Til The Hague

11. september til 14. september 2025

Hrífandi borg, skreytt gömlum heillandi hverfum, stórbrotnum byggingum og blómlegum almenningsgörðum. Hér er lífleg menning, skemmtun og gleði.
Gangi þér allt í Haag!  

 Í Haag er aðsetur hollenska þingsins en auk þess býr þar Willem-Alexanders Hollandskonungur. Þá er borgin þekkt sem dómstólaborg heimsins, þar starfrækja Sameinuðu þjóðirnar Alþjóðadómstólinn (ICJ) og Alþjóðaglæpadómstólinn (ICC), ásamt fjölda annarra alþjóðlegra stofnanna. Haag er þriðja stærsta borg Hollands og þar búa um 500.000 manns, en 700.000 sé héraðið allt tekið með. Þar hefur ferðamanna-iðnaðurinn sótt í sig veðrið síðustu ár, og sífellt fleiri leggja leið sína þangað, enda býr borgin yfir miklum þokka og fegurð.
Haag er í ýmsu ólík stóru systur sinni Amsterdam og öðrum hollenskum borgum. Hún er af mörgum talin sú virðulegasta í landinu. Í stað hinna dæmigerðu hollensku endurreisnarhúsa frá 17. öld, standa þar 18. aldar stórhýsi í barrok og klassískum stíl. Í hjarta borgarinnar má finna mikið af sögulegum byggingum frá miðöldum og endur-
reisnartímanum. Rétt fyrir utan miðbæinn eru svo gríðarlega falleg hverfi í art nouvau stíl. Alls staðar eru svo hugguleg kaffihús og veitingastaðir, breiðar verslunargötur og síðast en ekki síst, falleg ströndin að Norðursjó.

Hvað er hægt að gera í The Hague

The Pier Skyview býður upp á útsýnisferð í risa parísarhjóli.
Ein elsta gatan í Haag er Molenstraat. Skemmtileg til göngu.
Scheweningen Beach Speedboat Tour er vægast sagt hressandi skemmtun.
Í Panorama Mesdag Museum er áhrifarík og flott sýning með risamálverki sem sýnir forna tíð. 
Kloosterbrouwerij Haagsche Broeder. Bjórgerð í munkaklaustri. Mögnuð upplifun!
Planet Jump er trampólíngarður, og hann er staðsettur í kirkju. Athyglisvert!

Hvað er innifalið í ferðinni

Flug

Beint flug til og frá Amsterdam með Play  í áætlunarflugi innrituð 20kg taska ásamt 10kg persónulegur hlutur.

Brottför

Flogið fimmtudaginn 11. september frá Keflavík kl. 06:10, lent í Amsterdam kl. 11:30

Heimkoma

Flogið sunnudaginn 14. september frá Amsterdam kl. 12:30, lent í Keflavík 13:50.

Gisting

3 nætur á 4/5 stjörnu hóteli - Innifalið er morgunverður og wi-fi

Rútur

Rútuferðir til og frá flugvelli
Rúta tekur um 45mín -1 klst

Farastjórn

Sé þess óskað - gegn gjaldi.

Tripical sér um allt úti

Árshátíðarkvöldið

Við erum snillingar í að skipuleggja árshátíðina úti, bóka sal, velja matinn, skemmtikrafta og búa til ógleymanlegt kvöld

Hvað er hægt að gera úti?

Við getum boðið upp á dagsferðir úti sem hópurinn velur úr og bókar í gegnum sölukerfi Tripical.
Einnig setjum við upp dagskrá með meðmælum af veitingarstöðum, börum & vinsælum ferðamannastöðum.

Við reddum öllu!

Sérðfræðingar Tripical hafa áratugareynslu í að skipuleggja árshátíðarferðir hópa!

Ferðalóttó Tripical

Við viljum magna upp stemninguna fyrir brottför með því að draga út heppin pör/einstaklinga sem fá óvæntan glaðning frá Tripical 

Hótel

****

Best Western Plus Plaza Den Haag er þægilega staðsett í miðbæ Haag og býður upp á loftkæld herbergi, ókeypis WiFi og bar. Gististaðurinn er 4,1 km frá Madurodam, 4,3 km frá Huis Ten Bosch-höllinni og 2,2 km frá Escher-safninu. Gistirýmið er með sólarhringsmóttöku, herbergisþjónustu og farangursgeymslu fyrir gesti.

Öll herbergin á hótelinu eru með fataskáp, flatskjá og sérbaðherbergi.

Gestir á Best Western Plus Plaza Den Haag geta notið morgunverðarhlaðborðs.

Áhugaverðir staðir í nágrenni gististaðarins eru New Babylon, Binnenhof og Theater aan het Spui. Næsti flugvöllur er Rotterdam Haag-flugvöllur, 22 km frá Best Western Plus Plaza Den Haag.

Verðin

109 990 kr

á mann í tvíbili

40 000 kr

aukagjald í einbýli

Hótel

****

Voco The Hague, an IHG Hotel er með líkamsræktarstöð, garð, verönd og veitingastað í Haag. Þetta 4 stjörnu hótel býður upp á herbergisþjónustu, sólarhringsmóttöku og ókeypis WiFi. Gististaðurinn er í 600 metra fjarlægð frá miðbænum og í 2,5 km fjarlægð frá Madurodam.

Herbergin eru með flatskjá með gervihnattarásum, minibar, kaffivél, sturtu, ókeypis snyrtivörum og skrifborði. Herbergin eru með öryggishólfi og sum herbergin eru með borgarútsýni. Allar einingar eru með sérbaðherbergi, hárþurrku og rúmfötum.

Hjólreiðar eru vinsælar á svæðinu og það er reiðhjólaleiga á hótelinu.

Paleis Huis Ten Bosch er 4,1 km frá voco Haag, an IHG Hotel, en Westfield Mall of the Netherlands er 7 km frá gististaðnum. Næsti flugvöllur er Rotterdam-Haag-flugvöllur, 19 km frá gististaðnum.

Verðin

124 990 kr

á mann í tvíbili

50 000 kr

aukagjald í einbýli

Verðin miðast við 24 manns. Ekki hefur verið tekið frá flug og hótel. Verðin eru viðmiðunarverð fyrir umbeðið tímabil. Endanlegt verð liggur fyrir til kynningar og samþykktar þegar að dagsetning ferðar hefur verið ákveðin.


Umsagnir fyrri hópa 

Smelltu hér á hnappinn til að sjá umsagnir ánægðra viðskiptavina Tripical!
Skoða umsagnir

Arnar Magnússon

Fyrirtækjaferðir

S. 519 8900

GSM. 848 1520

Netfang: arnar@tripical.com