Christopher og vinirtil Búdapest 7. nóvember til 10. nóvember 2025
Búdapest er paradís hinna ferðaglöðu. Stórbrotin borg, mótuð af menningarstraumum liðinna alda. Mögnuð saga, töfrandi arkitektúr og merkileg menning - algjör fjársjóður. Ekki að ástæðulausu að Búdapest er oft kölluð París austursins!
Um borgina miðja rennur Dóná, sitthvoru megin hennar standa Buda og Pest, sem sameinuðust formlega í eina borg árið 1873. Það hefur gengið á ýmsu í Ungverjalandi í gegnum tíðina. Þetta sýna byssukúluör og ummerki eftir sprengjur seinni heimstyrjaldarinnar og frá uppreisninni 1956, sem finna má víða um borgina. Það er í raun eins og að fara í litla Evrópureisu þegar maður sekkur sér í sögu Búdapest, svo fjölbreytt og stórbrotin er hún. Og byggingar hennar og tignarleg mannvirkin gera mann hreinlega orðlausan, en borgin var einmitt sett á heimsminjaskrá UNESCO fyrir menningar- og byggingarsögu sína.
Á milli þess sem þú dásamar fagrar byggingarnar, getur þú skellt þér í tyrknest baðhús og pústað aðeins, en hitauppstreymi frá jörðu er vinsæll orkugjafi fyrir fjölmargar heilsulindir borgarinnar. Þá þykir sólsetur í Búdapest eitt það fegursta í allri E vrópu og margir sem leggja ýmislegt á sig til að verða vitni að því.
Verðlag er hagstætt, maturinn er góður, íbúarnir eru vinalegir og veðrið er gott.
Njóttu!
Hvað er hægt að gera í Búdapest
Þinghúsið, Kossuth Lajos tér, er stærsta bygging í Evrópu, hvorki meira né minna
Margrétareyja er einstaklega fallegur staður að sigla í og njóta
Alls staðar er hægt að leigja hjól, bæði venjuleg og rafmagns, og gaman að skoða borgina þannig
Sjúkrahússafnið, staðsett í helli á Castle Hill er sjón sögu ríkari
Hryllingshúsið, House of Terror, geymir erfiða en afar athyglisverða sögu
Konungshöllin, Királyi palota, er ein vinsælasti staður borgarinnar og ekki að ástæðulausu
Hvað er innifalið í ferðinni
Flug
Flug fram og til baka með áætlunarflugi Wizz air 1 innrituð taska 20 kg og 10 kg handfarangur.
Leiguflugsverðin miðast við gengi dagsins bæði á evrunni og eldsneytisverði
Brottför
Frá Keflavík til Búdapest á föstudeginum 7. nóvember klukkan 17:30 og lent í Búdapest klukkan 23:00.
Heimkoma
Frá Budapest til Keflavíkur á mánudeginum 10. nóvember klukkan 12:50 og lent í Keflavík klukkan 16:50.
Gisting
3 nætur á 4* hóteli. Innifalið er morgunverður og wi-fi og city tax.
Rútur
Rútuferðir til og frá flugvelli í Búdapest, ca 30 mín
Farastjórn
Sé þess óskað - gegn gjaldi.
Hverju er hægt að bæta við pakkann
Sigling
Sigling eftir ánni Dóná kostar allt frá 8.900 kr. á manninn upp í 24.900 kr. á mann eftir tíma og hvort hádegis- eða kvöldverður sé innifalið í verðinu.
Gönguferð um miðbæinn
Gönguferð um miðbæinn með leiðsögn kostar allt frá 5.900 kr. á manninn eftir því hvort þið takið hádegisverð með eða aðgangi að söfnum.
Árshátíðarkvöldverður
Kvöldverður fyrir hópinn er allt frá 8.900 kr. án drykkjarpakka upp í 19.900 kr. með opnum bar.
Einnig ferð verðið eftir því hvaða matseðill er valinn.
Hótel
****
Eurostars Danube Budapest var byggt árið 2016 og er staðsett í miðbæ Búdapest, 250 metra frá Deák Ferenc Tér-samgöngumiðstöðinni og 400 metra frá sýnagógunni við Dohány-stræti. Ókeypis WiFi er í boði.
Herbergin eru innréttuð til að endurspegla andrúmsloft 3. áratug síðustu aldar. Þau eru með loftkælingu, flatskjá, skrifborð og rafmagnsketil. Sérbaðherbergið er með hárþurrku og ókeypis snyrtivörur. Einnig er til staðar minibar gegn aukagjaldi.
Á Eurostars Danube Budapest má finna bar sem þjónar gestum síðdegis og á kvöldin, einnig er boðið upp á sólarhringsmóttöku. Á gististaðnum er einnig til staðar sameiginleg setustofa og ókeypis farangursgeymsla. Gestir eru einnig með aðgang að líkamsræktarstöð.
Finna má marga bari og veitingastaði í innan við 300 metra fjarlægð. Líflegi Gozsdu-húsgarðurinn er í innan við 250 metra fjarlægð.
Hótelið er í 500 metra fjarlægð frá Basilíku heilags Stefáns og í 600 metra fjarlægð frá Ríkisóperuhúsinu. Sögulega Andrássy-breiðstrætið er í innan við 400 metra fjarlægð og göngugötusvæði Váci Utca er í 600 metra fjarlægð. Budapest Liszt Ferenc-flugvöllur er í 20 km fjarlægð.
Hótelið fær heildareinkunina 8,8 og 9,6 fyrir staðsetningu á Booking.com
Verðin
119 990 kr
á mann í tvíbýli
50 000 kr
aukagjald í einbýli
Hótel
****
Hotel Zenit Budapest Palace er staðsett í sögulega miðbænum í Búdapest og í 50 metra fjarlægð frá árbakka Dónár. Það státar af veitingastað sem framreiðir alþjóðlega matargerð og vellíðunarsvæði með líkamsræktaraðstöðu og gufubaði.
Ókeypis Wi-Fi-Internet er í boði hvarvetna á hótelinu. Gegn aukagjaldi og háð framboði geta gestir einnig fengið lánaðan Wi-Fi-netpung en hann má nota í bænum.
Öllum herbergjunum fylgja loftkæling og nútímalegar innréttingar. Þau eru með gervihnattasjónvarp, öryggishólf og minibar. Allar einingarnar innifela einnig sérbaðherbergi með sturtu eða baðkar.
Zenit Budapest Palace Hotel býður upp á valfrjálst morgunverðarhlaðborð en þar geta gestir fengið nýútbúnar eggjakökur. Einnig er boðið upp á strau- og þvottaþjónustu. Almenningsbílastæði er í boði gegn aukagjaldi.
Margir af áhugaverðustu stöðum borgarinnar eru staðsettir í næsta nágrenni við hótelið. Það eru mörg kaffihús og veitingastaðir á Váci utca en það er glæsilega verslunargöngugata borgarinnar. Deak Square, þar sem finna má 3 neðanjarðarlestarlínur (M1, M2, M3), er í innan við 500 metra fjarlægð. St. Stephen's-basilíkan er í 1 km fjarlægð frá gististaðnum en Óperuhúsið og Andrássy-breiðstrætið eru í 1,5 km fjarlægð.
Hótelið fær heildareinkunina 8,6 og 9,7 fyrir staðsetningu á Booking.com.
Verðin
109 990 kr
á mann í tvíbýli
35 000 kr
aukagjald í einbýli
Hótel
****
Hið 4 stjörnu Hotel President er rétt við hliðina á ungverska seðlabankanum og viðskiptaráðinu. Það býður upp á þakverönd með víðáttumiklu útsýni og vellíðunaraðstöðu.
Ókeypis internet og Wi-Fi eru staðalbúnaður í öllum herbergjum. Öll herbergin eru einnig með loftkælingu, gervihnattasjónvarpi og minibar. Hárþurrka og snyrtivörur eru til staðar á baðherbergjunum.
Innlendur og alþjóðlegur matur er borinn fram á glæsilega Intermezzo Café & Restaurant. Herbergisþjónusta er í boði.
Gestir geta einnig nýtt sér gufubað og líkamsræktarstöð.
Í aðeins 200 metra fjarlægð er Arany János Utca-neðanjarðarlestarstöðin, á M3 línunni. St. Stephen's Basilíkan er í aðeins 5 mínútna göngufjarlægð niður götuna.
Hótelið fær heildareinkunina 8,0 og 9,4 fyrir staðsetningu á Booking.com.
Verðin
109 990 kr
á mann í tvíbýli
30 000 kr
aukagjald í einbýli
Tilboðið er fyrir 40 manns og endanlegt verð liggur ekki fyrir fyrr en ferð hefur verið ákveðin og hægt er að bóka flug og hótel.
Umsagnir fyrri hópa
Smelltu hér á hnappinn til að sjá umsagnir ánægðra viðskiptavina Tripical!
Skoða umsagnir