Til Amsterdam
14. nóvember til 16. nóvember 2025

Amsterdam er höfuðborg Hollands og stærsta menningar-miðstöð landsins. Þar er eitthvað fyrir alla, hvort sem þú ert í leit að menningu og sögu, hressandi djammi, eða bara indælli afslöppun í fornfrægri evrópskri borg.

Fyrr á öldum var Amsterdam lítið fiskiþorp, sem óx og stækkaði í þá mikilvægu viðskiptaborg sem hún er í dag. Nafn borgarinnar var upphaflega Amstelredamme, en því var síðar breytt í Amsterdam. Nafnið kemur frá ánni Amstel. Þarna búa ekki nema rúmlega milljón manns, og eru íbúar borgarinnar þekktir fyrir sín vinalegheit og að vera tilbúnir að veita hjálparhönd við hvað sem er! Borgin er í raun ekki ýkja stór, öll helstu kennileiti eru í göngufæri, en við mælum eindregið með því að leigja hjól og ferðast þannig um þetta dásamlega umhverfi.
Hér má finna mikið af heillandi hverfum með gömlum byggingum sem tekist hefur einstaklega vel að varðveita, og litagleðin ræður ríkjum. Síkin eru áberandi hluti af staðnum og yfir þau liggja ófáar instagramvænar brýr. Tilvalið að stilla sér upp og taka eins og eina ÉG ER Í AMSTERDAM sjálfu. Að sigla á síkjum Amsterdam er sannkallaður draumur. Þar flýtur þú framhjá fallegum gróðri, blómstrandi trjám og sögulegum byggingum, sem virðast einhvern veginn allar vera álíka skakkar og gestir hinna svokölluðu kaffihúsa borgarinnar (sem flest hver bjóða upp á ögn meira krassandi stöff en uppáhelling)

Hvað er hægt að gera í Amsterdam

Canal hringurinn svokallaði liggur með síkjum frá 17. öld og sigling þar er æðisleg upplifun
Jordaan hverfið er mjög skemmtilegt- fátækrahverfi fyrri ára orðið hipp og kúl verslunarsvæði
Af fjölmörgum almenningsgörðum er Vondelpark hvað vinsælastur
KattenKabinet er merkilegt listasafn, þar eru eingöngu myndir  af köttum

Oude Kerk er kirkja frá 1300. Það er mjög vinsælt að fara upp í turn hennar
Götumarkaðir eru ótrúlega margir og hver öðrum skemmtilegri

Hvað er innifalið í ferðinni

Flug

Beint flug til og frá Amsterdam með Icelandair í áætlunarflugi innrituð 23kg taska ásamt 10kg handfarangri sem passar undir sæti f. framan.

Brottför

Brottför 14. nóvember frá Keflavík kl. 07:40, lent í Amsterdam kl. 11:55.

Heimkoma

Heimför 16. nóvember frá Amsterdam kl. 21:55, lent í Keflavík kl. 23:55.

Gisting

2 nætur á 4/5 stjörnu hóteli, Innifalið er morgun-verður, wi-fi og borgar-skatturinn

Rútur

Rútuferðir til og frá flugvelli upp á hótel, áætlaður aksturstími er 25 mín

Farastjórn

Sé þess óskað - gegn gjaldi.

Tripical sér um allt úti

Árshátíðarkvöldið

Við erum snillingar í að skipuleggja árshátíðina úti, bóka sal, velja matinn, skemmtikrafta og búa til ógleymanlegt kvöld

Hvað er hægt að gera úti?

Við getum boðið upp á dagsferðir úti sem hópurinn velur úr og bókar í gegnum sölukerfi Tripical.
Einnig setjum við upp dagskrá með meðmælum af veitingarstöðum, börum & vinsælum ferðamannastöðum.

Við reddum öllu!

Sérðfræðingar Tripical hafa áratugareynslu í að skipuleggja árshátíðarferðir hópa!

Ferðalottó Tripical

Við viljum magna upp stemninguna fyrir brottför með því að draga út 1 heppið par/einstakling sem fær óvæntan glaðning frá Tripical 

Hótel 

****

WestCord Fashion Hotel Amsterdam er staðsett innan við 5 km frá gamla bænum, í suðvesturhluta Amsterdam. Það er í stuttri göngufjarlægð frá almenningssamgöngutengingum og býður upp á ókeypis Wi-Fi.

Hótelið býður upp á lúxus hönnunarherbergi með nýtískulegum innréttingum og sérbaðherbergi með baðkari/sturtu. Ókeypis te/kaffiaðstaða er í hverju herbergi. Reiðhjólaleiga er einnig í boði.

Wellcome Wellness býður upp á innisundlaug og nútímalega líkamsræktarstöð. Þessi aðstaða er gestum hótelsins að kostnaðarlausu. Það er líka afslappandi gufubað og nudd í boði gegn aukagjaldi.

Grand Cafe býður upp á mat allan daginn. Þú getur líka heimsótt veitingastaðinn MCoco fyrir dýrindis matreiðslukvöld. Hinn flotti SKYY Bar býður upp á víðáttumikið borgarútsýni og býður upp á úrval af vínum og framandi kokteilum, auk 5 rétta kvöldverðar við matreiðsluborðið.

10 mínútna fjarlægð með sporvagni mun flytja gesti í miðbæinn.
Schiphol-flugvöllur eru í 10 mínútna akstursfjarlægð.

Hótelið fær heildareinkunina 8,3 og 7,8 fyrir staðsetningu á booking.com

Verðin

 124 990 kr

á mann í tvíbili

35 000 kr

aukagjald í einbýli



Umsagnir fyrri hópa

Smelltu hér á hnappinn til að sjá umsagnir ánægðra viðskiptavina Tripical!
Skoða umsagnir

Arnar Magnússon

Fyrirtækjaferðir

S. 519-8900

GSM. 848 1520

Netfang. arnar@tripical.com