
Til Barcelona3. október - 6. október 2024
Með sólbaðsstrendur og einstakan byggingarstíl frá fornum hofum til framúrstefnu Gaudí. Barcelóna er sannkölluð Miðjarðarhafsperla.
Barcelona er borg sem hefur dregið til sín fjölda listamanna vegna fegurðar sinnar og sérstöðu. Barcelona býður upp á heimsklassa söfn, katalónska matseld, dans og víðfrægt næturlíf.
Arkitektúr borgarinnar er æði fjölbreyttur. Turnar úr gömlum hofum, gamlir veggir og steinarústir sýna sögu borgarinnar allt frá tímum Rómverja. Gotneska hverfið er 1000 ára gamalt og margar kirkjunar eru frá 15. öld. Þá er einnig mikið af nýbyggingum í borginni eftir fræga hönnuði eins og Gaudí.
Göngugötur Barcelona eru vinsælar og oft margt um manninn. Frægust þeirra er Ramblan, La Rambla, á henni má finna fjöldan allan af veitingastöðum og verslunum. Í þessari fallegu borg eru útimarkaðir, veitingastaðir, söfn og fallegar kirkjur á hverju strái. Berceloneta heitir þekktasta strönd borgarinnar, þar sleikir Miðjarðarhafssólin gylltan sand og heiðblátt hafið. Barcelona er frábær borg fyrir ferðalanga sem hafa gaman af því að rölta um og skoða mismunandi byggingarstíl og upplifa litríka menningu.
Hvað er hægt að gera í Barcelona
Stytturnar og gosbrunnarnir á Placa de Catalunya eru sjón að sjá
Í Sants Montjuic geturðu farið með kláf frá strönd og hátt upp í fjall.
Barri Gotic
hverfið er fullt af miðaldabyggingum og nokkrum sem eru enn eldri
La Sagrada Familia
kirkjan er auðvitað bara skylduheimsókn! Enginn fer frá borginni án þess að hafa farið þangað
Park Güell
garðurinn hefur skrýtnar og stór-skemmtilegar byggingar Gaudi
Þú finnur allt sem þig langar að borða í Barcelona - þú verður að prófa katalónska matargerð
Hvað er innifalið í ferðinni
Flug
Beint flug til og frá Barcelona bæði með Play. Innrituð 20kg farangur og 10kg handfarangur sem passar undir sætið
Ferðadagsetningar
Brottför frá Keflavík föstudaginn 3. október kl 15:20 og lent í Barcelona kl 21:40
Flugtímar
Brottför frá Barcelona á mánudaginn 6. október
kl 22:40 og lent í Keflavík 01:20+1
Gisting
3 nætur á 4 stjörnu hótel, innifalið er morgunverður, wi-fi og city tax.
Rútur
Rútur til og frá flugvelli 20 - 30 mín
Íslensk farastjórn
Sé þess óskað -Gegn gjaldi
Tripical sér um allt úti
Árshátíðarkvöldið
Við erum snillingar í að skipuleggja árshátíðina
úti, bóka sal, velja matinn, skemmtikrafta og búa til ógleymanlegt
kvöld
Hvað er hægt að gera úti?
Við getum boðið upp á dagsferðir
úti sem hópurinn velur úr og bókar í gegnum sölukerfi Tripical.
Einnig setjum við upp dagskrá
með meðmælum af veitingarstöðum, börum & vinsælum ferðamannastöðum.
Við reddum öllu!
Sérðfræðingar Tripical hafa áratugareynslu
í að skipuleggja árshátíðarferðir hópa!
Ferðalottó Tripical
Við viljum magna upp stemninguna fyrir brottför með því að draga út 1 heppið par/einstakling sem fær óvæntan glaðning frá Tripical
Hótelið
****
Það er líkamsræktarstöð og þakverönd til að slaka á með sundlaug og frábæru borgarútsýni. Það er staðsett í 100 metra fjarlægð frá dómkirkjunni í Barcelona, í hinum sögulega gotneska hverfi.
Öll glæsilegu herbergin á Barcelona Catedral Hotel eru með viðargólfi og loftkælingu. Herbergin eru með ókeypis WiFi, öryggishólf fyrir fartölvu og flatskjásjónvar.
Skapandi Miðjarðarhafsmatargerð er framreidd á 4 Capellans veitingastað hótelsins, sem býður upp á matseðil fyrir glútenóþol. Það er mikið úrval veitingastaða og tapasbara í innan við 5 mínútna göngufjarlægð, þar á meðal margir í hinu vinsæla El Born-hverfi.
Hotel Barcelona Catedral er í 450 metra fjarlægð frá Plaza Catalunya-torgi, en Römblan er í 5 mínútna göngufjarlægð.
Hótelið fær heildareinkunn 8,6 og 9,7 fyrir staðsetningu á booking.com
Verðin
164 990 kr
á mann í tvíbýli
80 000 kr
aukagjald í einbýli
Hótelið
****
INNSiDE by Meliá Barcelona Apolo er staðsett við rætur Montjuïc, í 7 mínútna göngufjarlægð frá Römblunni í Barselóna. Það býður upp á sólarhringsmóttöku og loftkæld herbergi með WiFi.
Herbergin á INNSiDE by Meliá Barcelona Apolo voru enduruppgerð árið 2023 og eru með flottar innréttingar og viðargólf. Öll eru með flatskjásjónvarp, minibar, skrifborð og sérbaðherbergi með hárþurrku.
Hótelið býður upp á fjölbreytt morgunverðarhlaðborð á hverjum morgni. Það er líka snarlbar sem býður upp á léttar máltíðir á kvöldin.
Parallel-neðanjarðarlestarstöðin er við hliðina á hótelinu og tengir þig við Fira-ráðstefnumiðstöðina á 2 stoppum.
Hótelið fær heildareinkunn 8,9 og 9,0 fyrir staðsetningu á booking.com
Verðin
184 990 kr
á mann í tvíbýli
40 000 kr
aukagjald í einbýli
Tilboðið sýnir verðhugmyndir og miðast við 60 manns.
Endalegt verð liggur fyrir þegar ferð er staðfest og hægt er að bóka flug. Staðfestingargjald þarf að greiða um leið og ferð er ákveðin svo hægt sé að tryggja flug og hótel.