.

Fínir tékkneskir réttir eru bornir fram á opna veitingastaðnum Atrium sem er einnig með setusvæði í húsgarðinum. Morgunverðarhlaðborð er í boði.

Kokteilar og léttir réttir eru fáanlegir í marmarasal kaffihússins Grand Lounge þar sem finna má gosbrunn með lituðum ljósum. Ókeypis WiFi er í boði á almenningssvæðum og Internetsvæði er til staðar við móttökuna sem er opin allan sólarhringinn.

The Grand Majestic er aðeins í 350 metra fjarlægð frá Palladium-verslunarmiðstöðinni og næsta neðanjarðarlestarstöð, NámÄ›stí Republiky, er aðeins í 5 mínútna göngufjarlægð.

Hótelið fær heildareinkunina 8,7 og 9,5 fyrir staðsetningu. 

Verðin

 129 990 kr

á mann í tvíbýli

45 000 kr

aukagjald í einbýli

 Tilboðið sýnir verðhugmyndir og miðast við 50 manns. Staðfestingargjald þarf að greiða um leið og ferð er ákveðin svo hægt sé að tryggja flug og hótel. 


Umsagnir fyrri hópa

Smelltu hér á hnappinn til að sjá umsagnir ánægðra viðskiptavina Tripical!
Skoða umsagnir

Arna Rut Kristinsdóttir

Fyrirtækjaferðir

S. 519 8900

GSM. 663 3313

Netfang: arna@tripical.com